top of page
  • Twitter Social Icon
  • Facebook Social Icon
Search

Bournemouth - Chelsea

  • Dec 6, 2025
  • 7 min read

Keppni: Enska Úrvalsdeildin, 15. umferð

Tími, dagsetning: Laugardagur 6. desember kl: 15.00

Leikvangur: Vitality stadium, Bournemouth England

Dómari: Michael Oliver

Upphitun eftir: Hafstein Árnason



Þremur dögum eftir 1–1 jafntefli gegn Arsenal þar sem Caicedo var sendur í sturtu snemma og liðið þurfti að spila með 10 mönnum í yfir 50 mínútur, leit Chelsea út fyrir að vera þreytt eins og gamall hundur eftir langan dag gegn Leeds. Þrátt fyrir það gerði Enzo Maresca fimm breytingar á liðinu. Það var gefið að Reece James og Wesley Fofana fengu frí í leiknum, þar sem þeir eru í álagsstýringu. Malo Gusto og Pedro Neto fóru á bekkinn og Caicedo var í leikbanni. Inn í liðið komu Tosin Adarabayo, Benoit Badiashile, Andrey Santos, Liam Delap og Jamie Gittens. Uppleggið hjá Maresca var ætlað til að setja stóru strákana inn í vörnina, þar sem heimavinnan benti til þess að langir boltar upp á Nmecha og Calvert-Levin væri líklegsta vopnið hjá Leeds. Að þessum sökum setti Maresca Trevoh Chalobah í hægri bakvarðarstöðu, og þannig fékk Estevao litla hjálp fram á við á hægri vængnum.


Horn á 6. mínútu, Jaka Bijol skallar inn eftir að hafa stungið Liam Delap af í horninu um einhverja tvo-þrjá metra. Það er verulegt áhyggjuefni hvað Chelsea strögglar varnarlega í föstum leikatriðum. En þarna strax í upphafi leiks var liðið komið í brekku og þetta gjörsamlega kveikti í andrúmsloftinu á Elland Road. Þessi fyrri hálfleikur leið eins og heil eilífð. Hvorki gekk né rak í uppspilinu. Leeds voru mættir til þess að pressa okkur niður á teig og stóru strákarnir í vörninni, Tosin og Badiashile áttu í stökustu vandræðum við tengja við Enzo og Andrey. Fjórum mínútum síðar missti Enzo boltann eftir slaka sendingu frá Chalobah. Tanaka komst í spilið og þrumaði af 20 metrum – 2–0. Í hálfleik leit þetta út fyrir að vera martröð, með Leeds að spila eins og þeir væru á eldi og Chelsea eins og þeir væru að reyna að slökkva með blautum klút. Dómari leiksins dæmdi ekki mikið á návígisbrot. Hvergi var þetta sjáanlegra en að sjá Estevao kljást við Gabriel Gudmundsson. Sá sænski vann einvígin hvað eftir annað sem varð til þess að Estevao sparkaði til hans að aftan og hlaut gult spjald fyrir, sem hefði getað verið rautt hjá strangari dómara. Í hálfleik bjóst maður við breytingum og niðurstaðan varð Pedro Neto kom inn í hálfleik fyrir Estevao og Malo Gusto í hægri bakvörðinn, og Chalobah var hrókerað í miðvörðinn á kostnað Badiashile. Þessi stóri og stæðilegi miðvörður var ömurlegur í leiknum. Lélegur í uppspili, taugaóstyrkur og með hræðilega fyrstu snertingu á bolta. Uppleggið hjá Maresca var kolrangt eftir allt saman.


Pedro Neto minnkaði muninn strax í 2–1 með fallegu marki eftir sendingu frá Jamie Gittens – vonin blossaði upp í smástund, eins og lítil ljóstýra í fjarlægum vita í myrkrinu. Sáum við lands? Nei, það var allt í hafinu. Dominic Calvert-Lewin kláraði þriðja markið á 72. mínútu eftir algjört rugl í vörninni: Noah Okafor stal boltanum af Tosin sem átti hræðilegt samspil vítateig við Malo Gusto. Fyrsta snertingin brást honum og Tosin var ákaflega seinn að bregðast við árás Okafor. Sánchez reyndi að verja, en Calvert-Lewin slapp inn eins og þjófur um nótt. 3–1. Elland Road beinlínis sprakk úr gleði, og Chelsea-menn gengu niðurlútir af velli með andlitið eins og sviknir Seyðfirðingar. xG? Leeds 2.82, Chelsea 1.1 – þeir áttu skilið að tapa. Maresca stóð þarna eftir leikinn, með augun eins og þreyttur faðir eftir barnaveislu, og sagði opinskátt:


„Leeds voru betri en við í öllu – baráttu, hraða, ákefð. Við vorum dauðþreyttir eftir Arsenal-leikinn, þar sem við spiluðum á 10 mönnum meira en helming leiksins eftir rauða spjaldið á Caicedo. Ég tók ranga ákvörðun með rotation-inu; ég hefði átt að hvíla fleiri. Stærsta efstirsjáin mín er að ég notaði ekki Josh Acheampong. Hann hefði getað gefið okkur þann kraft og styrk sem vantaði í loftinu og á köntunum.“


Josh Acheampong, 19 ára varnarmaðurinn sem hefur sýnt ljóma þegar hann hefur fengið tækifærin. Hann sat á bekknum allan leikinn og horfði á vörnina líða fyrir upplegg Maresca. Hann skoraði sitt fyrsta mark gegn Forest fyrr á tímabilinu og hefði getað leyst inn á hægri eða miðju, sérstaklega þar sem Reece James og Fofana voru ennþá að jafna sig eftir erfiðan Arsenal-leik. Nú er Chelsea komið niður í 4. sæti, níu stigum á eftir Arsenal, og Bournemouth bíður. Caicedo situr út sinn annan leik af þrem, en Reece og Fofana eru til baka í fullu fjöri. Maresca lofar viðbragði, en ef Tosin byrjar aftur og Acheampong situr áfram á bekknum, þá gæti þetta orðið lengri vetur en við héldum. Kannski er tími til að treysta unga stráknum og láta hann bjarga einhverju vörninni?



Við þurfum þó að fara endurskoða hvað Tosin og Badiashile færa liðinu. Sá franski hefur verið á mála Chelsea í heil fjögur tímabil. Allan þennan tíma hefur hann aldrei sýnt neitt sem mætti kalla stjörnuleik, hvorki í vörn né sókn. Hann er ófær um að leika boltanum. Hann kom til liðsins á þeim tíma þegar ný stjórn þekkti hvorki haus né sporð á fótboltabransanum. Hann hefur ekki leikið 90 mínútur í Úrvalsdeildinni síðan í 3-4 leiknum gegn Tottenham fyrir ári síðan. Þess á milli hefur honum verið treyst til að spila gegn liðum eins og Djurgården og Esperence frá Túnis í heilan leik. Það er hans sylla hvað gæðin snerta. Hann passar ekkert við leikstíl liðsins og er í raun baggi á liðinu. Það líður áreiðanlega ekki að löngu þar til hann fer í miðvörðinn með Disasi í U21 liðinu (reyndar er Disasi til skoðunar hjá Lyon).


Öllu alvarlegra mál er að skoða hvað Tosin hefur gert upp á síðkastið. Án hans í byrjunarliðinu, þegar Chalobah og Fofana eru miðvarðarparið, þá fær Chelsea nánast engin mörk á sig. Með Tosin í vörninni fengum við 3 mörk á okkur frá Leeds, reyndar ekkert frá Burnley, tvö frá Qarabag, fjögur frá Wolves í bikarnum, tvö frá Manchester United, þrjú frá Bayern Munchen og tvö frá Brentford. Þetta trend sýnir svart á hvítu, að vörnin er hriplek með Tosin. Hann er einn elsti leikmaður liðsins, 28 ára gamall. Reynslan er ekki allt. Andstæðan við þetta er Josh Acheampong, sem er 19 ára. Reynslulítill, en munum sérstaklega eftir því hvernig hann stóð sig gegn Liverpool. Síðan þá hafa tækifærin verið af skornum skammti. Það er augljóst að hann er minni byrði á liðinu en Tosin og Badiashile, og einnig með hærra þak til frekari afreka.


Hinir leikmennirnir sem áttu afleitan leik voru Andrey Santos, sem gat ekki stjórnað miðjunni með Enzo. Enzo var reyndar alveg bensínlaus og þarf á einhverri hvíld að halda. Þeir náðu ekkert að tengja vörn og sókn. Eins þarf að skoða Joao Pedro gaumgæfilega. Hann gat ekkert í leiknum og endurkoma Cole Palmer í sína hefðbundnu stöðu vekur vonir um betri tíma. Við vonum að hann sé búnir að ná sér af nárameiðslum. Liam Delap átti lítið erindi í sókninni, og þegar hann og Joao Pedro eru ekki að standa sig sem skyldi, fer maður óneitanlega að hugsa til þess, hvort það var þess virði láta Nico Jackson fara til Bayern? Delap þarf að girða sig í brók. Hann hefur fengið fjölda tækifæra til að spila sig í gang og það er komið að því að hann geri eitthvað í sínum málum. Ef hann skorar ekki 2-3 mörk í þessum mánuði verður á brattann að sækja fyrir hann persónulega.

Við förum nú í dag suður með sjó til Bournemouth. Andoni Iraola hefur kvartað yfir því að leikjaálag sé þeim erfitt. Boltinn sem þeir leika krefst mikillar orku og álagsmeiðsli eru farin að segja til sín. Iraola er sannfærður um að liðið muni bregðast við eftir síðustu fimm leiki (fjögur töp, eitt jafntefli). Hann segir:

„Við höfum tapað fjórum af síðustu fimm leikjum, en það skiptir ekki máli hvað við gerðum í gær – heldur hvað við gerum í dag. Ég treysti leikmönnum mínum og þeir hlakka til leiksins gegn Chelsea.“. Hann tengir slæmt form við skort á orku vegna meiðsla á fimm lykilleikmönnum, en leggur áherslu á að liðið sé „milli evrópusæta og fallbaráttu“ í deildinni. Iraola er heiðarlegur um styrkleika Chelsea, sem sitja í 4. sæti með 24 stig. Hann sagði einnig á blaðamannafundi: „Ég býst við besta Chelsea. Þeir eru eitt af þrem eða fjórum bestu liðunum í Englandi, ásamt Manchester City, Arsenal og Liverpool. Þeir spila mjög vel, verða betri og betri undir stjórn Enzo, og munu krefjast mikils af okkur varnarlega. Við þurfum að vera á besta formi okkar til að slá þeim á bak.“


Bournemouth eru erfiðari heim að sækja en að taka á móti á heimavelli. Það er enginn vafi í mínum huga að Iraola sé framúrskarandi stjóri. Það truflar þá líka að samningamál Antoine Semenyo eru í lausu lofti, en það er hægt að búast við því að hann láti til sín taka. Það sem er gott við liðið er að þeir geta róterað leikmönnum í mismunandi leikstöðum, bæði milli leikja og í leiknum sjálfum. Þeir eru pressulið af bestu sort, sem hefur þessa Marcelo Bielsa arfleið, en Iraola var fyrirliði Athletic Bilbao þegar Bielsa var þjálfari liðsins. Það má búast við hörkuleik, en Chelsea verður að mæta ákveðið til leiks, bæði til að halda uppi tempó. Það verður fróðlegt að sjá hvernig Maresca stillir upp, því á þriðjudaginn er mikilvægur leikur gegn Atalanta í Meistaradeildinni. Reece James er líklegur til að fá mínútur ásamt Fofana, en stóra spurningin er Josh Acheampong. Eins er það líka áhyggjuefni að Cucurella fær enga hvíld, með sínar 5000 mínútur frá síðasta tímabili. Jorrel Hato hefur ekki fengið að sjá völlinn eftir hans hræðilegu frammistöðu gegn Qarabag. Hérna skiptir máli hvernig leikjum er stillt upp með Atalanta leikinn í Bergamo til hliðsjónar. Ég spái því að Robert Sanchez verði í markinu, eðlilega. Marc Cucurella verði í vinstri bakverði. Trevoh Chaloba og Acheampong í miðvörðum og Malo Gusto í hægri bakverði. Reece James og Andrey Santos verða á miðjunni og Cole Palmer fær sennilega traustið í holunni. Pedro Neto verður hægri kantur, Garnacho á vinstri. Liam Delap fær sénsinn í framherjastöðunni, en þó gæti það verið Joao Pedro, en mér þykir líklegra að hann fái hlutverkið í Atalanta leiknum. Enzo og Fofana verða hvíldir fyrir átökin í Bergamo.


Hvernig fer leikurinn? Sennilega 1-2 þar sem Cole Palmer setur eitt, og Estevao kemur af bekknum með það seinna.


Góða skemmtun og áfram Chelsea!


P.s. 11. desember er dagsetningin sem skiptir öllu máli til að skrá sig í Chelsea klúbbinn á Íslandi, eða til að enurskrá sig. Við leggjum höfuðáherslu á að þetta sé rétta leiðin til að verða sér út um miða á prýðisverði. Allar nánari upplýsingar á www.chelsea.is

 
 
 

Comments


  • Grey Google+ Icon
  • Grey Twitter Icon
  • Grey LinkedIn Icon
  • Grey Facebook Icon

© 2023 by Talking Business.  Proudly created with Wix.com

bottom of page