Espérence Tunis gegn Chelsea
- Jóhann Már Helgason
- 20 hours ago
- 4 min read
Keppni: Hemsmeistarakeppni félagsliða
Tími, dagsetning: Miðvikudagur 25. júní kl 01.00
Leikvangur: Lincoln Financial Field, Philadelphia USA.
Dómari: Yael Falcón Perez (Argentína)
Hvar sýndur: DAZN
Upphitun eftir: Þráinn Brjánsson

J
æja þá er komið að þriðja leik okkar manna á HM félagsliða sem fram fer í hitanum í US of A, en bláliðar hófu leik gegn Los Angeles FC þann 16. júni og náðu þar sanngjörnum sigri, en annar leikurinn var ekki til að hrópa húrra fyrir. Við mættum Brössunum í Flamengo og sjóðheitur Pedro Neto skoraði flott mark á 13. mínútu og stefndi í ánægjuleg úrslit okkur í hag, en þeir brasilísku voru ekki alveg á sama máli og gerðu úti um leikinn í síðari hálfleik. Þeir völtuðu yfir okkur með þremur mörkum og þar við sat. Leikurinn var verulega illa leikinn af okkar piltum og kórónaði Jackson slæma frammistöðu liðsins með glórulausu broti með þeim afleiðingum að hann fékk beint rautt. Það var ekki til að lífga upp á móralinn hvorki hjá liðinu né aðdáendum. Ég veit raunar varla hvað hægt er að segja um þetta heimskulega brot hans og jafnafkáralegt var að lesa hjartnæma afsökunarbeiðni hans á Instagram reikningi hans eftir leik, þar sem hann baðst innilega afsökunar. Hann lofaði að þetta kæmi aldrei fyrir aftur sem er nú ekki sérstaklega beysið, þar sem þetta er ekki í fyrsta skipti sem hann lætur reka sig útaf fyrir heimskulegt brot. Hef sagt það áður og segi aftur að ég held að drengurinn sá, sé ekki mjög sterkur til höfuðsins, og nú held ég að það sé lag að skella í útsölu, losa okkur við Jackson og jafnvel fleiri og rífa heldur fram innkaupakerruna og kaupa svona eins og einn alvöru framherja og þá kannski ögn þroskaðri en þann senegalska, og planta honum við hlið Delap.
Sá kom heldur sterkur inn og þakkaði traustið sem honum var sýnt í leiknum gegn Los Angeles FC og hrærði í eina flotta stoðsendingu. Talandi um nýja menn þá held ég að við höfum gert góð kaup í Liam Delap. Hann hefur látið talsvert að sér kveða sem af er og lofar góðu, allavega er það mín tilfinning. Fleiri eru jú á leiðinni og er Kendry Paez mættur til USA og mun æfa með liðinu þrátt fyrir að hann sé ekki skráður í leikmannahópinn og Estevao Willian er væntanlegur beint eftir mótið og það verður spennandi að fylgjast með þeim drengjum á næstu mánuðum.
Það sem er helst ámælisvert við þennan leik var uppstillingin hjá Enzo Maresca. Það hefur verið reynt að stilla Reece James á miðjuna en hann virðist ekki vera ná tökum á þessari miðjustöðu. Það er enn sérstakara í ljósi þess að Andrey Santos fékk ekki mínútu í leiknum og Romeo Lavia er ekki kominn í fullt leikform. Malo Gusto átti afleitan leik, sérstaklega varnarlega og nú fer maður að setja ákveðin spurningarmerki við hann. Gusto var fínn undir stjórn Pochettino en hjá Maresca hefur þetta verið mjög brösugt gengi. Hægri bakvarðarstaðan í liðinu er ennþá ákveðinn höfuðverkur, en það er eins gott að Maresca taki sig saman í andlitinu og nái þessu rétt í næsta sinn.
Af leikmannamarkaðnum er það helst að nú hefur Bayern bæst við kapphlaupið um Jamie Gittens en samkvæmt miðlum þá vill hann helst fara til Chelsea og hann gæti nýst okkur vel við að fóðra okkar fremstu menn af færum og sérstaklega ef Cole Palmer dettur í gang aftur í sumar, en svo heyrast fregnir að innkaupadeild BlueCo samsteypunnar sé að velta fyrir sér kaupum á Randal Kolo Muani. Þær fréttir fara misjafnlega ofan í áhangendur, en hann er núverandi leikmaður Juventus, að láni frá PSG og þykir mörgum að hægt sé að setja markið aðeins hærra, en hann er metinn á 30. milljónir evra og þykir mér vel í lagt.
Chelsea
En þá að leiknum sem fer fram á afar ókristilegum tíma fyrir okkur hér á norðurhjaranum, en ég er ansi hræddur um að við verðum að girða okkur aðeins fyrir þennan leik, eftir fjarri því góðan leik gegn Flamengo. Þrátt fyrir að andstæðingurinn sé ekki sterkur á blaði þá er það á hreinu að þeir leggja allt sitt í þennan leik og vilja sýna sínar bestu hliðar. Hinsvegar verðum við að taka með í reikninginn að í Philadelphiu er mikil hitabylgja og henni fylgir mikill raki. Það gæti haft áhrif á leikinn, sérstaklega tempóið. Maður verður þess minnugur þegar HM 1994 fór fram í Bandaríkjunum, þar sem leikirnir fóru fram í 30-40 stiga hita. Þetta er X factor. Ég er nokkuð klár á því að Maresca mun ekki tefla fram sínu allra sterkasta liði, en kannski tekur hann enga sénsa og notar alvöru púður? Hann er nefnilega að mörgu leyti ólíkindatól. Það er þó allavega ljóst að Jackson fær frí og ekki er ólíklegt að Delap fá jafnvel sénsinn þar sem Nkunku er að ég held kominn hálfa leið til Manchesterborgar. Okkar heitasti maður þessa dagana Pedro Neto fær sénsinn og ætli Palmer fái ekki tækifæri til að reyna að hitta á rammann. Stóra spurningin er svo hvort Andrey Santos fái nú að sjá völlinn, annað væri hneyksli. Sigur í leiknum tryggir sæti okkar í útslættinum en þar myndum við mæta Bayern Munchen að öllum líkindum.
Espérance
Nú verð ég að vera fullkomlega hreinskilinn en ég veit afskaplega lítið um mótherja okkar í þetta skiptið en liðið kemur frá Túnis og hefur verið með skárri liðum þess lands undanfarin ár og hefur að auki átt sæmilegu gengi að fagna í afríkukeppni félagsliða. Það er eitthvað sem segir mér að þeir ætli sér ekkert annað en að sýna sínar bestu hliðar aðra nótt vestur í Ameríku, en þeir unnu einmitt LAFC í síðasta leik 1-0 með marki frá Youcef Belaili, sem þykir vera besti leikmaður liðsins, en hann tekur út leikbann gegn Chelsea fyrir tvö gul. Auk þess er liðið skipað fjölmörgum landsliðsmönnum Túnis og Alsír. Liðið leikur 4-4-1-1 uppstillingu og mætti ætla að þeir mæti til að parkera rútunni og ná skyndisóknum.
Liðsuppstilling og spá:
Hvernig væri þá að spá einhverju og ég tel víst að sá ítalski haldi sig við 4-2-3-1 og ég ætla að setja Jörgensen á milli stanganna í þetta skiptið og fyrir framan hann verða þeir Gusto, Colwill, Tosin og Cucurella og þar fyrir framan verða Caicedo og Reece James. Hin heilaga þrenning verða Neto, Enzo og Palmer og vonarstirnið Delap verður fremstur. Þessi leikur fer 1 - 3 og Neto setur tvö og Delap opnar reikninginn með viðhöfn. Ég er ekkert viss um að þetta verði nein “ganga í garðinum” en hefst líklega á seiglunni og ákafa.
Áfram Chelsea!
Comments