top of page
  • Twitter Social Icon
  • Facebook Social Icon
Search

Wrexham gegn Chelsea

  • Mar 6
  • 11 min read

   

SJÁLFUMGLAÐIR BESSERVISSERAR

Behdad Eghbali, meðeigandi  í Clearlake Capital (eiganda BlueCo) og aðalstjórnandi BlueCo sem er  eigandi Chelsea, hélt því  fram skömmu eftir kaupin á félaginu  að undir stjórn Abramovich hefði Chelsea verið illa rekið félag (sem og fleiri félög í Englandi/Evrópu) bæði á íþróttasviðinu sem og á því viðskiptalega. Síðan eru liðin 4 ár, einhverjum milljörðum punda eytt í kaup á ungum leikmönnum með litla reynslu og lágar launakröfur (!), reynslulitlir þjálfarar ráðnir og staðan er vægast sagt grátbrosleg fyrir okkur Chelseaaðdáendur í ljósi nýjustu staðreynda um rekstur félagsins.

Þeir sem kaldhæðnir eru minnast orða Eghbali nú þegar birt var rekstrarniðurstaða Chelsea fyrir tímabilið 2024-24. En undir stjórn Eghbali og félaga var Chelsea rekið með mesta tapi nokkurs félags í sögu ensku úrvalsdeildarinnar og því næstmesta af Evrópuliði (Barcelona). Eða ótrúlegt 355 milljóna punda tap (fyrir skatta). Það er nýja ameríska tjáningaleiðin í dag að svo skal böl bæta að benda á annað verra og kenna því um að  leifar af syndum Abramovich gegn Uefa séu inni þessu hallauppgjöri. Og þær syndir loks frágengnar.  Þessi bandaríski vogunarsjóður (Clearlake C.) er semsagt  á góðri leið með að rústa TVEIMUR félögum, Chelsea og Strasbourg, með fordæmalausri fjárhagslegri ringulreið og vanstjórnun. Þetta á bæði við um íþróttahlið mála sem og viðskiptahliðina. 



Mín skoðun er sú að Eghbali hefði ekki átt að taka svona stórt upp í sig þegar hann atyrti fyrrum eiganda Chelsea og eiginlega stjórnir flestra liða í Englandi. Og vændi þá um að kunna ekki að reka knattspyrnu/íþróttafélag. Þarna kristallast hroki bandarísku eigendanna því önnur eins vanhæfni hjá stjórnendum knattspyrnufélags í fremstu röð er ekki þekkt í Englandi. Þetta á einnig við um millistjórnendur Chelsea en eftir höfðinu dansa limirnir. 

Við erum ekki aðeins að tala um kaupin á ungum og gjörsamlega óreyndum  leikmönnum sem vonast er til að auki verðgildi sitt undir merkjum Chelsea. Að kaupa unga, efnilega en óreynda leikmenn er auðvitað ekki bjánaleg stefna per se, en að kaupa þá á yfirverði og jafnvel verðum (40-60m.p.) þar sem kaupa má reynda leikmenn sem hafa „sannað“ sig fyrir sama pening. Og eru nauðsynlegir hverju liði. Því miður hefur BlueCo keypt fullt af miðlungsleikmönnum (mest ungum) frá því að það tók við félaginu en samtals hafa verið keyptir 50 leikmenn frá  því sumarið 2022 eða 17 22/23, 12 23/24, 13 24/25 og 8 25/26. Kaupin á leikmönnum miðast yfirleitt ekki við þá þörf að skipa vel mannað í allar stöður. Þær miðast eiginlega við eitthvað sem við venjulegu jónkarnir sjáum ekki skynsemi í. En hvað vitum við?  BlueCo segist þó á „réttri leið“ og hugmynda- og  aðferðarfræðin bak við MÓDELIÐ/PLANIÐ sé  í fullu gildi. Þótt Clearlake þekki vel til áhættustýringar á fjármagni þá tel ég fyrirtækið á rangri leið með þá rekstrarfyrirmynd sem það notar hjá Chelsea. 


BlueCo hefur að vísu keypt reynda unga leikmenn sem áður höfðu  sannað sig. Gallinn er einfaldlega sá að þeir hafa verið keyptir á miklum yfirverðum (Caicedo, Enzo, Fofana og Cucurella) og munu því ekki skila hagnaði ef seldir. En það var fyrirheitna rekstrarmódelið sem Eghbali var að gapa yfir. Kaupa unga kjúklinga, ala í sláturstærð og selja síðan a la Brighton. Þrátt fyrir að eyða öllum þessum milljörðum punda í leikmannakaup er Chelsea enn nokkuð langt frá því að keppa um Englandsmeistaratitilinn mest vegna þess að BlueCo neitar að kaupa reynslumikla leikmenn í þær stöður þar sem við erum veikastir fyrir. Sem er fáráðleg staða þar sem keyptir hafa verið FIMMTÍU leikmenn. Reynsluleysi og unggæðingsháttur leikmanna hefur reynst okkur dýr og munstrið er yfirleitt það sama í leikjum. 


Leikmenn byrjar leikinn vel > tapa síðan yfirhöndinni > fara í kvíðakast > fá á sig mark/mörk > tapa stigum og eða leiknum. Aukaafurðin er síðan gul og rauð spjöld og pirringur meðal leikmanna. Það vantar reynslumikla leikmenn til að stjórna leiknum og sigla honum í var eða jafnvel í höfn með skynsömum og yfirveguðum  leik. Gilbert Enoka, nýsjálenskur rugbyleikmaður, var ráðinn til að sjá um „andlegu“ hlið leikmanna Chelsea. Miðað við hvernig efsta lið Deildarinnar hagar sér inn á leikvellinum og kemst upp með það) þá ætti hann frekar  að kenna okkar leikmönnum öll rugbybrögðin  og tæklingarnar sem varnarleikmenn þess liðs nota svo við eigum einhvern sjéns í Deildinni.



HUGLEIÐING. 

Aðferðir varnarmanna (og sumra miðjumanna)  Arsenal í sókn og vörn eiga meira sameiginlegt með handrukkun en knattspyrnu. Og allt með leyfi dómara. Það er svolítið skrýtið að sjá reglu 12 í knattspyrnulögunum brotna svo herfilega frekar sem reglu en undantekningu (peysutog, glímutök og fangbrögð) með og án bolta og oftast inni í eigin teig. Mér finnst það ekki góð auglýsing fyrir knattspyrnuna ef STOKE á SPARIFÖTUNUM yrði Englandsmeistari hvað þá Evrópumeistari. Lið sem skorar fleiri mörk (21 mark) með því að nauðga  og troða boltanum og hálfu liði andstæðinganna inn fyrir marklínuna úr hornum, innköstum og fríspörkum en í fallegu fléttuspili. Af ljósmyndum að dæma líta varnarmenn Arsenal út eins og graddar í merastóði þegar horn og fríspörk er tekin, slíkur er atgangurinn. En meðan dómarar grípa ekki inn í er það eðli keppnimanna að ganga eins langt og hægt er og jafnvel krafa sumra þjálfara. En fyrr má nú aldeilis vera. Fróðlegt verður að sjá hvort áherslur UEFA breytist þessu varðandi það sem eftir lifir Meistaradeildarinnar og ekki síður hvað línur FIFA leggur í þessari nýju riðlmenningu þeirra rauðu úr Norður London í Heimsmeistarakeppninni í sumar. 


ANDLEG OG LÍKAMLEG DÖNGUN.

Í vetur hefur Chelsea tapað 19 stigum í leikjum þar sem við komumst yfir eða mest allra. Mest gegn liðum sem við eigum auðveldlega að vinna. Og 17 af þeim stigum töpuðust á Brúnni. Eins eigum við metið í gulum spjöldum svo ég tali nú ekki um rauð spjöld þar sem næstum allir þeir leikir töpuðust EFTIR að leikmaður Chelsea var rekinn út af. Ég þarf ekkert að segja það „níu sinnum“  að þetta er met. Andstæðingar geta alltaf bókað að skora gegn okkur í föstum leikatriðum því þrátt fyrir milljón punda sérþjálfara á því sviði er Chelsea allra liða gjöfulast á mörk í föstum leikatriðum (xG 14.05 í hornum, fríspörkum og innköstum) í ALLRI Evrópu. Á móti erum við þó sjálfir að tutla inn mörkum úr föstum leikatriðum en ekki í sama mæli og fengin mörk úr föstum leikatriðum. Þar er bókhaldið í bullandi mínus.


Hvernig í ósköpunum getur félag eins og Chelsea,  félag sem áður lagði svonefndu „stóru sex“  reglulega í einelti  á fótboltavellinnum, virst algjör rotinpúra og undirlægja þegar við mætum þessum liðum það er að segja eftir að BlueCo tók yfir félagið félagið. Byrjum á Arsenal. ELLEFU leikir. Chelsea hefur ekki sigrað Arsenal í síðustu 11 viðureignum  í öllum keppnum. Leikir okkar við  Arsenal voru viðureignir sem flestir Chelseamenn hlökkuðu til að horfa á. Nú fara flestir í kvíðakast þegar við mætum Arsenal og mest þó markmaðurinn okkar Sanchez. Aðrir leikmenn virðast andlega sigraðir áður en  leikurinn hefst og taka ofbeldinu þegjandi án þess að reisa rönd við nema einstaka sem snýst til varnar og er yfirleitt verðlaunaður með spjaldi vegna hversu kjánalega hann brýtur af sér.


Í 14 leikjum undir stjórn Rosenior hefur Chelsea fengið á sig 10 mörk úr föstum leikatriðum og hefur Arsenal skorað 6 þeirra.  Ég bendi einnig á að enginn Arsenalmaður hefur fengið rautt spjald í vetur. Aftur á móti hafa tveir leikmenn Chelsea verið reknir út af á móti Arsenal þótt leikmenn Arsenal hafi leikið okkar menn mun harðar og tugtað þá rækilega til þangað til þeir misstu sig og brutu bjánalega af sér og sáu þar af leiðandi viðeigandi spjöld.  Og svo er það Manchester City, sem er enn verra dæmi. Tólf leikir án sigurs. Síðast þegar Chelsea sigraði Man City var það í úrslitaleik Meistaradeildarinnar  árið 2021. Síðan þá hefur það þetta verið eintómt harðlífi gegn Man City. Bæði Arsenal og Manchester City drottna gjörsamlega yfir okkur hversu mikið sem við rembumst eins og rjúpan góða. Okkur tekst ekki einu sinni að halda hreinu gegn þessum tveimur liðum, hvað þá að vinna þau. Nokkrum sinnum gert jafntefli þó. 


Og dæmið lítur ekkert betur út gegn hinum liðunum. Gegn Manchester United hefur Chelsea aðeins náð tveimur sigrum í síðustu 16 deildarleikjum.  Fyrir félag  með okkar sögu og árangur fyrstu rúmu 20 árin á þessari öld  er það einfaldlega óásættanlegt. Liverpool? Við mætum enn og  aftur á Anfield 9. maí.  Síðast þegar Chelsea vann  sigur á Anfield var árið 2021. Síðan hefur Chelsea gert nokkur jafntefli en yfirleitt tapað með bravúr. Eina lið af þessum „stóru sex“ sem við virðumst enn geta tjónkað við er Tottenham og ber að þakka forsjóninni fyrir það. Fimm deildarsigrar í röð gegn Spurs er það eina sem bjargar ofangreindri tölfræði frá að vera alger niðurlæging. Ég held að ég sé ekki að ljóstra upp neinu leyndamáli  Chelsea mun mæta ÖLLUM hinum liðuðunum  „stóru sex“ í síðustu 11 leikjum tímabilsins. Eða:

Arsenal úti (tap),Man City heima, Man Un heima, Liverpool úti og Tottenham heima.


Þar að auki leikum við gegn Aston Villa úti, Newcastle heima, Brighton úti, Forest heima og Sunderland úti. Allt lið sem Chelsea á yfirleitt í basli með. Þannig að útlitið er ekki bjart fyrir Chelsea. Liðið er nú í 6. sæti í Deildinni og svo virðist sem Chelsea sé eiginlega að damla á sama stað í getu frá því í haust meðan  flest önnur lið hafa bætt sig og sinn leik verulega. Þannig að ég er ekkert voðalega bjartsýnn á sæti í Meistaradeildinni í haust. Jafnvel efast um að Chelsea ná Sambandsdeildarsæti þar sem ég sé ekki fram á mikla stigasöfnun úr þessu.


FÚSK EÐA FAGLEG STJÓRNUN.

En þetta sýnir  aðeins vankunnáttu Clearlake/BlueCo á íþróttasviðinu. Vanhæfnin á rekstrarsviðinu er enn meiri. Chelsea/BlueCo hefur selt SJÁLFUM SÉR eignir félagsins (tvö hótel, bílastæði og kvennalið félagsins) og gert fleiri tilraunir til bókhaldslegra barbabrellna. Knattspyrnuyfirvöld í Englandi og Evrópu hafa þurft að skerpa á lögum til að firra knattspyrnuna frekari sniðgöngu félaga á fjárhagsreglum með vafasömum aðgerðum að hætti BlueCo. 

Three endaði auglýsingasamning á keppnistreyjunni okkar sumarið 2023 en tímabilin 2023-24, 2024-25 og meiri hluta tímabils 2025-26 (miður febrúar) hefur Chelsea verið án aðalauglýsanda/styrktaraðila á keppnistreyjunni. Þetta eru stórar upphæðir fyrir alvöru lið sem Chelsea hefur farið á mis við síðustu ár. Sennilega vegna „góðrar“ fjárhagsstjórnunar. Einnig virðist Chelsea hafa dregist verulega aftur úr „hinum fjárhagslega stóru 6“ (Arsenal, Spurs, Man City, Man Un, Liverpool og Chelsea) í sölu á félagsvarningi en það er ekki langt síðan Chelsea var álitið eitt öflugasta vörumerkið í knattspyrnunni. 


Þrátt fyrir að Chelsea sé með tekjuhærri félögum á Englandi (6.sæti, síðast af stóru sex) og þá í Evrópu (10.sæti) þá á Chelsea nokkuð langt í land með að halda í „stóru“ félögin í ýmsum tekjuleiðum eins og miðasölu á Brúnna (þó 9. sæti í Evrópu), sölu á varningi (e. commercial) og auglýsingum en þar er félagið í 11. sæti í Evrópu. Eins var launaliður félagsins með því hæsta sem gerist en það má mögulega rekja til þess að almennir starfsmenn félagsins telja hátt í 1.200 eða fleiri en hjá nokkrum klúbb á Englandi. Ekki er hægt að kenna launum leikmanna alfarið um það en þar er Chelsea í 5. sæti í Englandi (á undan Liverpool*) og 7-8 sæti í Evrópu. Það var aðeins á einu svið sem Chelsea hélt í við HIN félögin og það voru „sjónvarps“tekjur af leikjum.  En í stuttu máli þá eyðir Chelsea meira en það aflar og slíkt ber ekki merki um öfluga fjármálastjórnun. Þrátt fyrir að vera „aðeins“ tíunda tekjuhæsta félag í Evrópu er almennur stjórnarkostnaður Chelsea sá fimmti hæsti í Evrópu. Og hækkaði sá kostnaður úr 159M punda í 240M pund milli ára.  


* Að vísu fór Liverpool fram úr okkur þegar greiddir höfðu verið BÓNUSAR fyrir Englandsmeistaratitilinn. 



ÚRVALSDEILDIN. 

Síðustu þrír leikir Chelsea í Deildinni hafa verið daprir. Að missa „unna“ leiki gegn Leeds og Burnley á Brúnni í jafntefli er óásættanlegt og má að mestu kenna um agaleysi liðsins. Gegn Arsenal tók þó endanlega steininn úr þegar enn og aftur leikmaður Chelsea tekur upp á því að eyðileggja möguleika á árangri úr leiknum með því að „láta“ reka sig út af. Þegar meir en fjórðungur er eftir af Deildinni hafa leikmenn (og þjálfari) fengið 9 rauð spjöld dæmd á sig. Þegar búnir að jafna 14 og 16 ára met Sunderland og QPR og stefna ótrauðir á Evrópumet. Í ofanálag hefur Chelsea náð sér í tvö önnur met sem enginn hefur leikið eftir. Fengið flest mörk á sig úr föstum leikatriðum og tapað flestum stigum úr „unnum“ leikjum þ.e. misst unna leiki í tap eða jafntefli og þá flesta á heimavelli. Þetta er auðvitað fóður og leikjaplan allra liða sem lenda í vandræðum með Chelsea. Auka bara pressuna á leikmenn  og þeir hrynja andlega og mögulega brjóta bjánalega af sér. Ekki verra að leika einum fleiri gegn Chelsea. Nú, ef allir hanga inn þá má alltaf dæla boltum inn í teig á lokametrunum því vörn Chelsea er með þeirri döprustu í Deildinni og markmaðurinn okkar er kominn aftur á skjálftavaktina. Þetta hefur ekkert lagast með komu Rosenior enda ekki við því að búast. Chelsea er ekki stjórnað af einhverjum EINUM heldur minnir frekar á NEFND sem aldrei er sammála.  


ASTON VILLA - CHELSEA. 

Með Jörgensen í markinu (þrátt fyrir slælega frammistöðu gegn Villa á Villa Park fyrir ári síðan undir stjórn Maresca) þá tókst Chelsea að vinna Aston Villa í VARasömum leik. Leikmenn Chelsea voru frekar værukærir í vörninni í fyrri hálfleik og nýttu Villamenn sér skyndisóknir til að skora tvö mörk. Til allra hamingju var það seinna dæmt af og mark sem Pedro skoraði í uppbótartíma hálfleiksins fékk að standa. Hvorutveggja spurning um millimetra. Í seinni hálfleik tók Chelsea leikinn yfir og vann hann mjög sanngjarnt 1-4. Chelsea hefði og átti að skora fleiri mörk en þessi sigur var kærkominn. Loksins glitti í „gamla“ Palmer meðan Pedro fór hamförum í sókninni. Enzo átti margar snilldarsendingarnar í leiknum sem og Caceido. Eins kom Garnacho á óvart með góðum leik. Bakverðirnir (Hato og Gusto) byrjuðu illa en þeim óx ásmegin þegar líða tók á leikinn. Wesley Fofana er of mikil dramadrottining fyrir minn smekk en Chalobah traustur enda laus við stjórnunarstörfin í vörninni.  Sá eini sem ég hef áhyggjur af er James sem er einhvern veginn utanveltu í leikkerfinu hjá Rosenior. Hann „missti af“ Gabriel í sigurmarki Arsenal. Hann missti af Douglas Luiz sem skoraði mark Villa. Hann átti líka bjánaþversendingu sem leiddi til marks Watkins sem til allra hamingju var dæmt af.  En flott að sjá Cucurella og Lavia aftur.


Joao Pedro er að verða einn fjölhæfasti framherjinn í Deildinni. Og Palmer hægt að komast í fyrra form. Mögulega er einhver glæta á því að hanga á Meistaradeildarsætaroðinu eins og í fyrra. Því liðin sem við keppum við er að förlast flugið núna í leikjakraðakinu og álaginu.  En númer eitt er að Chelsea vann leikinn, enginn fékk rautt og enginn meiddist. Svo áfram gakk.                                                                                                                                    

MEISTARADEILDIN.

Chelsea leikur gegn PSG í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Leikirnir verða leiknir 11.mars (úti) og 17. mars (heima). Fyrstu þrjár vikurnar í mars leikur Chelsea SJÖ leiki í deild, bikar og Meistaradeild. PSG átti að leika FIMM leiki en franska knattspyrnusambandið hefur FRESTAÐ leiknum gegn Nantes sem leika átti 15.mars en þá sömu helgi leikum við gegn Newcastle meðan PSG á viku frí. Ég geri ekki ráð fyrir að FA fresti þeim leik til að jafna leikinn. Mér finnst pínulítið rangt gefið í þegar eitt knattspyrnusamband getur haft áhrif á Meistaradeildina með því að lið úr  þeirra röðum fái sérmeðferð heima fyrir. Ég hef því ekki mikla trú á því að við stöndum uppi sem sigurvegarar í þessari rimmu einfaldlega vegna þess að Chelsea hefur ekki mannskap til að berjast á öllum vígstöðum í leikjum með þriggja daga millibili. Þrátt fyrir kaup á 50 leikmönnum. 


FA BIKARKEPPNIN.

Þá er aðeins eftir ein keppni sem við getum látið okkur dreyma um að ná einhverjum árangri í sem er  FA bikarkeppnin. Andstæðingarnir eru  Wrexham úr Championship deildinni (6. sæti). Leikmenn Wrexham eru stórir og sterkir og fullir sjálfstrausts þessa dagana eftir gott gengi í leikjum undanfarið. Þeir hafa t.d. náð 16 stig af 18 mögulegum í undanförnum útileikjum sínum. Síðan um miðjan febrúar hafa þeir unnið fjóra leiki og gert eitt jafntefli. Þeir eru óhræddir að skjóta utan teigs og hafa nokkra skotvissa leikmenn innanbúðar. Og alveg þokkalegan markmann. En svona lítur styrkleiki og veikleiki Wrexham út:



Síðan er það spurningin hversu sterku liðið Rosenior stillir upp á móti Wrexham í ljósi þess að Chelsea leikur gegn PSG í París nokkrum dögum seinna. Hvar munu áherslur Chelsea liggja? Í Deildinni, í Bikarnum eða í Meistaradeildinni. Chelsea hefur ekki mannskap til að  keppa á öllum vígstöðvum þannig að einhverju þarf að halda og einhverju að sleppa. Ég hef ekki hugmynd um áherslur BlueCo í þeim efnum þannig að ég vil ekkert spá um liðsval fyrir þennan leik. En vara við að stilla upp „óreyndum“ Cobhamstrákum.


En leikurinn á StoK Cae Ras vellinum verður enginn skátaútilega heldur alvöru bardagi við fíleflda stráka í rauðum heimabúningunum. Vonandi minna þeir ekki of mikið á Arsenal. Ég ætla ekki að spá um úrslit. Aðeins vona að Chelsea vinni og að leikmenn sleppi við meiðsl og rauð spjöld. 


Bob - Björgvin Óskar 

 
 
 

Comments


  • Grey Google+ Icon
  • Grey Twitter Icon
  • Grey LinkedIn Icon
  • Grey Facebook Icon

© 2023 by Talking Business.  Proudly created with Wix.com

bottom of page