top of page
  • Twitter Social Icon
  • Facebook Social Icon
Search

Sambandsdeildarmeistarar og sumarglugginn

  • Writer: Jóhann Már Helgason
    Jóhann Már Helgason
  • 6 hours ago
  • 14 min read


Í upphafi tímabilsins 2024–25 lágu væntingar til Chelsea eins og þungur skuggi yfir velli, blanda af von og vafa. Markmiðið var skýrt: sýna framfarir undir stjórn Enzo Maresca, finna takt í nýjum leikstíl, ná Meistaradeildarsæti og gera atlögu að Sambandsdeildartitli. Maresca, nýkominn frá Leicester, stóð frammi fyrir ungum hópi, eigendum sem kröfðust árangurs og stuðningsmönnum sem þráðu endurkomu Chelsea á toppinn. Í Wroclaw, þegar Reece James lyfti Sambandsdeildarbikarnum, og á lokadegi deildarinnar, þegar Meistaradeildarsætið var tryggt, varð ljóst að Chelsea hafði staðið undir væntingum – en kannski án þess að fljúga hærra en vængirnir báru. Er Maresca maðurinn sem heldur liðinu á jörðinni, eða var ljómi leikmanna eins og Cole Palmers nóg til að uppfylla draumana?


Væntingar fyrir tímabilið

Markmiðið var „framfarir“ – orð sem felur í sér bæði von og óvissu. Chelsea endaði í 6. sæti með 63 stig á síðasta tímabili, langt frá Meistaradeildinni. Að ná topp 5, sem tryggði sæti í Meistaradeildinni 2025–26 þökk sé auka sæti Englands, var aðalmarkmiðið. Sambandsdeildin, ný keppni fyrir Chelsea, var vettvangur til að þróa leikmenn og byggja liðsanda, en titill var talinn möguleiki, ekki krafa. Maresca átti að koma stöðugleika, innleiða leikstíl byggðan á vörslu boltans og gefa ungum stjörnum eins og Cole Palmer, Enzo Fernandez og Nicolas Jackson tækifæri til að skína.


Meistaradeildarsætið: Chelsea endaði í 4. sæti með 69 stig, sex stigum betur en árið áður, og tryggði Meistaradeildarsæti. Lokaleikurinn gegn Nottingham Forest, 1-0 sigur, var afgerandi, þótt spennan hafi haldist fram á síðasta dag. Fimm lið börðust um þrjú sæti, og Chelsea hélt haus þrátt fyrir pressu frá Forest og Aston Villa. Maresca fékk lof fyrir árangurinn, en furðuleg ummæli í bland við brokkgegngt gengi í deildinni um miðbik tímabils létu aðdáendur efast um burði hans til að valda hlutverkinu. Vonarneistinn varð því aldrei meiri en tilefnið gaf til.


Sambandsdeildarsigurinn: Í Wroclaw vann Chelsea 4-1 sigur á Real Betis í úrslitaleik Sambandsdeildarinnar, og skrifaði sögu sem fyrsta félagið til að vinna allar fimm stóru Evrópukeppnirnar. Cole Palmer, með tvær stoðsendingar, var hjarta leiksins: hann lagði upp jöfnunarmark Enzo Fernandez á 28. mínútu, skot sem bar von, og 2-1 mark Nicolas Jackson á 48. mínútu, eins og dans í þröngum stundum. Jadon Sancho skoraði á 62. mínútu, undirbúið af Noni Madueke, og Moises Caicedo innsiglaði 4-1 á 78. mínútu. Fyrri hálfleikurinn var erfiður, með Betis yfir 1-0, en hálfleiksræða Maresca og skipting á Reece James sneri leiknum. Chelsea skoraði 42 mörk í 13 leikjum í keppninni, þar á meðal 8-0 sigur á FC Noah, en sigurinn var nákvæmlega það sem vænst var af liði með þessi gæði – ekki umfram.


Skuggarnir og ljómið

Tímabilið var árangursríkt, en skorti töfraljómann. Maresca var gagnrýndur fyrir hægan leikstíl og liðsval, eins og að byrja Malo Gusto í stað Reece James í úrslitaleiknum. Á X bentu stuðningsmenn á að Chelsea hefði getað nýtt veikleika toppliðanna betur í deildinni. Liðsandinn var þó styrkur: Gusto og Benoit Badiashile fögnuðu mörkum af bekknum í Wroclaw eins og þeir væru á vellinum, og Palmer, með töfrandi tækni var kjarninn í liðinu. Eftirpartíið í Wroclaw, með dansi Jacksons og „Estrella“-söng Cucurella, var gleði unglegs liðs – þess yngsta í deildinni – sem fann taktinn. En þetta var nákvæmlega það sem vænst var.


Chelsea stóð undir væntingum á tímabili 2024–25. Meistaradeildarsætið varð raunverulegt, Sambandsdeildin varð bikar, og sagan var skrifuð. Maresca er maður sem heldur liðinu á jörðinni, treystir á leikmennina sína, en finnur ekki enn ljómann sem færir liðið hærra. Með Palmer sem hjarta liðsins, og liðsanda sem glóir, er Chelsea á réttri leið – en næsta tímabil, með Meistaradeild og Heimsmeistaramót félagsliða FIFA, krefst þess að ljósið skíni skærra.


En í hjarta afreka kraumar spurning: Er Maresca meistari, eða maður sem þarf mótlæti til að finna sig? Við Chelsea aðdáendur megum þó vel við una að markmiðum tímabilsins sé náð. Meistaradeildarsæti er klárt og UEFA bikarstellið á Stamford Bridge er fullkomnað. Við kveðjum vonandi Sambandsdeildina fyrir fullt og allt, rétt eins og Evrópukeppni Bikarhafa. Flott fyrir söguna, en við gerum meiri kröfur til framtíðar. Það sem er jákvætt í þessu er sú staðreynd, að við erum ekki að fara skipta um knattspyrnustjóra í bráð. Framundan er annað spennandi knattspyrnumót. Heimsmeistaramót félagsliða FIFA. Við erum í riðli með Los Angeles FC úr MLS deildinni í Bandaríkjunum, Flamengo frá Brasilíu og Espérence frá Túnis. Leikið verður í Bandríkjunum og hefst keppnin í þarnæstu viku. Í millitíðinni opnar lítill sumargluggi sem var ætlaður fyrir þau lið sem taka þátt í mótinu. Lítum aðeins á stöðuna.


Það sem liggur fyrir

Sumarið 2025 markar tímabil breytinga hjá Chelsea, þar sem félagið hefur tryggt sér nokkra unga og efnilega leikmenn til að styrkja hópinn fyrir komandi áskoranir, þar á meðal Meistaradeildina og FIFA Club World Cup.




  1. Liam Delap (frá Ipswich Town, £30M)  

    • Staða: Framherji

    • Bakgrunnur: 22 ára gamall Englendingur, sem Enzo Maresca og yfirmaður leikmannakaupa, Joe Shields, þekkja frá tíma sínum hjá Manchester City akademíunni. Delap er talinn kraftmikill framherji sem gæti bætt við markaskorun Chelsea. Það var mikið afrek að skora 12 mörk með Ipswich, sem var í raun ekki lið af Premier league burðum. Hann er væntanlegur til að styrkja sóknarlínuna og gæti fengið tækifæri strax í FIFA keppninni - og hefur fengið treyju númer 9.



  2. Estêvão Willian (frá Palmeiras, £29M, hugsanlega upp í £51M)  

    • Staða: Kantmaður/framherji

    • Bakgrunnur: 18 ára brasilískt undrabarn, talinn einn af bestu ungu leikmönnum Suður-Ameríku. Hann skorði 11 mörk og gaf 5 stoðsendingar á síðasta tímabili hjá Palmeiras. Estêvão er þekktur fyrir sprengikraft, mikla hæfileika í boltareki (e. dribbling) og fjölhæfni í sóknarleiknum. Carlo Ancelotti valdi hann strax í byrjunarlið Brasilíu gegn Ekvador, sem fór reyndar 0-0 í vikunni. Það er skemmtilegt að sjá hversu mörg mörk hjá honum koma utan teigs, og hvað hann er lunkinn við að breyta um stefnu með boltann. Það eitt og sér gefur manni von um að lágblokkarliðin sem mæta okkur á næsta tímabili, mega búast við því að þurfa dansa samba við Estevao í vítateignum.



  3. Dário Essugo (frá Sporting CP, £18.5M)  

    • Staða: Miðjumaður

    • Bakgrunnur: 20 ára portúgalskur miðjumaður, sem kemur til Chelsea frá Sporting Lissabon eftir lánstímabil hjá Las Palmas. Essugo er ungur en lofar góðu, með sjö ára samning og möguleika á framlengingu. Hann er enn að sanna sig á hæsta stigi, en Chelsea sér í honum framtíðarmöguleika á miðjunni.



  4. Mike Penders (frá Genk, £17M)  

    • Staða: Markvörður

    • Bakgrunnur: 19 ára belgískur markvörður, talinn einn af efnilegustu í Evrópu. Hann mun ganga til liðs við Chelsea í júlí 2025 og gæti fengið tækifæri snemma, sérstaklega þar sem núverandi markverðir, Robert Sánchez og Filip Jörgensen, hafa ekki heillað að fullu. Penders er þekktur fyrir góður á löppum og gæti keppt um stöðu í byrjunarliði, en við myndum þó ekki útiloka lán, jafnvel í tvö ár, eins og gerðist með Thibaut Courtois.


  5. Aaron Anselmino (frá Boca Juniors, upphæð ótilgreind)  

    • Staða: Miðvörður

    • Bakgrunnur: 20 ára argentínskur varnarmaður, sem var keyptur sumarið 2024 en var á láni hjá Boca Juniors fram í janúar 2025. Anselmino lék 18 leiki hjá Boca en meiddist og var kallaður til baka til Chelsea til endurhæfingar. Hann er talinn efnilegur en þarf að sanna sig í enska boltanum, sérstaklega eftir meiðsli.



  6. Mamadou Sarr (frá Strasbourg, £11.9M)  

    • Staða: Varnarmaður

    • Bakgrunnur: 19 ára franskur varnarmaður, keyptur frá systurfélagi Chelsea, Strasbourg, í janúar 2025. Sarr lék frábærlega í frönsku deildinni og vonast til að komast inn í lið Maresca. Hann gæti bætt dýpt í vörnina, sérstaklega þar sem Chelsea hefur þurft að treysta á sækja lánsmenn til baka eins og Trevoh Chalobah vegna meiðsla.




  7. Kendry Paez (frá Independiente Dell Valle í Ekvador, £17.7M)

    • Staða: Kantmaður og sóknarsinnaður miðjumaður

    • Bakgrunnur: 18 ára Ekvadori sem var keyptur raunar 16 ára gamall fyrir tveimur árum fyrir metfé, fyrir svo ungan leikmann, en má núna Líkt og Estevao er Kendry Paez ákaflega lunkinn með boltann og sniðugur að plata varnarmenn með brellibrögðum og fintum. Hann hefur einnig æft annað slagið með aðalliði Chelsea og hefur fengið þokkalegan tíma til að aðlagast aðstæðum utan vallar. Það liggur ekki alveg ljóst fyrir hvort hann fái hlutverk með Chelsea á þessu tímabili, eða hvort hann verði settur lið Strasbourg, en hann hefur líka æft með þeim. Að okkar mati væri galið að senda hann til annarra klúbba á láni. Kendry Paez er líka kominn með 17 landsleiki fyrir Ekvador og hefur skorað nú þegar tvö mörk í þeim.

  8. Emmanuel Emegha (er hjá Strasbourg - en kemur á næsta tímabili 2026-27 til Chelsea)

    • Staða: Framherji -

    • Bakgrunnur: 22 ára hollenskur framherji hjá RC Strasbourg, er merkilegur vegna glæsilegrar frammistöðu í Ligue 1, þar sem hann skoraði 14 mörk og gaf 3 stoðsendingar á tímabilinu 2024-25, ásamt einstökum líkamlegum eiginleikum eins og 37,72 km/klst hraða (halló!), 1,95 m hæð og tæknilegri færni, sem gerir hann að fjölhæfum sóknarmanni sem passar vel í hápressu- og skyndisóknbolta. Til samanburðar náði Usain Bolt, heimsmeistari í spretthlaupi, hámarkshraða upp á 44,72 km/klst á 60-80 metra kafla í 100 metra heimsmetshlaupi sínu á HM í Berlín 2009, með meðalhraða um 37,58 km/klst yfir allt hlaupið, samkvæmt greiningum frá IAAF og öðrum heimildum. Þótt hraði Emegha sé mjög áhrifamikill fyrir knattspyrnumann og jafnast nánast á við meðalhraða Bolts í 100 metra hlaupi, er hann enn talsvert undir hámarkshraða Bolts, sem er um 18,7% hærri (44,72 km/klst á móti 37,72 km/klst). Hins vegar er hraði Emegha óvenjulegur í knattspyrnu, þar sem leikmenn ná sjaldan yfir 36 km/klst, og gerir hann að rosalegri ógn í skyndisóknum. Við hlökkum verulega til sumarsins 2026 en leyfum honum að dafna örlítið betur í Frakklandi fyrst.


Það sem liggur algjörlega fyrir að leikmenn sem fara frá klúbbnum verða öllum líkindum Kepa Arrizabalaga og Robert Sanchez - en þeir eru víst komnir á markaðinn samkvæmt El Chiringuito. Það sem blæs þessu byr undir báða vængi er að Sky News hafa sagt, að Arsenal séu að íhuga að virkja 5 milljón punda kaupákvæði og hugsa hann sem varamarkvörð við David Raya. West Han einnig sagt með áhuga á Sanchez, en meira um það síðar. Robert Sanchéz átti mjög óstabílt tímabil hjá Chelsea, og beinlínis kostaði nokkur mörk, sérstaklega í byrjun tímabils, en átti þó nokkra leiki á seinni hlutanum sem björguðu stigum. Til þess að komast á næsta þrep þarf Chelsea markmann sem viðheldur stöðugleika og eru með einn í sigtinu, meira um hann seinna í þessum pistli.


Láninu hjá Jadon Sancho er lokið. Það var með kaupákvæði upp á 25m punda, en að sama skapi var 5m "refsi"ákvæði ef Chelsea skyldu standa við kaupin. Það þarf þó að nefna í þessu samhengi, að þetta er í raun kostnaður við lánið til Manchester United, því annars var þetta svokallað "dry" lán á leikmanni. Það stóð til að Chelsea ætluðu að reyna fá Sancho til að halda áfram, en einungis gegn því að launasamningar myndu nást við leikmanninn. Þar stóð hnífurinn fastur í kúnni, og Sancho vildi ekki sleppa takinu af skrímslasamning sínum við Manchester United sem veitir honum ansi miklar tekjur. Samningar tókust ekki á með Chelsea og Jadon Sancho, þannig að úr verður, að Chelsea borgi þessar 5 milljónir punda til Manchester United, fyrir lánið. Við óskum Jadon Sancho velfernarðar í framtíðinni og þökkum fyrir öll mörkin í Sambandsdeildinni.


Lucas Bergström 22 ára finnskur markvörður, sem einnig er með samning til júní 2025, er líklegur til að yfirgefa félagið. Bergström hefur aldrei spilað fyrir aðalliðið og hefur verið á láni hjá félögum eins og TPS og Bromley. Vegna lítillar markaðsvirðis er líklegt að Chelsea láti hann fara frítt frekar en að framlengja samninginn og með því fækkar markvörðum úr níu í átta?


Christopher Nkunku sem kom til Chelsea árið 2023, hefur glímt við meiðsli og skort á spiltíma, með aðeins 11 byrjunarliðsleiki í deildinni. Hann er orðaður við brottför, hugsanlega til Bayern München, Manchester United, eða aftur til Þýskalands. Chelsea metur hann á að minnsta kosti £52M, en áhugi á honum gæti leitt til sölu ef rétt tilboð berst. Hann hefur því miður ekki staðist þær væntingar sem voru gerðar til hans. Passaði ekki í liðið sem fremsti framherji, og náði aldrei að setja sitt mark á leikinn þegar hann fékk að spila á vinstri kanti eða í holunni.


Raheem Sterling, sem er á láni hjá Arsenal, er einn af þeim sem Chelsea hyggst selja varanlega. Lánssamningurinn inniheldur ekki kauptækifæri, og óstöðugar frammistöður hans á tímabilinu gerir endurkomu til Chelsea ólíklega. Hann er orðaður við mögulega brottför til Saudi Pro League, en það er mjög líklegt að hann verður aftur í bomb squad hópnum í sumar. Hann er einnig einn launahæsti leikmaður liðsins og vegna þess er mikill þrýstingur á að losa hann út, sem og Ben Chilwell, annan launahæsta mann liðsins. Chilwell, sem var á láni hjá Crystal Palace á síðasta tímabili, hefur verið útilokaður úr aðalliði Maresca. Hann er sterklega orðaður við brottför, annaðhvort á lánssamningi aftur eða í varanlegri sölu. Áhugi er sagður vera frá ýmsum félögum, en framtíð hans hjá Chelsea virðist dökk. Óvissa ríkir um Trevoh Chalobah sem var á láni hjá Crystal Palace. Hann var kallaður til baka í janúar 2025. Hann hefur glímt við skort á spiltíma hjá Chelsea yfir lengri tíma, og er orðaður við varanlega brottför, hvert einasta tímabil. Félagið sér hann sem söluvænan leikmann, sérstaklega vegna Cobham akademíubakgrunns hans, sem skilar hreinum hagnaði vegna FFP-reglna. Ritstjórn CFC er þó á því máli, að ef einhver verðskuldar sæti í hóp Chelsea, þá er það hann, því ekki hefur vantað upp á eljusemina.


Marc Guiu sem átti prýðilegt tímabil í Sambandsdeildinni með Chelsea, fram að meiðslunum sem slúttuðu honum nánast út tímabilið. Ipswich hefur unnið hart að því að fá Guiu að láni. Það lítur því út fyrir að hann sé að fara á láni á næsta tímabili til að þróa sinn leik, en verður þó áfram samningsbundinn Chelsea.


Kiernan Dewsbury-Hall, sem kom frá Leicester, hefur ekki náð byrjunarliðssæti í deildinni undir Maresca, þrátt fyrir fyrra samstarf þeirra. Hann er orðaður við brottför, hugsanlega á láni eða í varanlegri sölu, þar sem Chelsea telur sig vel mannað á miðjunni, sérstaklega í ljósi þess að Andrey Santos kemur að öllum líkindum til baka frá Strasbourg.


Carney Chukwuemeka, sem er á láni hjá Borussia Dortmund, hefur sýnt glimtur af hæfileikum en glímir við takmörkuð tækifæri. Hann er orðaður við brottför, hugsanlega á lánssamningi aftur eða varanlega, þar sem samkeppni á miðju Chelsea er hörð. Borussia Dortmund eru sagðir mjög áhugasamir, en það kemur líklega til hversu mikið fjárhagslegt bolmagn þeir hafa til að halda honum.


Armando Broja var á láni hjá Everton og gerði nákvæmlega ekki neitt. Það er miður að sjá þennan pilt ströggla. Broja hefur glímt við skort á spiltíma og lækkandi markaðsvirði. Lánssamningurinn inniheldur kaupákvæði, en ef Everton kaupir hann ekki er líklegt að Chelsea reyni að selja hann annars staðar, hugsanlega til Saudi Pro League, en hugmyndir um 30 milljónir punda eins og í fyrra eru með öllu óraunhæfar.


Axel Disasi, sem fór á láni til Aston Villa, er orðaður við varanlega brottför. Hann lék 17 leiki undir Maresca en passaði illa inn í leikstílinn. Chelsea gæti reynt að selja hann til að fjármagna ný kaup. Hann er þó á löngum samningi við Chelsea sem gæti reynst okkur fjötur um fót.


Joao Felix, sem gekk til Chelsea á varanlegum samningi 2024, hefur ekki náð væntingum. Hann er orðaður við brottför, þar sem hann passar ekki að fullu inn í áætlanir Maresca. AC Milan hafa lokið sínu samstarfi við Felix, sem sér sinn eina kost að reiða sig á súper umboðsmanninn sinn Jorge Mendes um raunhæfar væntingar til framtíðar. Portúgalskir fjölmiðlar hafa svo fjallað um að Benfica vilji fá hann í sínar raðir, helst fyrir þriðjudaginn 8. júní til að skrá hann til leiks fyrir FIFA mítið.


David Datro Fofana, bjartasta von norskrar knattspyrnu fyrir nokkru síðan. Fofana, sem var á láni hjá Goztepe í Tyrklandi (9 leikir, 2 mörk) þar til hann meiddist í febrúar út tímabilið. Hann er orðaður við varanlega brottför og það er eiginlega miður hvað síðustu ár hafa verið brösug hjá þessum unga leikmanni. Það er óþarfi að telja upp fleiri leikmenn sem hafa t.d. verið í unglingaliðum, það verður efni í annan pistil. En við skulum snúa okkur að mögulegum kaupum. Það má benda sérstaklega á það að Chelsea eru með 300 m punda kvóta í sanngirnisbókhaldinu, langmest allra liða. En það tilkomið vegna sölu innan eignasamstæðu, þ..e. að selja hótelin og kvennaliðið til móðurfélags. Þessar reglur gilda þó ekki hjá UEFA sem útilokar allar eignatilfærslur milli dóttur og móðurfélaga. Þær tölur liggja á huldu enn sem komið er. Chelsea verða þó á markaðnum. Það sem við vitum er að Chelsea eru að sækjast eftir framherja, vinstri kantmanni og mögulega miðverði. Framherjastaðan:

Við viljum nefna Victor Osimhen sérstaklega hérna. Það hefur reynst rosalega mikið bras að næla í þennan nígeríska framherja og reynt var að ná honum fyrir lok gluggans í fyrra, en því miður komst það ekki yfir línuna. Við kaupin á Liam Delap er þetta eiginlega farið forgörðum. Victor Osimhen hefur valið að fara til Al Hilal í eyðimörkina samkvæmt Gianluca Di Marzio. Eina sem ber á milli 5 milljón evra verðmat milli Napoli og Al Hilal, sem er klink fyrir Sádana. Þetta eru gífurleg vonbrigði fyrir greinarhöfund, John Obi Mikel og Didier Drogba. Hann hefði verið fullkominn. En, eina veika vonin sem við berum í brjósti, er sú staðreynd að Aurelio de Laurentiis verði með stæla, en samningurinn Osimhen er með kaupákvæði sem verður að öllum líkindum triggerað. Chelsea voru í viðræðum en þetta hefur siglt í strand með launakröfur Osimhen. Hann hefur þó metnað til að spila í ensku úrvalsdeildinni, en hann er að fara þrefalda launin sín, sem voru þegar rosalega há hjá Napoli. Ef einhver er ánægður, þá er það umboðsmaðurinn hans.


Við þessi tíðindi hafa portúgalskir fjölmiðlar sagt frá því að Chelsea og Juventus séu farnir að kanna möguleika á því að kaupa Viktor Gyökeres (1,89m) frá Sporting Lisbon. Þessi sænski framherji hefur einnig verið á radarnum hjá Manchester United (vegna augljósra tengsla við Ruben Amorim), Barcelona og Arsenal, en líkast til fara Arsenal í Benjamin Sesko hjá Leipzig. Gyökeres hefur verið óstöðvandi hjá þeim í Sporting, með 66 mörk í 68 leikjum. Sé litið á tölfræðina koma mörkin úr öllum áttum, innan og utan vítateigs. Hann er með 80m punda kaupákvæði í samningi, en mögulega er hægt að semja við Sporting um lægra verð og hefur 60m pund verið nefnt í því samhengi. Hérna skiptir líklega máli hvernig fjármálum er háttað í stóra samhenginu, ef við horfum til Liam Delap kaupanna ásamt því að eiga Emmanuel Emegha kláran á næsta tímabili. Eitthvað segir manni að Gyökeres verði ekki keyptur, nema bókhaldið leyfi það.


Hugo Ekitike, framherji sem er yfir 1,90 á hæð, hefur verið einnig til skoðunar. Eintracht Frankfurt hafa engan húmor fyrir að selja hann og hafa sett 100m evra verðmiða á þennan efnilega franska framherja. Hann er nýgenginn til liðs við þá þýsku, eftir að hafa verið á láni frá PSG. Hann er samningsbundinn til 2029. Það er því eina leiðin að borga þetta lausnarfé sem Frankfurt krefjast, eða hætta að spá í þessu. Ekitike náði ekki heldur að jafna xG tölurnar sínar með markaskorun, sem bendir til þess að hann sé soldið að klúðra færum, sem við þekkjum hjá Nicholas Jackson. Er það 100m virði? Alls ekki.


Jonathan David, kanadískur framherji verður laus undan samningi hjá Lille. Hann kostar því ekki neitt, en hann er ekki hávaxinn framherji. Chelsea, Barcelona eru sögð hafa áhuga samkvæmt Sports Illustrated í Bandaríkjunum. Þetta er ekki prófíllinn sem Maresca vill þannig að mögulega er þetta ókeypis leikmaður sem er hægt að nota í bókaldsbrellutilgangi.


Hver er líklegastur eins og staðan er núna? Sennilega Göykeres, en dæmið þarf að ganga upp og þetta Emegha sem kemur sumarið eftir, er líklega á pappír, sennilega meira spennandi lausn en Gyökeres, en sjáum hvað setur.


Markvörður.

Þetta er útúm allt en Mike Maignan vill koma til Chelsea og ætlar ekki að semja við AC Milan. Samningurinn hans rennur út á næsta ári og Chelsea eru að senda inn móðgandi tilboð inn á skrifstofur Casa Milan. Greinarhöfundur hefur fylgst vel með málum í Milanello, en stuðningsmenn eru æfir út í stjórnendur klúbbsins. Þarna þurfa AC Milan að gæta að væntingum stuðningsmanna ásamt því að klukka eins mikinn pening og þeir geta fyrir eina af stjörnum liðsins. Gengi liðsins var afleitt á tímabilinu sem leið, með tveimur misheppnuðum ráðningum á portúgölskum stjórum, en þó nokkrum minniháttar bikartitlum. Hvorugur stjórinn fann útúr málum með vörnina hjá Milan og því hafði Magic Mike nóg að gera. Hann er þó aðalmarkvörður franska landsliðsins. Verðbilið sem er kítað um er 10-20m evra. Fari Chelsea og afgreiði málið erum við kominn með markvörð sem leiðtogi og stór karakter inn í liðið - akkurat það sem okkur vantar. Hann hentar fullkomlega í leikstíl Maresca og er óhræddur með að leika boltanum á löppunum. Maignan sótti titlana í Frakklandi með Lille og Skúdettuna á Ítalíu, einmitt með þannig leikstíl. Við hjá CFC teljum afar líklegt að Chelsea nái að kaupa Maignan, en þá þýðir ekkert að bíða boðana ef aðrir klúbbar eins og Barcelona blandi sér í baráttuna. Ef ekki, þá höfum við Petrovic, Penders og Jörgensen sem varakosti.


Vinstri kantmaður:

Jamie Gittens er það nafn sem hefur helst verið nefnt í þessu samhengi. Hann er á mála hjá Borussia Dortmund. Verðmiðin ætti að vera ýkja hár en Enzo Maresca vill hægri fótar kantmann á vinstri kantinn. Hinsvegar hefur ekki borið á neinni formlega kaupbeiðni. Hinsvegar hafa Chelsea fengið formlegt tilboð í Mohammed Kudus hjá West Ham sem er einhverskonar skiptidíll við Robert Sanchez. Graham Potter hefur víst dálæti á Sanchez, og það er vegna þess að Kudus sé kominn inn á radarinn. Viðræður eru víst í gangi og okkur telst nokkuð líklegt að þetta verði díllinn. Kudus fyrir Sanchez og væntanlega eitthvað klink á milli. Klúbbarnir þurfa að laga þetta eftir bókhaldinu.


Miðvörður:

Ef Chalobah verður seldur, þá er líklegt að Chelsea fari á markaðinn. Luis Murillo hjá Nottingam Forest er sagður líklegasti valkosturinn. Hinsvegar fáum við Wesley Fofana aftur til baka úr meiðslum, en dugir það til? Eitthvað segir okkur að þetta sé ekki ofarlega á baugi en kannski seinna í sumar, og eftir FIFA mótið í sumar, að miðvarðamálin skýrist.


Í heildina má segja að það var leitt að ná ekki Osimhen þrátt fyrri áhuga beggja, en dæmið gekk ekki upp. Það verður líka svo áhugavert að sjá hvað gerist í dópskandal Mikhaylo Mukdryk. Það hefur líka áhrif á þetta en ljóst er að það verður nóg að gera hjá stjórnendum félagsins og framundan eru bara spennandi tímar!


Áfram Chelsea!




 
 
 

Comments


  • Grey Google+ Icon
  • Grey Twitter Icon
  • Grey LinkedIn Icon
  • Grey Facebook Icon

© 2023 by Talking Business.  Proudly created with Wix.com

bottom of page