Flamengo gegn Chelsea í CWC
- Jóhann Már Helgason
- 9 hours ago
- 3 min read
Keppni: Heimsmeistarakeppni félagsliða FIFA
Tími, dagsetning: Föstudagur 20. júní kl: 18:00
Leikvangur: Lincoln Finacial field, Philadelphia, Bandaríkjunum
Dómari: Ivan Barton (El Salvador)
Hvar sýndur: DAZN (da zone)
Upphitun eftir: Guðna Reyni Þorbjörnsson

Á föstudaginn kl. 18:00 að íslenskum tíma mætum við brasilíska liðinu Flamengo í Club World Cup á Lincoln Financial Field í Philadelphia. Völlurinn tekur 67.594 manns, og það er spurning hvort stúkurnar verði jafn tómar og í leiknum gegn Los Angeles, en við vonum auðvitað ekki. Flamengo unnu Espérence Tunis 2-0 í síðasta leik, sem þýðir að Chelsea og Flamengo sitja hnífjöfn í efstu tveimur sætunum í D riðli, með sömu markatölu. Sigurliðið í þessum leik fer því langt með að tryggja sig áfram úr riðlinum, og við stefnum auðvitað á að gera það.
Flamengo kemur frá Rio de Janeiro og er sigursælasta lið Brasilíu á þessari öld. Þeir eru líka langvinsælasta liðið í landinu, en samkvæmt Wikipedia halda um 47 milljónir með þeim, sem er tæpur fjórðungur brasilískra fótboltaáhugamanna. Ef við lítum snöggt á leikmannahóp þeirra, þá stendur eitt nafn strax upp úr. Ítalski Brassinn og okkar fyrrverandi félagi, Jorginho, gekk til liðs við Flamengo í vor. Það verður spennandi að sjá hvort hann fái einhverjar mínútur gegn okkur. Aðrir þekktir leikmenn eru t.d. Danilo, sem átti farsælan feril í Evrópu, og Alex Sandro, sem lék með Juventus um árabil.
En ef við snúum okkur að Chelsea, þá unnum við Los Angeles 2-0 í síðasta leik, með glæsilegu marki frá Pedro Neto og öðru frá Enzo Fernández, eftir flotta stoðsendingu frá nýja manninum Liam Delap (sem ég er virkilega ánægður með að við keyptum). Enzo er greinilega farinn að taka fleiri hlaup inn í teig og skila reglulega mörkum, sem er virkilega jákvætt. Ég verð að viðurkenna að ég sá ekki leikinn, aðeins mörkin og lesið stutta umfjöllun. Því er smá erfitt fyrir mig að spá nákvæmlega fyrir um hvernig Maresca stillir liðinu upp gegn Flamengo. Ég reikna samt ekki með miklum breytingum, við héldum hreinu og unnum leikinn. Kannski kemur Enzo inn í byrjunarliðið fyrir Lavia, en annars býst ég við svipaðri uppstillingu. Við eigum þó einnig von á því að Andrey Santos fái nú einhverjar mínútur til þess að sýna hvað í honum býr, eftir frábært tímabil í Ligue 1.
Nú bárust fréttir af því í vikunni að Mykhailo Mudryk hafi verið kærður af enska knattspyrnusambandinu. Ef hann verður fundinn sekur gæti hann átt yfir höfði sér allt að fjögurra ára bann. Þetta er auðvitað mjög leiðinlegt mál, og maður vonar að hann losni við refsingu, en staða hans hjá Chelsea virðist í besta falli óviss og í versta falli að hann hafi leikið sinn síðasta leik fyrir félagið. Þetta kemur sér ákaflega illa fyrir þann úkraínska því ekki hafði hann margar mínútur undir beltinu hjá Chelsea, og eiginlega Shakhtar Donetsk, svona miðað við aldur leikmanna. Að lenda í 2-3-4 ára banni verður reiðarslag fyrir kappann. Í millitíðinni eru sögusagnir um nýja vængmenn. Orðrómurinn um Jamie Gittens hefur aðeins kólnað eftir að mótið hófst, en ég tel líklegt að við reynum aftur við hann síðar í sumar. Nú nýverið hefur Malick Fofana, örfættur leikmaður Lyon, verið orðaður við Chelsea. Hann minnir á Madueke í stíl og gæti vel komið inn í þær stöður sem Sancho og mögulega Mudryk skilja eftir sig. Ef við fáum bæði Gittens og Fofana, sem yrði þá þriðji Fofaninn hjá félaginu, þá erum við að styrkja kantstöðurnar ansi vel myndi ég segja. Því báðir eru þeir mjög beinskeyttir fram á við.
Ég ætla að vera bjartsýnn og henda í þægilega 2-0 spá fyrir Chelsea. Við höldum hreinu, náum góðu flæði í leiknum og tryggjum okkur toppsætið í riðlinum.
Comments