top of page
  • Twitter Social Icon
  • Facebook Social Icon
Search

Liverpool - Chelsea

  • 2 days ago
  • 5 min read

Keppni:   Enska úrvalsdeildin 36. umferð

Tími, dagsetning:  Laugardagur 9. maí 2026 kl: 11.30

Leikvangur:   Anfield, Liverpool, England

Dómari:   Craig Pawson

Hvar sýndur:   Sýn Sport

Upphitun eftir:  Þráinn Brjánsson



Nú þegar aðeins þrír leikir eru eftir af tímabilinu þá er röðin komin að Anfield þar sem við mætum drengjunum frá bítlaborginni Liverpool. Það er ekkert sérstakt tilhlökkunarefni að skrifa pistil þessi misserin þar sem við erum að upplifa eitthvað sem við vonuðum að kæmi aldrei, en undanfarnar vikur erum við búnir að ganga í gegnum algert niðurlægingartímabil hjá ástsæla klúbbnum okkar. Ég held að við ættum ekkert að vera að maka einhverjum glassúr á þetta ástand en við höfum sannarlega verið með vindinn í fangið undanfarið og árangur liðsins einn sá slakasti í manna minnum. Við erum þjálfaralausir, leiðtogalausir, andlausir og reyndar lausir við allt sem kallast metnaður, áhugi og barátta. Seinni hluti vetrar hefur einkennst af glórulausum ákvarðanatökum stjórnar sem hófst með brotthvarfi Maresca og innkomu Rosenior sem gerði ekkert annað en að hleypa illu blóði í áhangendur enda reynslulaus og ráðalaus þjálfari sem reyndist ósköp meinlaus og hógvær jámaður sem stjórnin fjarstýrði eins og þyrlu frá Temu sem aldrei virkaði. Hann er síðan látin fara og allt er farið í skrúfuna og liðið í frjálsu falli.


Jú við erum sannarlega komnir í úrslit bikarsins þar sem við mætum Manchester City og alltaf er von og dolla er dolla og evrópusæti í boði einnig, en fyrst þarf að sigra þann leik og verð ég að segja að líkurnar eru ekki með okkur. Hins vegar eru okkar menn enn einu sinni í dauðafæri til að bjarga því sem bjargað verður með sigri gegn City. Ef við förum örstutt yfir leikinn gegn Forest síðastliðinn mánudag þá viðurkennist að ég sá ekki leikinn þar sem hann var spilaður á mjög ókristilegum tíma fyrir vinnandi fólk á Íslandi eða kl: 14.00. Ekki hefði það verið sérstök byrjun á vikunni þó leikið hefði verið á öðrum tíma þar sem leikurinn var ekki nema 2. mínútna gamall, þá var Forest komið yfir og á 15. mínútu braut Malo Gusto á leikmanni Forest innan teigs og um gríðarlega klaufalegt brot var að ræða, en Forest bætti við forystuna úr vítaspyrnu  og enn versnaði staðan á þeirri 52. þegar Forest bætti við þriðja markinu. Joao Pedro klóraði þó í bakkann, seildist upp í efstu hillu og setti eitt með hjólhestaspyrnu þegar komið var fram í uppbótartíma. En það breytti því ekki að sama súpan og áður var kokkuð upp og étin úr sömu skál og áður, ekkert plan, enginn áhugi og og menn illa girtir. Það má alveg segja að leikmenn séu kannski ekki vel undirbúnir fyrir mikil átök utan vallar, en liðið er jú það yngsta í deildinni og flestir rétt skriðnir á þrítugsaldurinn, en þar auðvitað liggur stór hluti vandamálsins. Þarna er enginn leiðtogi, enginn sem hefur reynslu og þor til að keyra menn í gang enda hefur það verið stefna stjórnar að kaupa kornunga stráka og selja þá svo með miklum hagnaði, semsagt að reka klúbbinn með sem mestum hagnaði og gera úr þessu bissness, en það vita það allir sem vilja vita að eigendur klúbbsins hafa ekki hugmynd um hvað þessi klúbbur stendur fyrir.


Þeir hafa fyrir það fyrsta ekki hundsvit á fótbolta, þannig er það bara! Það er alveg á hreinu að þeir koma ekki til með að átta sig á þessu fyrr en þetta fer að koma illilega við veskið hjá þeim þar sem þeirra helsta markmið er að reyna að reka klúbbinn eins og gróðafyrirtæki. 10 milljónir punda fengu vængi með því að missa meistaradeildarsæti út úr höndunum og með viðlíka áframhaldi verður Chelsea orðinn innan tíðar miðlungsklúbbur sem danglar um miðja deild. Ég treysti á að í sumar fari fram heiftarleg naflaskoðun á framtíð klúbbsins. Við þurfum að losa okkur við marga leikmenn og fá inn nýtt blóð og treysta ekki alltaf á einhverja menn sem skora nokkur mörk í neðri deildunum eða í Þýskalandi. Ég hef af því allnokkrar áhyggjur af því að það gæti reynst erfitt að fá solid leikmenn í sumar á meðan ástandið er svona í klúbbnum okkar því nú ríður á að fá reynslumikinn þjálfara sem getur fært leik liðsins upp í næstu tröppur. Ég vil ekki fara út í neinar vangaveltur varðandi leikmenn eða líklega þjálfara og held að tíminn sé nægur til að velta þeim málum fyrir sér. Það er ljóst að það eru snúnir tímar framundan hjá klúbbnum og verður fróðlegt að sjá hvort staðið verði við loforð um nýja leikmenn í sumarglugganum og það verður einnig spennandi að sjá hver það verður sem tekur að sér þjálfarastarfið



En þá að leiknum sem framundan er og það er klárt að þetta verður engin ganga í garðinum þó takturinn í Bítladrengjunum hafi hikstað verulega í vetur. Liverpool situr þó í 4 sæti deildarinnar með 58 stig en Chelsea er í því 9 með 48 stig. Liverpool liðið hefur verið að þjást svolítið af Chelsea vírusnum og hafa verið að tapa stigum til “litlu” liðanna og töpuðu m.a. fyrir Wolves og gerðu jafntefli við lánlaust lið Tottenham. Þó liðið sé stjörnum prýtt þá hefur mönnum orðið fótaskortur og verða Liverpoolmenn án nokkurra lykilmanna á laugardaginn en Mo Salah verður að öllum líkindum fjarri góðu gamni auk Alexander Isak og Hugo Ekitike auk þess sem Endo er einnig frá. En Liverpool búa svo vel að eiga góða menn á bekknum svo Slot verður efalaust ekki í neinum vandræðum með að manna skútuna. Hvað okkar ástsæla klúbb varðar þá er það helst hugarfarið sem þarf að vinna hressilega í og fá menn almennilega í gang þar sem meiðslalistinn er alveg í lágmarki þó muni hressilega um Estevao sem verður ekki meira með á þessu tímabili og Gittens er að öllum líkindum frá en þar sem hann hefur nú ekki verið að bjóða upp á neinar flugeldasýninngar þá held ég að það verði ekki leikbreytir. Við skulum vona að ekki komi til þess að 7. tapleikurinn verði staðreynd eftir helgina en eins og við vitum öll þá hefur það ekki gerst síðan hundarnir drápust.



Liðsuppstilling og spá:

Ekki gekk dæmið upp hjá afleysingunni í leiknum á móti Forest en það verður spennandi að sjá hvað hann dregur fram úr erminni að þessu sinni. Það var athygliverð ákvörðun hjá honum að tefla fram hinum 18 ára Jesse Derry í byrjunarliðið og var hann býsna líflegur allt þangað til að hann rotaðist eftir samstuð og var ekið lóðbeint á sjúkrahúse en mun sem betur fer ná sér að fullu. Ég á ekki von á að McFarlane dengi fleirum óreyndum í liðið að þessu sinni en ég held að Jorgensen verði í rammanum þar sem Sanchez er meiddur og fyrir framan hann verði þeir Cucurella, Reece James, Colwill og Gusto og þar fyrir framan lúra þeir Caicedo ogSantos. Hin heilaga þrenning þar fyrir framan eru Pedro Neto, Enzo og Palmer og fremstur verður Joao Pedro. Við þurfum fyrst og fremst breytingu á hugarfari ef við eigum að ná úrslitum á laugardaginn og ljúka þessu með pínulítilli reisn  við höfum oft sýnt það áður að liðið getur allt ef rétta viðhorfið er í gangi. Ég ætla að brjóta út af vananum og þar sem ég hef alltaf spáð vitlaust þá segi ég að Liverpool sigri 2 - 1 og treysti því að sjálfsögðu að ég hafi alrangt fyrir mér.


Góða skemmtun og áfram Chelsea !! 



 
 
 

Comments


  • Grey Google+ Icon
  • Grey Twitter Icon
  • Grey LinkedIn Icon
  • Grey Facebook Icon

© 2023 by Talking Business.  Proudly created with Wix.com

bottom of page