top of page
  • Twitter Social Icon
  • Facebook Social Icon
Search

Sunderland gegn Chelsea

  • 2 days ago
  • 7 min read

Keppni: Enska úrvalsdeildin 38. umferð

Tími, dagsetning:  Sunnudagur 24. maí 2026 kl: 15:00

Leikvangur:  Ljósvellir, Sunderland

Dómari:   Andy Madley

Hvar sýndur:   Sýn Sport

Upphitun eftir:  Hafstein Árnason



Eftir allt kjaftæðið sem Chelsea hefur gengið í gengum á tímabilinu var ákveðin rótfesta sem hélt velli. Liðið sigraði Tottenham á heimavelli. Þetta er ljúf venja, eins reglubundin og þegar tré laufgast að vori. Á því tímaskeiði sem Chelsea hefur keppt við Tottenham í Úrvalsdeildinni frá 1992, hafa liðin mæst 34. sinnum. Chelsea hefur unnið í 21 sinn, liðin hafa gert 12 jafntefli og Tottenham hafa einungis unnið einu sinni, en það var 1-3 tapleikur árið 2018. Slík einstefna meðal þekktra klúbba þekkist varla. Chelsea hefur svo mikið pungtak á Tottenham. Allt frá því að eyðileggja tímabilið þeirra í "Battle of the Bridge" í 2-2 leiknum árið 2016, þar sem við gerðum út um titilvonir þeirra þegar Leicester vann deildina, þá höfum við raunverulega ýtt þessum klúbb á bjargbrúnina fyrir lokaumferðina. Ef Tottenham fellur um næstu helgi, þá má líta á þetta tímabil í sögulegu samhengi, sem er alls ekkert svo slæmt. Stúkan söng "Tottenham get battered...everywhere they go...Tottenham get battered...everywhere they go....everywhere they go...". Með hinn óreynda Callum McFarlane á hliðarlínunni, þá fór leikurinn 2-1 fyrir Chelsea. Markið frá Enzo var sérlega glæsilegt í fyrri hálfleik og það seinna frá Andrey Santos setti einn nagla í líkkistu Spurs, þrátt fyrir að Richarlison minnkaði muninn. Svo skal böl bæta með að benda á annað sagði einhver. Tímabilið hjá Chelsea er búið að vera hræðilegt en þessi leikur kætti stuðningsmenn vítt og breitt um heiminn. Það var hrein unun að sjá hörkuna og dugnaðinn í leikmönnum Chelsea. Þetta var það sem vantaði sárlega, sérstaklega eftir því sem leið á tíma Liam Rosenior. Áræðnin var kristölluð þegar Jorrell Hato tók skriðtæklingu inn í teig til að bjarga boltanum í horn, þegar sóknarmaður Tottenham var nánast kominn einn á einn við Sanchez. Heilt yfir, geggjaður leikur og fyrirtaks skemmtun. Núna er bara að vona að West Ham takist að bjarga sér og Everton hendi Tottenham fyrir ættarstapann í lokaumferðinni á Tottenham Stadium. Chelsea spilaði með Liam Delap í framlínunni allan leikinn og framlagið sem hann var þekktur fyrir var að kjálkabrjóta Djed Spence með fólskulegu olnbogaskoti. Vonandi var þetta síðasti leikur Liam Delap í Chelsea treyju, því eitt mark í 27 leikjum í Úrvalsdeildinni segir allt sem segja þarf.



Af öllum þeim leikmönnum sem hafa klætt sig í treyju númer 9 hjá Chelsea er Liam Delap sennilega sá lélegasti. Ég ætla þó að vera sanngjarn og segja að hann passar ekki í leikstíl Chelsea. Hann kom frá Ipswich og var eflaust ágætur skyndisóknarframherji... en alls ekki á Úrvalsdeildar kalíberi. Við sjáum líka að Enzo forðast að senda boltann á hann, vitandi þess að Delap myndi missa boltann til andstæðings. Hann er að mínu mati flopp tímabilsins hjá Chelsea. Gefðu mér grátandi Alvaro Morata frekar til að spila upp á topp, eða lánlausan Franco Di Santo eða Romelu Lukaku nýkominn úr skjallviðtali við ítalskan fjölmiðil. Þetta er einn ömurlegasti leikmaður sem hefur klætt sig í bláu treyjuna og ég vona sannarlega að hann verði seldur frá félaginu í sumar, og Joe Shields, þessi leikmannagreinandi frá Manchester City sendir frá sér formlega afsökunarbeiðni. Raunar má segja að leikmannagluggi síðasta sumars hafi verið vel undir væntingum. Við fengum Joao Pedro þó á 55 milljónir punda frá Brighton sem stóð undir væntingum og verður væntanlega leikmaður tímabilsins. Jorrell Hato kom fyrir 35.5 milljónir punda frá Ajax. Miðað við svona ungan leikmann, þá hefur hann einnig staðist væntingar, verandi rétt rúmlega tvítugur, þá fyllist ég bjartsýni. Dario Essugo kom á 18 milljónir en var meiddur lengi framan af tímabili. Jamie Gittens kom fyrir 48.5 milljónir punda - en náði aldrei að sýna sitt rétta andlit og meiddist alvarlega um mitt tímabil. Við gefum honum aðeins meiri slaka, en upphæðin sem var reidd fram fyrir þann ágæta pilt endurspeglar ekki það sem við höfum séð á vellinum. Vinstri kanturinn hefur verið algjör sorgarsaga, því Alejandro Garnacho kom frá Man United fyrir 60 milljónir punda. Eitthvað sem átti að heita kjarakaup, en einu kaupin í þessu er staðreyndin að við keyptum köttinn í sekknum. Sá argentínski skoraði einungis gegn neðrideildarliðum í bikarkeppnum og kom með lítið annað að borðinu en að tapa boltum ítrekað á tímabilinu. Ekki veit ég hvernig klúbburinn kemur til með að leysa þetta mál, en það er morgunljóst að staðan með vinstri kantinn er í hers höndum. Mudryk í banni, og svo Gittens og Garnacho. Tæpar 200 milljónir punda ...nánast sturtað niður í klósettið. Þetta er ástæðan fyrir því að Jesse Derry fékk tækifæri til að spreyta sig og jafnvel hefði verið betur gert að fókusera á þann hæfileikaríka dreng. Þegar við skoðum söguna, og þá ofuráherslu sem var lögð á vinstri kantinn í aðdraganda tímabilsins, frekar en að kaupa annan miðvörð eins og Enzo Maresca bað sérstaklega um, þá færist sökin mikið til á stjórnendur klúbbsins. Paul Winstanley og Laurence Stewart ásamt eigendum væntanlega neituðu Maresca um annan miðvörð. Við höfum fjallað um miðverðina í vetur, en það er ljóst að að minnsta kosti tveir þurfa að finna sér nýjan klúbb, helst þrír. Það er kannski ekki að undra að allt fór í rugl þarna í nóvember og desember, ef við horfum til heildar samhengis. Hvað getur það verið gæti einhver spurt. Það er staðfest að Pep Guardiola er að hætta hjá Manchester City eftir áratug af farsælum ferli. Þessi ákvörðun var víst tekin einhvern tímann fyrr í vetur, en haldið leyndu allt þar til síðastliðna helgi. Manchester City voru þegar búnir að ákveða að Enzo Maresca myndi taka við keflinu af Pep, sem Fabrizio Romano staðhæfir. Þetta setur hlutina í nýtt samhengi og útskýrir kannski, afhverju Enzo sagði svona skyndilega upp starfinu sínu hjá Chelsea og gjörsamlega stútaði tímabilinu. Tek þó sérstaklega fram að undirritaður leist vel á Rosenior ráðninguna. Hún leit ágætlega út á blaði, í raun var þetta skelfilegur afleikur, en kannski ágætur "butterfly effect". En núna hefur stjórn klúbbsins ráðið Xabi Alonso, öllum stuðningsmönnum Liverpool til mikils ama. Í þokkabót fær Xabi Alonso undirbúningstímabil með leikmönnum sem fengu svakalega höfnun frá landsliðsþjálfurum Brasilíu og Englands. Cole Palmer, Levi Colwill, Andrey Santos og Joao Pedro verða ekki með á HM. Ef það kveikir ekki í eldmóðinum, þá veit ég ekki hvað. Það verður mjög spennandi að sjá hvað gerist í sumar, og hvernig Xabi Alonso kemur til með að stilla upp Chelsea liðinu. Það er ljóst að Chelsea á engan vinstri vængbakvörð ef hann ætlar að spila þriggja manna varnarlínu, líkt og hann gerði með Bayern Leverkusen, en hann spilaði með fjögurra manna línu hjá Real Madrid. Heilt yfir fær hann stóran leikmannahóp til að vinna með og við getum búist fastlega við því að Geovany Quenda, Mike Penders, Emanuel Emegha og líklega Valentin Barco koma til liðsins. Þó hefur það verið gefið út að Chelsea ætli að kaupa þrjá reynda leikmenn.


Það má einnig búast við því að margir leikmenn verði settir á sölulista, en líkast til verða það Filip Jörgensen, Wesley Fofana, Beniot Badiashile, Tosin Adarabayo, Liam Delap, vonandi Garnacho og Marc Guiu líka. Marc Cucurella er algjört spurningamerki í ljósi þess hvernig hann kemur til með að passa í leikstíl Alonso, og bæði Barcelona og Aletico Madrid eru sögð hafa áhuga á honum. Miðvörður, vinstri bakvörður, eða vinstri kantmaður og framherji væri ídeal. Enzo Fernandez er sagður fá launahækkun og framlengingu á samningi upp í önnur átta ár eða svo, sem gerir hann ósnertanlegan fyrir Real Madrid og Manchester City. Xabi Alonso hefur nóg fyrir stafni á komandi sumri, sér í lagi þar sem hann verður til borðs þegar ákvarðanatökur um leikmenn eru á dagskrá.


Framundan er leikur við Sunderland á útivelli. Það er evrópusæti í húfi fyrir Chelsea. Liðið á séns á því að komast í Evrópudeildina og Sambandsdeildina. Tap í leiknum gæti þýtt að liðið verði utan Evrópu á næsta tímabili, en í ljósi þess hvað Sunderland eru komnir í andlegt sumarfrí, ættum við að ganga nokkuð bjartsýnir til leiks. Af öllum þessum kostum væri heppilegast að standa utan Sambandsdeildarinnar þar sem við höfum þann bikar í stellinu, og sigur í keppninni gefur lítið annað. Að vera utan Evrópu er heppilegur fókus, líkt og sannaðist með Manchester United á þessu tímabili, en sigur í Evrópudeild garanterar sæti í Meistaradeild að ári liðnu. Lokaumferðin ætti því að vera nokkuð spennandi í þessu tilliti, svo að sjálfsögðu höldum við með West Ham frekar en Spurs. Þetta verður því síðasti leikur McFarlane í bili, en hann verður þó í teymi Xabi Alonso á næsta tímabili. Hvernig stillir hann upp? Ég giska á að Sanchez standi á milli stanganna á meðan Marc Cucurella verður í vinstri bakverði. Levi Colwill og Trevoh Chalobah miðverðir. Reece James verður hægri bakvörður, sennilega í 45 mínútur. Caicedo og Andrey Santos verða á miðjunni. Cole Palmer á hægri kanti, Pedro Neto á vinstri og Enzo verður í holunni. Shim Mhueka verður vonandi strikerinn því ég vil ekki sjá Liam Delap nálægt liðinu. Vona þó að Joao Pedro verði leikfær. Hvernig fer leikurinn? Við ætlum að segja að leikurinn fari 2-0 þar sem Vottur Chalobah og Reece James komi með óvænt mörk.


Að lokum vil ég þakka ykkur í Chelsea samfélaginu á Íslandi samfylgdina á þessu tímabili, fyrir allan lesturinn og umræðurnar sem sköpuðust í kjölfar pistlaskrifanna. Einnig fyrir mætingu á viðburði í Reykjavík og á Akureyri. Sérstakar þakkir fá Þráinn Brjánsson, Björgvin Óskar Bjarnason, Guðni Reynir Þorbjörnsson, Bjarni Freyr Bernhöft Reynisson og Snorri Clinton fyrir pistlaskrifin á tímabilinu. Ykkar vinna er ómetanlegt framlag. Einnig vil ég þakka Chelsea klúbbnum á Íslandi fyrir að halda utan um gott samstarf á tímabilinu. Benfica leikurinn á Stamford Bridge er manni kær minning, þótt flugfélagið Play gerði okkur mikinn grikk degi fyrir leik. Ég skora svo sérstaklega á Stefán Martein, Jóhann Má Helgason og Ómar Frey Sævarsson til að vera með eitt alvöru Blákast í lok tímabils. Það er komið nóg af þessari Liam Rosenior stemmningu í podcastinu. Hlakka til næsta þáttar. Takk kærlega fyrir mig, Hafsteinn Árnason

 
 
 

Comments


  • Grey Google+ Icon
  • Grey Twitter Icon
  • Grey LinkedIn Icon
  • Grey Facebook Icon

© 2023 by Talking Business.  Proudly created with Wix.com

bottom of page