Fulham gegn Chelsea
- Jan 6
- 5 min read
Keppni: Úrvalsdeildin, 21. umferð
Tími, dagsetning: Miðvikudagur 7. janúar kl:19:30
Leikvangur: Craven Cottage, Lundúnir
Dómari: Peter Bankes
Hvar sýndur: Sýn Sport
Upphitun eftir: Bjarna Reynisson

Better the devil you know than the devil you don’t, en Enzo Maresca var enginn djöfull. Er Chelsea fast í vítahring af vanhæfi? Hringekja með Behdad Eghbali við stjórnvölinn. Yfirmenn íþróttamála (e. sporting directors) sem hafa eingöngu áhuga á ungum og efnilegum leikmönnum og taka ekki mark á ummælum sparkspekinga, fyrrum leikmanna og jafnvel þjálfaranna sem kalla eftir meiri reynslu í hópinn. Lærdómskúrvan verður svo töluvert flatari þegar þessir ungu leikmenn þurfa að læra allt upp á eigin spýtur í stað þess að njóta leiðsagnar frá reyndari mönnum. Ef einhver gæti vinsamlegast útskýrt fyrir mér tilgang þjálfarans ef hann er neyddur nauðugur til að lúta vilja bæði stjórnarinnar sem og læknateymisins varðandi liðsvalið? Hversu slæm samskiptin hljóta að hafa verið til að Maresca labbaði hreinlega í burtu frá möguleikanum á 14 milljónum punda! Erfitt er að ímynda sér uppbyggðu reiðina og gremjuna. Hví ráðum við þjálfara á fimm ára samning þegar meðaltal á stjórnartíðum þeirra er svo stutt að það nær rétt 18 mánuðum. BlueCo erfði Thomas Tuchel þegar þeir keyptu klúbbinn og þrátt fyrir að hafa sannað sig með því að vinna Meistaradeildina þá var það sambland af slæmum samskiptum við stjórnina ásamt því að niðurstöðunum tók að hraka snemma á 22/23 tímabilinu og stuðningur og þolinmæði BlueCo varði stutt. Bæði Tuchel og Maresca yfirgáfu klúbbinn skartandi bikurum, með um 60% sigurhlutfall og eru að mínu mati tveir bestu stjórarnir sem klúbburinn hefur verið með síðan Abramovich neyddist til að selja. Það er eitthvað rotið í strúktúr Chelsea FC ef að við getum ekki haldið í flotta þjálfara vegna þess að á meðan þeir vinna í byggja eitthvað þá gerir stjórnin í því að grafa undan þeim.
Frá mínu sjónarhorni er BlueCo að skjóta sig í báða fæturnar á sama tíma með því að hafa ráðið Liam Rosenior frá systurfélaginu RC Strasbourg. Hvorugur klúbbur verður sterkari fyrir vikið og ég hef mínar efasemdir um ágæti hans. Þú getur ekki verið með bæði unga og óreynda leikmenn og ungan og óreyndan þjálfara. Chelsea mun aldrei ná sömu hæðum og undir Abramovich ef við stöndum ekki við bakið á þeim þjálfurum sem hafa skilað góðum árangri og rekum þá um leið og vindar blása á móti. Mér finnst forvitnilegt að vita hvað þeir aðdáendur sem vildu að Maresca yrði rekinn sáu fyrir sér að myndi gerast í kjölfarið. Að núna, þegar að hann hefur yfirgefið klúbbinn, hvort að þeir séu spenntir og bjartsýnir fyrir restinni af tímabilinu.

Persónulega var ég ekki mjög bjartsýnn fyrir sunnudags viðureigninni við Manchester City og bjóst í raun við að okkur yrði gjörsamlega slátrað. Það kom mér því skemmtilega á óvart að sækja stig á Etihad og hvernig McFarlane stýrði liðinu. Hann fékk helvíti erfiða hendi en spilaði úr henni virkilega vel. Stuttur fyrirvari, lykilmenn frá vegna meiðsla, veikinda og sumir í leikbanni. Herkænskulega séð þá gerði hann vel og uppskar meðal annars hrós frá Pep Guardiola eftir leik. Ég botnaði samt ekki í af hverju uppleggið var að senda langa bolta upp völlinn á Joao Pedro því að ég man ekki eftir mörgum einvígum sem að hann vann. Liam Delap kom inná í seinni hálfleik og leit töluvert meira sannfærandi út. Við erum ekki búin að sjá mikið af samspili Palmer og Delap en mér fannst það líta vel út.
Reece James var valinn maður leiksins og hefur nú hlotið þann heiður í leikjum bæði gegn Declan Rice og Rodri, er ekki óhætt að segja að hann hljóti að vera besti miðjumaðurinn í deildinni? Kapteinninn er búinn að vera vaxinn öllum þeim verkefnum sem að hann hefur þurft að axla. Ég elska manninn en einstaka sinnum finnst mér vera vottur af kæruleysi í aðgerðum hans inn á vellinum, sama finnst mér um Palmer sem að hefur ekki alveg komist á fullt skrið síðan hann sneri úr meiðslunum. Palmer, Neto og Gusto fannst mér sérstaklega vanta örlítið hugrekki í sendingarnar sínar sem orsakaði að það hægðist á leiknum. McFarlane á hrós skilið fyrir breytingarnar sína í hálfleik því að Andrey Santos leit virkilega vel út eftir að hann kom inná. Enzo Fernandez var í eldham og greinilega búinn að ákveða að þessi leikur skildi ekki tapast, svo oft í fyrri hálfleik þegar hann átti glæsilegar tæklingar og mikilvæg inngrip til að stöðva City menn.
Stöðutaflan í deildinni er præmuð fyrir alvöru dramantík, ekki er nema fjögur stig á milli fjórða sætisins og fjórtánda. Chelsea þarf að gefa í núna þrátt fyrir alla óvissuna og skjóta föstum rótum í topp fimm. Ég lít alltaf á Fulham sem litla bróður Chelsea enda ekki nema tæpir þrír kílómetrar á milli Stamford Bridge og Craven Cottage. Það hefur aldrei verið svakalegur nágranna rígur þarna á milli og viðureignirnar að mestu endað með sigri stóra bróðurs. 12 sigrar, fimm jafntefli og tvö töp ef við skoðum einungis viðureignir í Úrvalsdeildinni, frá því að hún hlaut nafnið Premier League. Það er til mikils að vinna fyrir Fulham því með sigri í leiknum myndu þeir jafna okkar menn á stigafjölda í töflunni. Liðin í kringum okkar eiga flest erfiðar viðureignir að Manchester United undanskildum sem fara í heimsókn til Burnley. Skeinuhættasti maður Fulham um þessar mundir er Harry Wilson. Frá því í nóvember á síðasta ári hefur hann komið að níu mörkum, en einungis Erling Haaland hefur komið að fleiri mörkum á því tímabili. Gamla brýnið frá Mexíkó, Raúl Jiménez gæti þá einnig ollið okkur vandræðum ef að hann reimar markaskóna rétt á sig. Miðsvæðið þeirra er þunnt vegna fjarveru Alex Iwobi og Calvin Bassey sem eru báðir á AFCON. Formið á okkar mönnum er ekki frábært, tveir sigrar, fimm jafntefli og þrjú töp í síðustu 10 leikjum í öllum keppnum. Fulham aftur á móti eru með fimm sigra, tvö jafntefli og þrjú töp í sama úrtaki. Annað risa verkefni fyrir McFarlane sem að þarf að skáka Marco Silva í þetta skiptið.
Fastagesturinn Romeo Lavia er á sínum stað á meiðsla listanum, honum til halds og trausts eru Essugo, Cucurella og Colwill. Robert Sanchez er tæpur fyrir leikinn og því er líklegast að við sjáum Jörgensen á milli stanganna, annan leikinn í röð. Hann átti í raun bara ágætis leik gegn Man City, ein góð varsla eftir stefnubreytingu, en hefði kannski átt að gera betur í markinu sem City skoraði. Ég held að Reece James færist aftur niður í hægri bakvörðinn í þessum leik, Malo Gusto í vinstri bakverðinum með Chalobah og Acheampong í hjarta varnarinnar. Enzo Fernandez og Caicedo á miðsvæðinu. Cole Palmer á sínum stað og sömu vængmenn og gegn City, Pedro Neto vinstra megin og Estevao hægra megin. Fremstan myndi ég svo hafa Liam Delap. Ef að þessi liðsuppstilling skilar okkur ekki 3 - 1 sigri þá skal ég hundur heita.
Áfram Chelsea!



Comments