Chelsea gegn Newcastle
- 6 days ago
- 4 min read
Keppni: Premier League
Tími, dagsetning: Laugardagur 14. mars kl: 17.30
Leikvangur: Stamford Bridge, Lundúnir
Dómari: Paul Tierney
Hvar sýndur: Sýn Sport
Upphitun eftir: Þráinn Brjánsson

Eftir væga rassskellingu í Parísarborg á miðvikudag er komið að því að taka á móti Newcastle í 30. umferð ensku úrvalsdeildarinnar og því skammt stórra högga á milli hjá okkar mönnum. Væg rasskelling segi ég og það gæti vakið upp spurningar en það voru einungis síðustu 20 mínúturnar sem hausinn vantaði og þeir frönsku kláruðu einfaldlega dæmið gegn sprungnu liði okkar manna. Þetta var raunar framan af fínasti leikur hjá Chelsea en Barcola kom þeim frönsku yfir strax á 10. mínútu en Malo Gusto jafnaði leikinn á þeirri 28. Það var svo rétt fyrir háĺfleik að Dembéle kom PSG í 2-1 og á brattann að sækja. Á 57. mínútu jafnaði Enzo Fernandez leikinn og allt var í járnum þar til Vitinha skoraði þriðja mark PSG og brustu þá allir múrar. Luis Enrique tók ákvörðun um að skipta Doué útaf fyrir Kvaratskhelia sem reyndist vendipunktur því hann launaði greiðann með því að skora tvö mörk og kom PSG þar með í 5 - 2 og við áttum því miður engin svör og allt of stór sigur Frakkanna staðreynd. Margt gott er hægt að taka út úr þessum leik okkar manna en ekki er hægt að segja að skiptingarnar hjá Rosenior hafi skilað miklu, en það verður að segjast eins og er að hvorki Lavia né Delap heilluðu mig frekar en fyrri daginn og ég er enn fullkomlega sannfærður um að Liam Delap er leikmaður sem á ekkert erindi í bláu treyjuna. En það voru fyrst og fremst síðustu 20 mínútur leiksins sem réðu úrslitum og vorum við einfaldlega sundurspilaðir. Þetta verður erfitt kvöld á heimavelli í síðari leiknum en ekki ómögulegt og kraftaverkin gerast enn. En stöldrum ekki allt of lengi við fortíðina og kyrjum áfram gakk.

Chelsea
Mikið óskaplega finnst mér vera skrítin ára í kringum klúbbinn okkar þessi misserin og allur strúktúr er orðinn mjög óþægilegur. Ég velti því mikið fyrir mér hvert markmið eigendana er? Hvers vegna velja þeir Chelsea til að verða einhver útungunarstöð fyrir leikmenn til þess eins að hagnast á þeim eftir eitt eða tvö ár? Með þessu áframhaldi er algjörlega útilokað að við séum að fara að berjast um einhverja titla. Það er vissulega virðingarvert að yngja upp hópinn en liðið er algerlega leiðtogalaust og ég held að stjórnin og þeir sem fara með peningamálin verði að fara að mynda sér skýra stefnu um hvert skal halda. Það gengur ekki upp að lofa öllu fögru og gefa í skyn að stór nöfn séu á radarnum og svo eru bara keyptir reynslulausir unglingar sem höndla ekki þá pressu sem þarna ríkir og einhverjir Championship leikmenn sem slysast til að skora nokkur mörk, en eru svo gjörsamlega gagnslausir á stóra sviðinu. Það sem þeir eru að gera með klúbbinn okkar er bara ekki ásættanlegt og þeir hefðu átt að finna sér eitthvað annað lið t.d. úr 3. deildinni til að gambla og leika sér með, ekki klúbb eins og Chelsea sem er einn af þessum stóru og á ekki að vera í þessum Matadorleik. En nóg af vangaveltum um stjórnunarhætti hjá klúbbnum og að öðrum hlutum en okkar ástsæli kafteinn hann Reece James hefur sett nafnið sitt á nýjan sex ára samning og er það jákvætt. Hann ætlar að halda tryggð við klúbbinn allt til ársins 2032 og það er mín von að hann sé kominn yfir allt of langt meiðslatímabil og sé til alls líklegur. Einnig eru góðar fréttir af Lewi Colwill en hann er kominn á grasið og byrjaður að æfa og það er afar jákvætt. Estevao er ekki tilbúinn og einhverjir dagar eru í hann og Pedro Neto verður fjarri góðu gamni enda með rautt spjald á bakinu. Að öðru leyti hefur meiðslalistinn oft verið lengri.
Newcastle
Eins og staðan er núna þá erum við í 5. sæti með 48 stig og lærisveinar Eddie Howe í Newcastle í 12. sæti með 39 stig. Þrátt fyrir þennan mun þá hafa drengirnir frá Newcastle oft reynst okkur erfiðir og vanmat er ekki í boði þessa helgina. Það eru margir leikmenn í liði Newcastle sem vert er að fylgjast vel með og má þar nefna Anthony Gordon, Joelinton, Sandro Tonali og Jacob Murphy. Markamaskínan þeirra og sennilega þeirra besti maður Guimaraes verður ekki með en hann er á sjúkralistanum, en liðið er stórhættulegt og nú ríður á að taka fram þungvopnin og keyra almennilega á þá og ná fram hagstæðum úrslitum en Newcastle náði góðu jafntefli við Barcelona í síðasta leik liðsins og hafa því sjálfstraustið með sér. Það má reikna með að Eddie Howe róteri liðinu sínu að einhverju leyti ef þeir ætla að eiga sér möguleika á að slá út Barcelona, þannig að mögulegt er að við græðum eitthvað á því, en aftur á móti erum við í nákvæmlega sömu aðstæðum gegn PSG. Það er lykilatriði að kroppa þrjú stig út úr þessum leik og halda okkur í meistaradeildarbaráttunni.
Liðsuppstilling og spá
Þá er komið að því ómögulega en það er klárt að Rosenior er ekkert að fara að breyta mikið til og mun halda sig við 4-2-3-1 og Sanchez mun verða í rammanum eftir glórulaus mistök Danans í leiknum gegn PSG. Í fjögurra manna varnarlínunni þar fyrir framan verða þeir Gusto, Chalobah, Sarr og Cucurella. Á miðjunni verða þeir Santos og Caicedo frammi til hliðanna verða þeir Palmer og Garnacho, Enzo verður í holunni og Joao Pedro verður sjóðheitur fremstur. Þetta verður fjörugur leikur sem við vinnum 3 - 2.
Góða skemmtun og áfram Chelsea!



Comments