Chelsea gegn Nottingham Forest
- 2 days ago
- 4 min read
Keppni: Úrvalsdeildin, 35. umferð
Tími, dagsetning: Mánudagur 04. maí kl:14:00
Leikvangur: Stamford Bridge, Lundúnir
Dómari: Anthony Taylor
Hvar sýndur: Sýn Sport
Upphitun eftir: Bjarna Reynisson

Fimm töp í röð í fyrsta sinn frá 1993, fyrsta skipti síðan 1912 síðan að Chelsea lék fimm deildarleiki án þess að skora mark. Takið að ofan og veifið bless til Liam Rosenior, megi eftirmaður hans vera hæfari. Það var magnað að sjá munin á liðinu í fyrsta leiknum undir stjórn Calum McFarlane. Miklu meira barátta og hjarta. Ég veit ekki mikið um McFarlane sem stjóra annað en að hann er ekki kominn með öll tilskyld leyfi, en hann virðist hafa virðingu leikmannana og nálgast leikinn á einfaldari og skýrari máta en Rosenior. Í annað sinn á tímabilinu stígur hann upp í erfiðum kringumstæðum og gerir vel. Það var um síðustu helgi þegar okkar menn mættu Leeds United í undanúrslitum FA bikarsins og aðeins í þriðja sinn af síðustu 20 leikjum héldum við lakinu hreinu, en hin tvö hreinu lökin komu gegn Port Vale og Hull. Enzo Fernandez fékk bandið aftur og stóð fyrir sínu. Mér finnst virkilega erfitt að horfa upp á hann vera að daðra við aðra klúbba og vona að hann láti græðgina ekki stoppa sig frá því að verða goðsögn hjá Chelsea. Honum til varnar þá þarf BlueCo að gyrða sig í brók og sjá til þess að þeirra stjórnunarhættir skemmi ekki klúbbinn meira en þeir hafa gert nú þegar. Óska McFarlane áframhaldandi velgengni, við þurfum innilega á því að halda til að reyna að bjarga tímabilinu. Sé fyrir mér að hann verði í þjálfarateyminu hjá næsta stjóra, sama hver hann kann að vera. Persónulega er ég spenntastur fyrir Xabi Alonso sem hefur glæstan feril að baki, invincible tímabil með Leverkusen í Bundeslígunni og ego management reynslu frá Real Madríd.
Það er fátt betra en alvöru hausthreingerning. Þegar að Enzo Maresca tók við voru margir leikmenn útskúfaðir í sprengjusveit (e. bomb squad) og voru síðustu tveir útlagarnir, Sterling og Disasi, að finna sér nýja klúbba núna í janúar. Mikill léttir að losna við Sterling og hans launapakka. Disasi er að gera góða hluti núna með West Ham á láni og vonandi halda þeir sér uppi og kaupa hann alfarið. Hver sem næsti stjóri Chelsea verður þá er nokkuð ljóst að hann þarf að ráðast í samskonar hreingerningu. Að sjálfsögðu myndi hann fá að hitta allan hópinn og gefa þeim sem vilja berjast fyrir klúbbinn tækifæri til að sanna sig. Garnacho, Delap, Marc Guiu, Kendry Páez, og Jackson eru leikmenn sem að ég myndi persónulega reyna að losa í sumar. Yfirmenn íþróttamála hjá Chelsea elska að kaupa, jafnvel þó að tapið hafi numið 260 milljónum punda. Ef að það er ekki keypt beint frá Brighton þá eru fyrrum leikmenn Mávanna líka heillandi. Svo er gott að eiga viðskipti við systur klúbbinn Strasbourg. Það vildi svo heppilega til að Valentín Barco uppfyllti bæði þessi skilyrði og gengur hann til liðs við Chelsea frá Strasbourg fyrir næsta tímabil. Hjá Brighton lék hann sem bakvörður en í Frakklandi leikur hann mest á miðjunni. Aðrir sem eru staðfestir í sumar eru framherjinn Emmanuel Emegha og Giovanni Quenda en enn bólar ekki á miðverðinum. Það komu loksins fréttir að Mykhailo Mudryk en hann var fundinn sekur um ólöglega lyfjanotkun. Upprunalegi dómurinn kvað á bann upp á fjögur ár en þeim dómi er verið að áfrýja eins og er til CAS dómstólsins. Þrátt fyrir að Mudryk hafi á tíðum verið mistækur þá væri hann velkomin viðbót við hópinn að mínu mati. Gæti ekki verið mikið verra en Garnacho í það minnsta.
Nottingham Forest menn eru í fanta formi bæði í Úrvalsdeildinni sem og í Evrópudeildinni. Líkt og okkar menn þá eru Forest búnir að hrófla vel á stjórum á tímabilinu en þeir eru á sínum fjórða. Það er óhætt að segja að Vítor Pereira sem tók við í febrúar hafi heldur betur verið rétt ráðning. Hann hóf liðið úr fallsætunum og sitja þeir nú í 16. sæti deildarinnar, fimm stigum frá fallsæti. Þeir eru í undanúrslitum Evrópudeildarinnar og unnu þar Aston Villa í fyrri leik einvígisins. Þrír fyrrum leikmenn Chelsea spila fyrir þá, Ola Aina, Omari Hutchinson og Hudson-Odoi en þeirra skeinuhættasti maður er þó að mínu mati Morgan Gibbs-White með 13 mörk á tímabilinu. Þeir eru ósigraðir í síðustu níu leikjum sínum í öllum keppnum, niðurstöður sem að okkar menn mættu fara að ná fram.
Ég myndi stilla liðinu upp nánast óbreyttu frá Leeds leiknum. Sanchez á milli stanganna. Chalobah og Tosin í hjarta varnarinnar, þurfum aftur á hæðinni á Tosin frænda að halda til þessa að fást við hávaxna Nýsjálendinginn Chris Wood. Cucurella og Gusto sem bakverðir. Miðsvæði skipað af Lavia, Caicedo og Enzo virkaði vel í síðasta leik og færði liðinu mikla stjórn á leiknum. Myndi setja Pedro Neto á vinstri vænginn og Palmer hægra meginn. Upp á topp, Joao Pedro. Búinn að vera einn af, ef ekki besti leikmaðurinn okkar á tímabilinu. Þrátt fyrir að Forest menn eru í bullandi formi ætla ég að spá okkar mönnum 1 - 0 sigri, Chalobah skorar markið úr föstu leikatriði.
Takk fyrir lesturinn og áfram Chelsea!!


Comments