top of page
  • Twitter Social Icon
  • Facebook Social Icon
Search

Wolves gegn Chelsea

  • Writer: Jóhann Már Helgason
    Jóhann Már Helgason
  • 13 hours ago
  • 5 min read

Keppni: Úrvalsdeildin, 25. umferð

Tími, dagsetning: Laugardagur 7. febrúar  kl:15:00

Leikvangur: Molineaux Stadium, Wolverhampton

Dómari: Jarred Gillett

Hvar sýndur: Sýn Sport

Upphitun eftir: Bjarna Reynisson



Rosenior ákvað að taka blaðsíðu úr bók José Mourinho og leggja einni alvöru rútu í seinni leik Chelsea við Arsenal í undanúrslitum Carabao bikarsins. Fimm manna varnarlínan hélt út þar til á sjöundu mínútu uppbótatíma seinni hálfleiks þegar draugur fortíðarinnar, Kai Havertz slapp á bakvið varnarlínuna, fíflaði Sanchez og setti boltann í autt netið. Salt í sárið að tapa leiknum sem var annars ágætlega útfærður varnarlega séð en fram á við voru það fyrstu mistök Rosenior að spila Liam Delap á hægri kantinum. Honum virtist ekki líða vel þar og var heilt yfir hægur og bitlaus. Joao Pedro sem hefur verið í fanta formi fann heldur ekki taktinn í leiknum og saknaði klárlega sköpunarhæfileika Cole Palmer, Estevao og Reece James. Þrátt fyrir að Palmer og Estevao komu inn á af bekknum á 60. mínútu þá var jafnvægið í liðinu vanstillt enda fátt um valkosti á vængjunum. Pedro Neto var ekki í hóp, Gittens meiddur og Garnacho búinn að vera það slakur að hann þótti væntanlega ekki fýsilegur kostur. Ég elska Cucurella og Gusto þykir mér góður drengur en þeir eru ekki í sama gæðaflokki og vængbakverðirnir Reece James og Ben Chilwell sem óðu upp og niður vængina hér árum áður undir stjórn Thomas Tuchel. Gjafmildi Robert Sanchez í fyrri leiknum kom okkur í vonda stöðu en samt sem áður var sóknarleikurinn í þeim leik nægilega góður til að halda okkur inn í viðureigninni. Rosenior sagði á blaðamannafundi fyrir Wolves leikinn að tapið hafi verið erfitt fyrir liðið þar sem að þeir trúðu því heilshugar að þeir gætu snúið við einvíginu. Ég hefði viljað sjá Rosenior halda sig við sama leikplan og í fyrri leiknum og hvetja liðið til dáða sóknarlega og treysta á betri varnar frammistöðu. Leikplanið sem hann lagði upp með gekk þó þokkalega upp en við vorum með 1.02 vænt mörk, 54% með boltann, áttum 14 skot og þar af eitt dauðafæri. Erfitt að tapa fyrir Arsenal og tölfræðin um úrslit síðustu leikja okkar við þá er ekki góð en við þurfum að horfa á staðreyndirnar. Arteta er á sjöunda árinu sínu með Arsenal og liðið situr á toppi Úrvalsdeilarinnar og Meistaradeildarinnar. Við erum með nýjan þjálfara, það var mannekla í vængjunum en samt áttu við okkar tækifæri til að knýja fram framlengingu í það minnsta. Já dömur og herrar við erum komin heilan hring, velkominn í “trust the process” veruleikann á nýjan leik.



Fátt var um tíðindi á síðustu dögum félagsskiptagluggans fyrir okkar menn en eins og flestum er kunnugt um þá valdi janúar skotmarkið okkar, Jeremy Jacquet, að fara til Liverpool. Þá fann klúbburinn óþef af áætlunum Dortmund varðandi Aaron Anselmino og því var hann kallaður af láni. Hann var svo notaður til að friða Strasbourg þegar við sóttum Mamadou Sarr. Ég kíkti aðeins á tölfræði samanburðinn á þessum þremur ungu og efnilegu miðvörðum og það lítur út eins og við vorum að missa af frábærum leikmanni. En þar hefur Jacquet betur í öllum mikilvægustu varnarþáttunum. Tæklingar, einvígi í lofti og á jörðinni, hreinsanir, blokkuð skot og interceptions. Mamadou Sarr var samt sem áður með betra hlutfall heppnaðra sendinga ásamt hnitmiðari í löngum sendingum en Anselmino og Jacquet. Þrátt fyrir þessa upptalningu þá tel ég að við séum að fá réttan mann inn, Mamadou Sarr, enda vantar okkur miðvörð sem þarf að spila í hjarta varnarinnar, sem þarf að taka réttar ákvarðanir með boltann og skila frá sér hnitmiðuðum sendingum.


Utangarðsmennirnir Raheem Sterling og Axel Disasi fengu lausnir í sín mál hjá klúbbnum en samningnum við Sterling var rift með sameiginlegu samkomulagi og Disasi fór á lán til West Ham. Tyrique George var þá einnig sendur á lán, eftir að félagaskipti hans til Fulham féllu upp fyrir sig í sumar glugganum þá held ég að hausinn á honum hafi ekki verið á réttum stað. Best fyrir báða aðila ef að hann kemst frá klúbbnum næsta sumar.


Wolverhampton sitja á botni deildarinar og voru á góðri leið með að slá met um versta árangur í úrvalsdeildinni áður en þeir gripu í taumana og létu þjálfarann Vítor Pereira fara og réðu til starfa Rob Edwards. Þrátt fyrir batnandi frammistöður á vellinum reynist róðurinn enn þungur hjá þeim. Þeir virðast hafa sætt sig við orðinn hlut að fall niður í Championship deildina sé yfirvofandi og seldu frá sér framherjann Jorgen Strand Larsen eftir að hafa barist með kjafti og klóm í sumar glugganum til að halda honum hjá klúbbnum. Maður hefði haldið að yfirburðir Chelsea í þessari viðureign væru gífurlegir, en síðan að Wolves kom sér upp úr Championship deildinni tímabilið 17/18 þá höfum við spilað 15 leiki við þá í Úrvalsdeildinni með sex sigra, fjögur jafntefli og fimm töp. Það er því óhætt að segja að þeir voru ólseigir en nú er hjörðin orðin þunn og þreytt og þeir standa á völtum fæti. Skartandi aðeins einum sigri í 24 deildarleikjum á tímabilinu, án stjörnuframherjans síns og í basli með markaskorunina þá líta hlutirnir alls ekki vel út fyrir þá. Chelsea hefur þegar haft betur gegn þeim í tvígang á þessu tímabili með markatöluna 7 - 3 og ég geri ráð fyrir hreinu laki frá okkar mönnum og sannfærandi sigri.


Þrír sigrar í þremur leikjum fyrir Liam Rosenior í ensku úrvalsdeildinni og leikja prógrammið býður upp á áframhaldandi velgengni. Reece James og Pedro Neto eru tæpir fyrir leikinn, aðrir meiddir eru Lavia, Essugo, Tosin, Colwill og Jamie Gittens. Mykhaylo Mudryk er þá enn í banni. Ég vil sjá Sanchez í markinu, Chalobah og Fofana eru þar fyrir framan enda besta miðvarðaparið sem við getum teflt fram eins og stendur. Malo Gusto í hægri bakverðinum og Cucurella vinstra megin. Enzo og Caicedo á miðsvæðinu, Cole Palmer í tíunni og samkvæmt Rosenior ætti hann að vera klár í að spila allar 90 mínúturnar. Við biðjum til allra æðri máttvalda að hann finni sitt fyrra form og hrökkvi almennilega í gang. Vængmennirnir velja sig sjálfir enda eru bara tveir sem eru fullkomnlega heilir. Það er þá Estevao hægra megin og Garnacho vinstra megin. Fremstan vil ég sjá João Pedro. Úlfarnir ættu að vera þægilegt verkefni en það er betra að byrja með stóru byssurnar inn á vellinum og skipta þeim svo út þegar við erum komnir í þæginlega stöðu. Ég vona innilega að tilraunastarfsemi Rosenior með Liam Delap á hægri kantinum sé lokið og ég hefði ekkert á móti því að sjá Rosenior sækja vængmann í U21 liðið, til dæmis Jesse Derry.


Ég spái okkar mönnum þægilegum 3 - 0 sigri og tel að Palmer og Estevao verði með eitt mark hver. Eitt af mörkunum kemur upp úr hornspyrnu og það verður einn af miðvörðunum með afgreiðsluna.


Takk fyrir lesturinn og áfram Chelsea!!

 
 
 

Comments


  • Grey Google+ Icon
  • Grey Twitter Icon
  • Grey LinkedIn Icon
  • Grey Facebook Icon

© 2023 by Talking Business.  Proudly created with Wix.com

bottom of page