top of page
  • Twitter Social Icon
  • Facebook Social Icon
Search

Chelsea - Tottenham

  • 5 hours ago
  • 4 min read

Keppni: Enska úrvalsdeildin 37. umferð

Tími, dagsetning:  Þriðjudagur 19. maí 2026 kl: 19:15

Leikvangur:   Stamford Bridge, Lundúnir

Dómari:   Stuart Attwell

Hvar sýndur:   Sýn Sport

Upphitun eftir:  Guðna Reyni Þorbjörnsson



Xabi Alonso mun taka við Chelsea í sumar! Það er vissulega tilbreyting að hefja upphitunarpistil á jákvæðum fréttum úr okkar herbúðum, sérstaklega eftir tap í bikarúrslitaleik. En þessar fréttir gera biðina eftir næsta tímabili töluvert meira spennandi og væntingarnar hugsanlega aðeins meiri.Það er nokkuð ljóst að við stuðningsmenn Chelsea fórum fyrir löngu í þann gír að bíða eftir að þessu tímabili myndi ljúka, og við erum svosem enn þar. En ráðning Xabi Alonso gefur manni samt ákveðna bjartsýni fyrir næstu leiktíð. Auðvitað hafa einhverjir efasemdir um að hann sé enn ekki með nægilega reynslu, en ef maður skoðar ferilinn hingað til þá lítur hann samt ansi vel út.


Alonso hóf þjálfaraferil sinn hjá uppeldisfélagi sínu Real Sociedad eftir glæsilegan leikmannaferil með Liverpool, Real Madrid og Bayern München, auk þess að vera lykilmaður í sigursælu landsliði Spánar sem varð bæði heims- og Evrópumeistari. Hann tók við B-liði Real Sociedad árið 2019 og stýrði því með góðum árangri til ársins 2022. Þá tók hann við Bayer Leverkusen sem var í miklum vandræðum haustið 2022. Hann umbreytti liðinu hratt og kom þeim upp í sjötta sæti Bundesligunnar á sínu fyrsta tímabili. Árið eftir spilaði Leverkusen stórkostlegan fótbolta og fór taplaust í gegnum bæði deild og bikar í Þýskalandi þar sem liðið vann tvennuna. Eina tapið á tímabilinu kom gegn Atalanta í úrslitaleik Evrópudeildarinnar. Leverkusen skoraði 89 mörk og endaði með 90 stig í deildinni, sem er félagsmet á báðum vígstöðvum. Á sínu þriðja tímabili endaði Alonso með Leverkusen í öðru sæti deildarinnar. Samtals stýrði hann liðinu í 140 leikjum þar sem hann vann 87, gerði 34 jafntefli og tapaði aðeins 19 leikjum. Sumarið 2025 tók hann síðan við Real Madrid. Þar fékk hann aðeins 34 leiki til að sanna sig, en í þeim vann hann 24, gerði fjögur jafntefli og tapaði sex leikjum. Það gaf honum rúmlega 70% sigurhlutfall, en það er tölfræði sem flestir þjálfarar myndu glaðir þiggja myndi ég segja. Einhver innanbúðarvandamál virðast þó hafa orðið til þess að hann fékk ekki lengri tíma hjá félaginu og sögur segja að leikmenn með of stór egó hafi haft aðeins of mikil áhrif. Hvað sem er til í því þá er Xabi Alonso gríðarlega spennandi þjálfari og ég tel þetta vera bestu ákvörðun sem Chelsea hefur tekið síðan félagið kvaddi Roman Abramovich. Það sem gerir þessa ráðningu líka áhugaverða er að Alonso kemur inn sem knattspyrnustjóri en ekki bara yfirþjálfari. Það þýðir einfaldlega að hann fær meira að segja varðandi uppbyggingu hópsins, kaup og sölur, í stað þess að einblína eingöngu á æfingavöllinn. Ég er allavega mjög spenntur fyrir þessari ráðningu og hlakka til að sjá hvað hann gerir við leikmannahópinn í sumar. Xabi mun hafa þorra leikmanna strax til taks á undirbúningstímabilinu, en einhverjir verða lengur frá vegna heimsmeistaramótsins sem fer fram í sumar. Mike Penders hefur verið þegar tilnefndur í lokahóp Belgíu og Malo Gusto er í hóp Frakka. Joao Pedro og Andrey Santos eru sem stendur hóp Brasilíu, en lokahópurinn verður tilkynntur í dag. Búist er fastlega við því að Enzo Fernandez verði í hóp Argentínu, en Alejandro Garnacho er þó stærra spurningamerki, þó hann sé í úrtakshóp. Moises Caicedo verður í hóp hjá Ekvador og Jorrell Hato er líklegur í þann hollenska. Nico Jackson og Mamadou Sarr verða sennilegast með Senegal og svo er það stóra spurningin með enska hópinn. Thomas Tuchel setti Reece James, Trevoh Chalobah, Cole Palmer og Levi Colwill í 55 manna úrtakshóp til FIFA. Sá þýski mun skera það niður í 26 manna hóp í lok mánaðar. Stærsta spurningamerkið er Colwill en næstu leikir Chelsea muna skera úr því hvort hann komist á HM.



En þá að leiknum á þriðjudagskvöldið. Chelsea tekur á móti erkifjendunum í Tottenham í síðasta heimaleik tímabilsins. Fyrir nokkrum vikum horfði maður á þennan leik á dagatalinu og vonaði að þetta yrði kvöldið þar sem við myndum senda Spurs niður í Championship deildina. En samborgarar okkar í West Ham virðast þessa dagana hafa meiri áhuga á að falla heldur en Tottenham, því miður. Spurs eiga möguleika á að bjarga sér ef þeir ná í úrslit á Stamford Bridge, en við megum alls ekki leyfa þeim það, ekki á okkar heimavelli.  

Chelsea kemur inn í leikinn eftir 0-1 tap gegn Manchester City í úrslitaleik FA bikarsins og þrátt fyrir tapið geta leikmenn Chelsea gengið stoltir frá þeim leik. Þeir stóðu fyllilega í City og hefðu auðveldlega getað stolið sigrinum með smá heppni. En eins og svo oft áður falla smáatriðin með stóru liðunum í svona leikjum og í þetta skiptið brostu lukkudísirnar við ljósbláa liðinu frá Manchester.

Það er hægt að ræða vítadóma fram og til baka, en leikmenn Chelsea geta líka kennt sjálfum sér um. Liðið var einfaldlega of lélegt við að láta vaða á markið. Það hefur verið ákveðið feimnismál hjá okkur allt tímabilið að skjóta á helvítis markið og vonandi verður það eitt af því fyrsta sem Alonso lagar. Með tapinu gegn City dvínuðu Evrópumöguleikar Chelsea, en þeir eru ekki alveg horfnir.


Fyrir leikinn gegn Spurs situr Chelsea í 10. sæti með 49 stig, en með sigri getur liðið farið upp í 8. sæti með 52 stig. Það sæti gefur umspilsrétt í Sambandsdeildinni. Ég veit. Hún er kannski ekki fallegasta stelpan á dansgólfinu…en Evrópubolti er Evrópubolti. Chelsea yrði þá aðeins stigi á eftir Brighton í sjöunda sæti sem gefur þátttökurétt í Evrópudeildinni. En til að halda þessum draumi lifandi þarf eitt einfalt verkefni að klárast fyrst. Að vinna Tottenham á Stamford Bridge. Og ef þið spyrjið mig, þá á það alltaf að vera skyldusigur, sama hvar liðin eru stödd í deildinni.  Ég veit ekki betur en að aðeins Gittens og Estevao séu frá í leikmannahópi okkar og því ætti Chelsea að geta stillt upp mjög sterku liði. Ég ætla að gerast svo djarfur að spá því að þetta verði sama byrjunarlið og gegn City í bikarnum. Chelsea vinnur síðan að sjálfsögðu leikinn. Það verður 1-0 í miklum baráttuleik þar sem Marc Cucurella skorar sigurmarkið.































 
 
 

Comments


  • Grey Google+ Icon
  • Grey Twitter Icon
  • Grey LinkedIn Icon
  • Grey Facebook Icon

© 2023 by Talking Business.  Proudly created with Wix.com

bottom of page