top of page
  • Twitter Social Icon
  • Facebook Social Icon
Search

Everton gegn Chelsea

  • 11 minutes ago
  • 4 min read

Keppni: Enska Úrvalsdeildin 31. umferð

Tími, dagsetning: Laugardagur 21. mars kl: 17.30

Leikvangur: Hill Dickinson Stadium, Liverpool

Dómari: Samuel Barrott

Hvar sýndur: Sýn Sport

Upphitun eftir: Guðna Reyni Þorbjörnsson


Úff… hvað er eiginlega hægt að segja eftir síðustu daga? Það er að vísu margt sem maður gæti ritað um. Eignarhaldið, þjálfarinn, leikmennirnir… en allt sameinast þetta í einu orði: vonbrigði.


Næsta laugardag eigum við síðdegisleik gegn Everton á nýjum og glæsilegum heimavelli þeirra, Hill Dickinson Stadium. Þetta verður fyrsta ferð okkar á þennan völl og það væri að sjálfsögðu vel þegið að sækja þangað þrjú stig í baráttunni um sæti í Meistaradeild Evrópu.Everton sitja í 8. sæti, fimm stigum á eftir okkur. Þeir eru svipaðir okkur að því leyti að útivallarformið hefur verið betra en heimavallarárangurinn. Everton hefur leikið 15 leiki á heimavelli, aðeins unnið 5 þeirra, gert 4 jafntefli og tapað 6. 


Chelsea hafa leikið 15 leiki á útivelli, unnið 7 þeirra, gert 4 jafntefli og tapað 4. 

Tölfræðin ætti því að vera með okkur í liði í þessum útileik, en þegar kemur að þessu blessaða liði okkar er engu að treysta. Lið Everton er vel skipulagt undir stjórn David Moyes og byggir mikið á sterkri varnarvinnu og skyndisóknum. Í þeirra röðum er fyrrum Chelsea maðurinn Dewsbury-Hall sem hefur verið einn af betri mönnum liðsins, og þá er Tyrique George þar á láni frá okkur, en væntanlega fær hann ekki að spila þennan leik.


Síðasta þriðjudagskvöld lékum við seinni leikinn gegn PSG í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Við vorum 5–2 undir eftir fyrri leikinn og þurftum að byrja af krafti ef við ætluðum að eiga einhvern möguleika í þeirri viðureign. Í staðinn fengum við á okkur tvö mörk á fyrsta korterinu á heimavelli og allur kraftur og trú hvarf úr liðinu og stuðningsmönnum. Leikurinn var í raun búinn þar og PSG bætti síðan við marki í seinni hálfleik. Við kvöddum því keppnina með samtals 8–2 tapi gegn frönsku meisturunum. Chalobah bættist á meiðslalistann í leiknum og er talið að hann verði frá næstu sex vikurnar. Mig langar eiginlega ekki að dvelja mikið lengur við þennan leik, við duttum einfaldlega verðskuldað út og sáum aldrei til sólar.


Síðasti deildarleikur var síðan dapurt tap á heimavelli gegn vel skipulögðu liði Newcastle. Chelsea var mikið með boltann en okkar menn voru mjög hugmyndalausir á síðasta þriðjungi vallarins. Ég var sjálfur á vellinum og maður fann vel fyrir pirringnum í stúkunni yfir því hversu andlausir leikmennirnir voru fyrir framan markið og stutta spilið í vörninni vakti heldur ekki mikla lukku. Það er einfaldlega einhver neikvæð ára á sveimi í kringum klúbbinn okkar og maður getur ekki annað en vonað að það muni batna á einhvern hátt. Það er bara spurning hvernig.


Eigendamálin eru hvað háværust í umræðum aðdáenda Chelsea, og flestir vilja losna við núverandi eigendur þar sem uppbyggingarstefna þeirra virðist enn sem komið er litlu ætla að skila. En því miður er raunveruleikinn líklega sá að þeir eru komnir til að vera, hvort sem okkur stuðningsmönnum líkar það betur eða verr. Það eina sem við getum gert er að vona að uppbygging fari að skila sér, og að við höldum í okkar bestu menn í sumar. Nú eru uppi háværar fréttir að Enzo sé farinn að horfa í kringum sig en maður vonar að sjálfsögðu að hann sannfærist um að vera um kyrrt. Ef okkur tekst að halda í lykilmenn og kaupa skynsamlega, þá gæti næsta tímabil vonandi litið betur út. Ég ætla aðeins að fá að misnota aðstöðu mína hérna inn á og segja í mjög stuttu máli hvað ég myndi vilja sjá gerast í sumar. Mín draumaráðning fyrir stjóra akkúrat núna er Cesc Fabregas. Hann er að gera mjög flotta hluti með Como á Ítalíu og var leikmaður undir mörgum góðum þjálfurum. Ég held að hann muni ná langt sem þjálfari og hann myndi einnig njóta virðingar leikmanna, en einhverjar fréttir að utan hafa fjallað um að Rosenior sé þegar farinn að missa klefann. Ég held að við ættum að leyfa Mike Penders að standa í markinu á næstu leiktíð. Þetta er tvítugur Belgi sem spilar með Strasbourg á láni á þessari leiktíð. Ég myndi síðan vilja sækja tvo varnarmenn frítt sem verða samningslausir í sumar, en það eru þeir Marcos Senesi hjá Bournemouth og hinn eini sanni Antonio Rudiger sem verður samningslaus hjá Real Madrid. Ef við gætum fengið þessa tvo frítt og selt þá Disasi, Badiashile og Tosin fyrir einhverja aura, þá væri það mjög góður bissness. Ég hef mikið verið að velta sóknarmönnunum fyrir mér. Það er nokkuð ljóst að Joao Pedro verður áfram, en svo er spurning hvað verður um þá Delap, Guiu og Jackson? Ég væri helst til í að sækja Julian Alvarez til Atletico Madrid, en ég geri mér fulla grein fyrir að það er mjög langsótt, en maður má láta sig dreyma. Það væri í raun ekkert mál að skrifa langan pistil um eigendurna, þjálfaramálin og leikmannapælingar, en það á kannski ekki allt heima í þessum upphitunarpistil fyrir Everton leikinn. Kannski hendir einhver í svoleiðis pistil núna í landsleikjahléinu sem er framundan? En nú er fókusinn á Everton leikinn. Það verður fróðlegt að sjá hvort Rosenior hræri í byrjunarliðinu eftir síðustu úrslit og hvort liðið sýni einhver viðbrögð. Það er einfaldlega ekki í boði annað en að mæta með rétt hugarfar og sækja þrjú stig. Ég ætla að spá byrjunarliðinu eftirfarandi. Sanchez verður í markinu. Malo Gusto verður vonandi búinn að jafna sig eftir veikindi og verður hægra megin í vörninni og Marc Cucurella í sinni stöðu vinstra megin. Í miðri vörninni verða þeir Tosin og Sarr. Á miðjunni verða Caceido og Enzo, og Palmer fyrir framan þá. Á köntunum verða Garnacho og Neto, og Joao Pedro upp á topp. Ég er bjartsýnn að eðlisfari og ætla að spá okkur 1-2 sigri með mörkum frá Pedro Neto og… Liam Delap!
















 
 
 

Comments


  • Grey Google+ Icon
  • Grey Twitter Icon
  • Grey LinkedIn Icon
  • Grey Facebook Icon

© 2023 by Talking Business.  Proudly created with Wix.com

bottom of page