Chelsea gegn Port Vale
- 2 hours ago
- 4 min read
Keppni: Enska bikarkeppnin - fjórðungsúrslit
Tími, dagsetning: Laugardagur 4. apríl kl: 16.15
Leikvangur: Stamford Bridge, Lundúnir
Dómari: Farai Hallam
Hvar sýndur: Viaplay
Upphitun eftir: Hafstein Árnason

Ástandið á Chelsea hefur sjaldan verið eins svart. Vonleysið sem einkennir andrúmsloftið minnir ákaflega mikið á tímann þegar Graham Potter var í tómu tjóni með risavaxinn leikmannahóp og engin leið virtist vera út úr ógöngunum. Everton vann 3-0 sigur á Chelsea á heimavelli sínum, Hill Dickinson Stadium, Beto skoraði tvö mörk (33. og 62. mínútu) og Iliman Ndiaye bætti við stórkostlegu langskoti í 76. mínútu. Everton spilaði frábærlega, varnarmennirnir voru traustir og sóknin klínísk – þetta var ein sterkasta frammistaða þeirra á tímabilinu. Frammistaða Chelsea var hins vegar algjörlega vonlaus. Liðið gaf mörkin auðveldlega, varnarleikurinn hrundi og sóknin skilaði engu. Þetta var fjórða tap í röð fyrir liðið og enn ein ömurleg sýning sem sýnir hversu djúpt það hefur sokkið. Liam Rosenior, sem tók við stjórninni í janúar, virðist algerlega yfirbugaður. Rosenior kallaði þetta mestu vonbrigða úrslit síns tíma – og ekki að undra. Chelsea situr nú í miðri töflunni, Evrópusætin fjarlægjast hratt og þrýstingurinn á Rosenior er orðinn óbærilegur.
Ekki bætti svo við að Enzo Fernandez varpaði ákveðnum skugga á framtíð sína með því að láta í ljós þá skoðun að hann gæti vel hugsað sér að búa á Spáni, og enn fremur að Madríd minnti hann á Buenos Aires. Eina sem það hefur gert er að blása byr undir þær sögusagnir að hann horfir til þess að spila fyrir Real Madrid. Við vitum einnig af því að Florentino Perez og félagar hafi einnig áhuga á Enzo. Við minnum þó á að samningur hans við Chelsea rennur út 2032. BlueCo hefur því yfirhöndina, en hver verður fórnarkostnaðurinn af því að gera einn helsta leiðtoga liðsins óánægðan?

Marc Cucurella var einnig í mjög áhugaverðu viðtali við The Athletic. Cucurella gagnrýndi stefnu Chelsea opinberlega að það vantaði reyndari leikmenn í hópinn. Hann sagðist skilja það þegar klúbburinn væri að kaupa unga og efnilega leikmenn, en sagði það helstu ástæðuna fyrir því hversu illa fór fyrir PSG í þessum tveimur einvígum. Að liðið væri ekki með nógu marga þaulreynda leikmenn sem væru vanir krefjandi aðstæðum í Meistaradeildinni. Hann sagði einnig frá því að brotthvarf Enzo Maresca hafi verið reiðarslag fyrir leikmannahópinn. Það hefði tekið tíma að drilla liðið eftir hans hugmyndafræði og nefndi sérstaklega undirbúningstímabilið. Samhliða því kom Liam Rosenior inn með sínar hugmyndir, en það væri enginn tími til að drilla þær áherslur inn í liðið, nema í sjálfum leikjunum, sem útskýrir að hluta til hversu brokkgengt gengi liðsins hefur verið. Cucurella bar þó blak af Rosenior fyrir hans nálgun og hrósaði honum fyrir það hversu vel hann reynir að tengjast leikmönnum persónulega.
Í ljósi þess að Chelsea hefur tapað fjórum leikjum í röð og unnið fjóra af síðustu 12, er auðvelt að skilja hvað þorri aðdáenda Chelsea vilja Liam Rosenior burt. Matt Law, blaðamaður Daily Telegraph, sem er hvað best tengdur stjórnendum Chelsea telur engar líkur á því að Rosenior verði látinn fara fyrir lok tímabilsins, jafnvel þótt liðið komist ekki í Meistaradeildina á næsta tímabili. Stjórnendur Chelsea munu gefa Rosenior afslátt af því þar sem hann byrjaði á miðju tímabili, og til þess að gefa gott mat á aðstæðum þurfa knattspyrnuþjálfarar að lágmarki 50-60 leiki. Það eina sem gæti kollvarpað þessu, er að ástandið hjá aðdáendum verði það slæmt að aðstæður krefjist breytinga. Chelsea aðdáendum tókst sannarlega að gera það þegar Rafa Benítez var í heita sætinu.
Eftir kærkomið frí í landsliðsfótbolta þar sem allir leikmennn fá tækifæri til að kúpla sig aðeins frá vandamálum Chelsea, kemur að páskahelginni þar sem liðið leikur í þeirri elstu og virtustu. Liðið harkaði í gegnum 64., 32. og 16. liða úrslitin gegn Charlton, Hull og Wrexham, þá er röðin komin að Port Vale. Þetta er hinn klúbburinn sem er staðsettur við Stoke-on-Trent ánna. Þessi skipaskurðarklúbbur, einnig þekktur sem "The potters", líkt og nágrannar þeirra í Stoke, vísar til postulíns- og keramikiðnaðar á svæðinu sem má muna sinn fífil fegurri. Liðið situr á botni League 1, fjórtán stigum frá öruggu sæti, þannig að fall niður í League 2 blasir við, þaðan sem þeir komu tímabilið á undan. Liðið hefur á einhvern ótrúlegan hátt komist í fjórðungsúrslitin í bikarkeppninni. Þeir slógu Sunderland út í 16. liða úrslitum og þar áður Bristol City og Fleetwood town. Allir þessir leikir áttu það sameiginlegt að leikar enduðu 1-0. Það kannski gefur ákveðna vísbendingu um hvernig uppleggið þeirra er í keppninni. Liðið stillir yfirleitt upp í 5-4-1 og flest mörkin koma frá varnarmönnum. Markahæstu menn í liðinu eru með heil þrjú mörk. Þetta er því kærkomið tækifæri fyrir Chelsea til að snúa við ömurlegu gengi og koma sigrum á formið. Framundan er strembið prógramm og líkur á bikar er í þessari keppni.
Meiðslalistinn hjá Chelsea er töluverður, en þó hefur enginn reporterað meiðsli í landsleikjahléinu. Benoit Badiashile er tæpur vegna veikinda, en Gittens er ekki enn klár vegna meiðsla aftan í læri. Jörgensen er sagður vera meiddur í nára og ekki búist við honum þar til eftir nokkrar vikur. Sama má segja um Reece James. Trevoh Chalobah verður frá þar til Maí ásamt Levi Colwill, þó sá síðarnefndi er byrjaður að æfa og tekur líkast til einhverja leiki með unglingaliðunum áður en langt um líður. En hvernig stillir Rosenior upp liðinu? Það þýðir ekkert að mæta með einhver varalið hérna og hætta á það að detta út gegn botnliði League 1. Robert Sanchez verður í markinu, með Malo Gusto í hægri bakverði, Marc Cucurella í vinstri. Miðverðir verða líkast til Mamadou Sarr og Wesley Fofana, þó svo við útilokum ekki Hato fyrir Sarr. Miðjan verður Moises Caicedo og Romeo Lavia með Enzo í holunni. Pedro Neto verður vinstra megin og Cole Palmer hægra megin með Joao Pedro uppá topp. Það er óskandi að Chelsea nái að loka þessum leik snögglega með 2-3 marka forskoti á innan við klukkutíma, en miðað við brasið, þá er ekkert útilokað. Port Vale eru líklegir til þess að parkera rútunni á teignum og þá reynir á. Eins það að geta fengið mark úr skyndisókn eða horni, eins og við erum vanir að fá á okkur. En andskotinn hafi það, Chelsea tekur þennan leik 3-0. Joao Pedro, Cole Palmer og Estevao með mörkin.
Áfram Chelsea!



Takk fyrir fróðlegan pistil.
3-0
lengi má vona
eftir góðu gengi
en svona svona...