top of page
  • Twitter Social Icon
  • Facebook Social Icon
Search

Chelsea gegn PSG

  • 11 minutes ago
  • 5 min read

Keppni: Meistaradeild Evrópu, 16 liða úrslit

Tími, dagsetning: Þriðjudagur 17. mars  kl: 20:00

Leikvangur: Stamford Bridge

Dómari: Slavko Vincic

Hvar sýndur: Viaplay Iceland

Upphitun eftir: Bjarna Reynisson



Nú er að duga eða drepast í deild þeirra bestu. Mér var nokkuð skemmt eftir þriðjudags leikina í Meistaradeildinni þegar ég horfði á Atletico Madrid flengja Tottenham. Manni fannst það hálf skrítið að þjálfari þeirra hafi ákveðið að þetta skyldi vera leikurinn þar sem að Kinský kallinn fengi loks að spreyta sig og fór það ekki betur en að hann gaf tvö mörk og var í kjölfarið kippt útaf. Það var ekki fyrr en daginn eftir PSG leikinn sem að það rann upp fyrir mér: Vá, mínir menn töpuðu jafn illa eins og Tottenham, 5 - 2. Rosenior sá þessa atburðarás og hugsaði með sjálfum sér “haltu á bjórnum mínum og sjáðu þetta” hann ákvað svo í kjölfarið að Jörgensen skyldi standa á milli stanganna gegn PSG. Mér var alls ekki skemmt eftir þann leik. Að spila út frá markmanni er eitt en þú getur ekki búist við að markmaðurinn þinn spili eins og miðjumaður en það var nákvæmlega það sem Jörgensen átti að gera gegn PSG. 64 snertingar, 56 sendingar þar af 40 heppnaðar og tvö dripl sem að heppnuðust bæði. Eina sem hann gerði ekki var aðalstarfið sitt, sem er að hindra mörk. Ein mistök sem að leiddu að marki og slapp vel með að þau voru ekki tvö. Hindruð mörk -3,21, fékk á sig átta skot en átti aðeins þrjár vörslur. Lak eins og sigti enda voru vænt mörk hjá PSG úr þessum færum ekki nema 0,9. Framundan er því vægast sagt brekka á heimavelli gegn þeim frönsku.



Það hefur sýnt sig að varnarlínan okkar er ekki nógu sterk. Ég tel að óöryggið byrji hjá markmanninum en stress og vandræðagangur þar smitar út frá sér upp í varnarmennina. Fofana virkar stundum latur og hefði hreinlega getað komið í veg fyrir markið sem við fengum á okkur gegn Newcastle um helgina með því einu að hlaupa til baka. Er það of mikið að ætlast til frá leikmanni sem er á 200 þúsund pundum á viku, smá vinnusemi. Dýptin á bekknum er gott sem engin þegar kemur að miðvörðum en Tosin og Badiashile mættu að mínu mati yfirgefa klúbbinn í sumar. Rosenior hafði þá á bekknum umfram Josh Acheampong gegn Newcastle en þrátt fyrir að þeir séu hávaxnir þá veita þeir ekkert sérstaklega mikið öryggi, jafnvel í föstum leikatriðum og þess þá heldur í opnum leik. Einnig súrt að sjá Acheampong utan hóps eftir að klúbburinn lýsti yfir að ekki skyldi keyptur annar miðvörður til þess að raska ekki þróun hans og til að passa að það væri pláss fyrir hann í hópnum. Eftir öll þau viðskipti sem að Chelsea hefur gert síðan BlueCo keypti klúbbinn er gjörsamlega galið hvað hópurinn er þunnur. Til rökstuðnings, nú er Reece James því miður aftur kominn á meiðsla listann og verður frá næstu vikurnar. Malo Gusto er veikur og því er eini valmöguleikinn okkar að spila Acheampong í hægri bakverðinum. Fofana og Chalobah geta leyst þetta hlutverk líka en það er ekki þeirra náttúrulega staða.



Mér finnst Robert Sanchez vera með brothætt sjálfsöryggi. Þegar hann er í stuði er hann magnaður en hann virðist þurfa fullt traust frá stjóranum sínum til að halda sjálfstraustinu. Maresca gaf honum öryggi, ekki bara með því að halda áfram að spila honum meðan hann var að byggja upp sjálfsöryggið, þegar hann gaf manni hjartaáfall einu sinni til tvisvar í leik með sjúkrahúsasendingum og slæmri dreifingu. Heldur líka með því að víkja örlítið frá hugmyndafræðinni að spila eingöngu út frá markmanninum. Hann leyfði honum að lúðra boltanum upp völlinn þegar hann taldi þörf á því og bakkaði það upp með uppstillingunni þar sem að annar hvor bakvörðurinn invertaði inn á miðjuna og hjálpaði að stjórna miðsvæðinu.


Rosenior hefur klárlega ekki sömu trúnna á Sanchez enda búinn að droppa honum eða “búa til samkeppni” um markvarðar stöðuna og ákveðið að meta það leik fyrir leik hvort að Sanchez eða Jörgensen byrji. Ég man að Arteta gerði sambærilega tilraun hjá Arsenal þegar að Aaron Ramsdale var aðalmarkmaður þeirra. Það gjörsamlega skemmdi sjálfstraustið hjá Ramsdale sem að missti stöðuna alfarið til David Raya. Rótering á markvörðum virkar ekki, þú ert með aðalmarkvörð sem að þú treystir í mikilvægustu leikjunum og vara markvörð sem fær bikarkeppninar og staka leiki í Evrópu.


Taktíkin hjá Rosenior styður einnig ekki mikið við markmanninn og vörnina. Við samanburð á varnartölfæði Chelsea í úrvalsdeildinni undir Maresca (25/26 tímabilið) og undir Rosenior kemur í ljós að síðan Rosenior tók við þá fáum við á okkur 6,2 skot í leik með vænt mörk fengin á okkur upp á 1,72 í leik en undir Maresca fengum við aðeins á okkur 4,8 skot í leik með vænt mörk upp á 1,36. Þá hefur tæklingum og inngripum (interceptions) einnig fjölgað undir Rosenior. Klárlega orðnir brothættari og frammistöðurnar hreinlega ekki verið nógu góðar.


Stjóri Chelsea þarf að hlýða bæði læknateyminu og stjórninni varðandi liðsuppstillinguna. Læknateymið hjálpar með álagsstýringu, til að vernda leikmenn klúbbsins, sem er jákvætt. Aðkoma frá stjórninni virðist hins vegar eingöngu vera til að vernda markaðsvirði leikmanna, sem eru mögulega á útleið, og það er óásættanlegt. Ef að leikmönnum í þeirri stöðu grunar að þeir séu á útleið eða hefur hreinlega verið tjáð það frá stjórninni eða þjálfaranum, hvernig er hægt að treysta á að þeir muni berjast með blóði og svita fyrir klúbbinn? 


Það er ekki mikið til að vera jákvæður yfir fyrir þennan leik. Chelsea hefur ekki haldið hreinu undanfarna sex leiki, vígið Stamford Bridge stendur höllum fæti. Í fyrsta sinn síðan 2023 hafa þar verið leiknir þrír leikir í röð án sigurs. Reece James meiddur, staðan okkar í Úrvalsdeildinni brothætt og langt um öruggt að við endum í topp fimm. Eitt jákvætt er að Pedro Neto fékk enga refsingu fyrir að hrinda boltastrák PSG í uppbótartíma fyrri leiksins. Þá eru Jamie Gittens og Estevao einnig heilir og gætu komið við sögu í leiknum. Eftirstöðvarnar á uppfærðum meiðslalista okkar manna eru þá James, Colwill og Jörgensen, sem virðist hafa meiðst á nára í hasarnum í París. Að því sögðu liggur það augum uppi að Sanchez standi vaktina í markinu, ég myndi starta Acheampong í hægri bakverðinum með Cucurella vinstra megin. Miðvarðapar skipað af Chalobah og Sarr, held að Fofana hafi gott af því að tylla sér á bekkinn og hugsa sinn gang. Caicedo og Lavia á miðsvæðinu með Enzo þar fyrir framan. Pedro Neto og Cole Palmer á sitthvorum vængnum og Joao Pedro uppi á topp.


Þetta verður líklega okkar síðasta viðureign í Meistaradeildinni á þessu tímabili en markmið liðsins ætti að vera sigur í þessum leik, óháð hvort að það skili okkur áfram í átta liða úrslitin. Eftir ágætis byrjun hjá Rosenior hefur honum mistekist að sækja úrslit gegn stóru strákunum og réttilega vangaveltur á reiki um ágæti hans sem stjóra Chelsea. Ég spái því að leikurinn fari jafntefli, 2 - 2. Caicedo og Joao Pedro með mörkin.





 
 
 

Comments


  • Grey Google+ Icon
  • Grey Twitter Icon
  • Grey LinkedIn Icon
  • Grey Facebook Icon

© 2023 by Talking Business.  Proudly created with Wix.com

bottom of page