top of page
  • Twitter Social Icon
  • Facebook Social Icon
Search

World Club Cup byrjar - LAFC

  • Writer: Jóhann Már Helgason
    Jóhann Már Helgason
  • 11 minutes ago
  • 2 min read

Keppni:   Heimsmeistarakeppni félagsliða FIFA

Tími, dagsetning:  Mánudagur 16. júní kl: 19:00

Leikvangur: Mercedes-Benz Stadium Atlanta, Bandaríkjunum

Dómari:   Juan Valenzuela Saez (Venezuela)

Hvar sýndur:   DAZN (da zone)

Upphitun eftir:  Hafstein Árnason


Chelsea er komið á stóra sviðið enn eina ferðina, og nú er það Heimsmeistaramót félagsliða 2025 sem á að verða enn ein fjöður í hattinn hjá okkar mönnum. Fyrsti andstæðingurinn? Los Angeles FC, MLS-liðið sem skreið inn á mótið á síðustu stundu eftir að hafa troðið Club América frá Mexíkó út í play-off leik. Já, þetta er liðið sem Olivier Giroud, gamli Chelsea-hetjan okkar, er að reyna að halda á floti þarna vestanhafs ásamt félaga sínum Hugo Lloris. En við skulum vera hreinskilin: LAFC er eins og smábærsklúbbur sem fékk óvænt miða á galakvöld – fínt að þið mættuð, en þið eigið ekkert erindi í þetta partí.


Leikurinn fer fram á Mercedes-Benz Stadium í Atlanta, og ef einhver þekkir þetta svæði, þá er það Chelsea. Við höfum nú þegar sýnt bandarísku liðunum hvernig á að spila fótbolta í undirbúningsleikjum, eins og þegar við völtum yfir LA Aztecs árið 1977 og LA Galaxy árið 2007. Denis Bouanga er kannski hættulegur hjá LAFC með 12 mörk á tímabilinu, en gegn vörn okkar? Góða skemmtun, vinur.


Enzo Maresca kemur inn í mótið með lið sem er í fantaformi – átta sigrar í síðustu níu leikjum, og við erum nýbúnir að tryggja okkur Meistaradeildarsæti og vinna Evrópudeildina. Með leikmenn eins og Cole Palmer, Enzo Fernandez (14 stoðsendingar á tímabilinu!) og nýja kempuna Liam Delap í fararbroddi, þá er þetta LAFC lið bara forréttur áður en við mætum Flamengo og Es Tunis í hópnum okkar. Og svo eru það Liverpool stuðnigsmennirnir sem sitja heima og grenja yfir því að vera útilokaðir frá þessu móti. Þrátt fyrir að vera í áttunda sæti á UEFA-stigakvarðanum, fengu þeir ekki sæti vegna þess að Chelsea og Manchester City tryggðu sín með Meistaradeildartitlum árin 2021 og 2023. Ó, hvað þetta hlýtur að svíða. Kannski geta þeir horft á mótið á DAZN og sent okkur hugheilar kveðjur. Chelsea-aðdáendur, búið ykkur undir partí í Bandaríkjunum. LAFC er bara fyrsta skrefið á leiðinni til heimsmeistaratitilsins. "Carefree, wherever we may be, we are the famous CFC!"


Þar sem þessi pistill er ritaður svo seint eru byrjunarliðin klár. Enzo Maresca ætlar ekkert að tvínóna við þetta og stillir upp sínu sterkasta liði. Í markinu er Robert Sanchez. Cucurella í vinstri bakverði. Tosin og Colwill eru miðverðir og Reece James verður í hægri bakverði. Á miðjunni verða Moises Caicedo og Romeo Lavia með Cole Palmer í holunni. Noni Madueke og Pedro Neto á köntunum með Jackson upp á topp. Það verður þó spennandi að sjá hvort Andrey Santos fái tækifæri í liðinu sem og Liam Delap. Góða skemmtun kæru félagar.


 
 
 

Comments


  • Grey Google+ Icon
  • Grey Twitter Icon
  • Grey LinkedIn Icon
  • Grey Facebook Icon

© 2023 by Talking Business.  Proudly created with Wix.com

bottom of page