top of page
Search

Mikilvægur sigur á West Ham Leikskýrsla og einkunnir



Chelsea gerði sér góða ferð á London leikvanginn og sótti þar þrjú dýrmæt stig í baráttunni um sæti í Meistaradeild Evrópu. Fyrri hálfleikurinn var vel spilaður af okkar mönnum þar sem þeir stjórnuðu leiknum mjög vel og sköpuðu sér nokkur færi. Það var svo á sjálfri markamínútunni er Mason Mount keyrði upp tempóið á miðjunni, fann Ben Chilwell úti vinstra megin sem kom með frábæra sendingu fyrir á Timo Werner sem kláraði færið vel í fyrstu snertingu.


West Ham komu mikið sterkari til leiks í síðari hálfleik eftir að hafa verið mjög daprir sóknarlega í þeim fyrri. West Ham sköpuðu sér engin teljandi dauðafæri þrátt fyrir að hafa komist nokkrum sinnum í ágætar stöður á vellinum. Okkar menn fengu nokkur góð upphlaup og Mason Mount var duglegur að skjóta á markið. Eftir eitt slíkt skot fékk Timo Werner algert dauðafæri eftir að Fabianski hafði verið boltann út í teiginn, einhvernveginn tókst Timo kallinum að klúðra þessu færi.


Balbuena fékk svo rautt spjald efir að hafa hreinsað boltanum í burtu en lenti svo með takkana í fótleggnum á Chilewll, eftir að Varsjáin hafði skoðað málið gaf dómari leiksins Balbuena rauða spjaldið. Mjög strangur dómur.


Leikurinn fjaraði út og þrír flottir punktar í hús hjá okkar mönnum.


xG- Bardaginn


Umræðupunktar

  • Tammy Abraham fékk nokkar mínútur í leiknum og er þá mögulega kominn úr fyrstikistunni hjá Tuchel.

  • Frá því að Tuchel tók við Chelsea í janúar eru Chelsea búið að fá næst flest stig á eftir Man City í ensku Úrvalsdeildinni.

  • Samkvæmt tölfræði á heimasíðu Premier League hefur Timo Werner klúðrað 17 góðum marktækifærum! Það munar um minna hjá þjóðverjanum.

  • Jorginho og Kante voru mjög góðir í þessum leik - voru með tögl og haldir á miðjunni og gáfu West Ham ekki færi á byggja upp neinar sóknir.

  • Enn eitt "hreina lakið" hjá vörninni eftir Tuchel tók við liðinu. Liðið spilar ekki skemmtilegasta fótboltann en við erum afskaplega þéttir fyrir.

  • Gaman að sjá að Thiago Silva er búinn að finna sitt form aftur.

  • Það var mjög áhugavert Tuchel skildi velja Azpilicueta til að spila í hægri vængbakverði fram yfir bæði Hudson-Odoi og Reece James.

Einkunnir

Mendy - 7,5

Rudiger - 7,5

T. Silva - 8

Christensen 7,5

Azpilicueta - 7

Chilwell - 8 (Maður leiksins)

Jorginho - 7

Kante - 7

Mount - 7

Pulisic - 6

Werner - 7


Ziyech - 6

James - 6

Tammy - 6



Next up: Real Madrid í undanúrslitum CL.


KTBFFH

- Jóhann Már

bottom of page