top of page
  • Twitter Social Icon
  • Facebook Social Icon
Search

Chelsea gegn Man Utd

  • 43 minutes ago
  • 9 min read

Keppni: Úrvalsdeildin, 33. umferð

Tími, dagsetning: Laugardagur 18. apríl  kl: 19:00

Leikvangur: Stamford Bridge, Lundúnir

Dómari: Michael Oliver

Hvar sýndur: Sýn Sport

Upphitun eftir: Björgvin Óskar Bjarnason



Inngangur

Fyrir rúmum mánuði hittu félagar í mótmælendahópnum NotAProjectCFC  einn af stjórnarmeðlimum (director)  CHELSEA FC eða CFCLND, eins og fyrirbærið vill láta markaðssetja sig, Daniel Finkelstein lávarð, þar sem fóru fram heitar umræður um málefni félagsins. Finkelstein lávarður var fenginn til að sitja í stjórn Chelsea FC þannig að hún fengi á sig virðingarblæ. Hvergi í curriculum vitae eða ferilskrá þessa lávarðs, er að sjá að hann hafi nokkurn tíma komið nálægt fótbolta sem íþrótt nema sem blaðamaður á The Times þar sem hans framlag fjallaði mest um stjórnmál.


Þessi orðprúði lávarður missti sig þó alveg í samskiptum við einhverja í  NotAProjectCFC hópnum og lét þau orð falla „að það væri andskotanum augljósara (fucking obvius) að Chelsea væri að byggja upp eitt besta félagslið í heimi“. Hverjum það er ljóst (nema andskotanum)  er nokkuð á reiki. Ennfremur tilkynnti lávarðurinn þessum Chelsea mótmælendum að það væri ekkert rökfræðilegt samband á milli stjóra/þjálfara og árangurs á fótboltavellinum og klikkti út með að Luis Enrique hefði engan veginn hentað Chelsea FC sem stjóri/þjálfari. 


Það eru ekki margir talsmenn Chelsea sem koma fram fyrir skjöldu svo auðvitað verður að taka Lord Finkelstein alvarlega. Að vísu var Rosenior ráðinn til að koma fram fyrir hönd BlueCo og spinna þráðinn sem yfirmennirnir gaukuðu að honum. En er Rosenior sennilega meiri og betri málpípa en þjálfari, því hann virðist gjörsamlega vanhæfur í því starfi sem hann var fenginn til að sinna. Að koma skikki á þetta „mögulega besta félagslið í heimi“ svo vitnað sé í Finkelstein. Veruleikafirringin hjá þessum bandarísku eigendum Chelsea er algjör en samt er látið eins og allt sé með felldu, verkefnið á áætlun og árangurinn í samræmi við væntingar. Nýju fötin keisarans blekkja ekki áhangendur og velunnara Chelsea og þeir vilja þetta eignarhald í burtu. Við erum engir finkelsteinar.


Á þessum rúma mánuði frá upplýsingafundi (aðilar sammæltust um þagmæli sem brast) Finkelstein lávarðs hefur Chelsea leikið fimm leiki í deild og Meistaradeild og einn í FA bikarnum þar sem liðið mætti þriðju deildarliði og VANN. Í hinum fimm „alvöruleikjunum“ tapaði Chelsea öllum viðureignum (þrír heimaleikir og tveir á útivöllum) með markatölunni 14-2 (hver man ekki þá tölu?). Í síðustu þremur leikjum í deildinni hefur Chelsea fengið á sig 7 mörk og skorað nákvæmlega ekkert. Það hefur ekki gerst í tæp 40 ár að Chelsea skori ekki þrjá leiki í röð í deildarleik.


Það sem er verra er að leikmenn liðsins brotna við minnstu ágjöf og hreinlega gefast upp í smá mótvindi og pusi. Af þessum fimm leikjum hafa fjórir endað með þremur mörkum eða meira. Það eru mikil afturför frá Maresca tímanum þar sem einbeitingin týndist stundum í smá tíma með slæmum árangri. Sérstaklega gegn „lélegri“ liðum. Nú eru það heilu hálfleikarnir eða jafnvel allur leikurinn. Og þjálfarinn veit hvorki haus né hala á hvað á bjátar inn á vellinum og bullar svo einhverja froðu í hinu hefðbundna viðtali eftir leik.

BlueCo eða frekar meirihlutaeigandi í BlueCo sem er Clearlake Capital undir stjórn Eghbali hefur þröngvað sínu rekstrarmódeli upp á minnihlutaeigendurnar. Í meginmáli felst það í að kaupa ungan efnivið, gera langa samninga, borga lág grunnlaun en árangurstengja þau, reyna að efla leikmenn og þroska og selja þá síðan með hagnaði. Og ráða þjálfara sem hlýðir í einu og öllu skipunum að ofan.


Má segja að BlueCo hafi keypt frægan Michelinstjörnu veitingastað og breytt honum í „sitt model“. Byrjað á því að reka yfirkokkinn og ráða nokkra millistjórnendur með enga reynslu í matseld í staðinn. Láta alla reyndu kokkana fara og ráða unglinga á lágmarkslaunum í anda McDonalds í staðinn, en að vísu einn hjálparkokkur svo að staðurinn fengi rekstrarleyfi. En hann réði engu um hráefnið. Hvorki millistjórn eða yfirstjórn kunni inn á hráefnamarkaðinn og því var keypt nýtt (ungt) hráefnið á okurverði þar sem milliliðir hirtu gróðann eða verslað var dýrt við annað framleiðslufyrirtæki nálægt Hove í Austur-Sussex . Síðan var reynt að fjöldaframleiða vöru sem ekki féll í kramið hjá þeim sem unnu þessum Michelin veitingarstað þótt eigendurnir reyni að telja þeim trú um að gæðin og bragðið sé það sama. Það eina sem er sama er verðið sem tryggur viðskiptavinurinn borgar fyrir herlegheitin.


Hjálparkokkur heitir Rosenior og hefur sannað hversu veruleikafirrtir millistjórnendur og eigendur Chelsea eru að ráða þjálfara sem hefur litla sem enga reynslu í þjálfun afreksliðs í knattspyrnu og er ráðinn einfaldlega vegna þess að hann er „smooth talker“. Chelsea þarfnast þjálfara sem kann og veit, en ekki málpípu eða klefavin. Því miður tel ég Rosenior frekar blóraböggul og fórnarlamb vanhæfra milli- og yfirstjórnenda Chelsea sem þurfa einhvern til að taka ábyrgðina þegar illa gengur. Því ekki hafa þeir axlað ábyrgð á því sem miður hefur farið hjá Chelsea síðan BlueCo laug sig inn á breska verkalýðsflokkinn með góðum fyrirheitum að fóstra Chelsea þannig að allir væru sáttir. Ekki síst áhangendur. Nú blasir við að Chelsea nái ekki Evrópudeildarsæti og fari á mis við 100 miljón punda í tekjur. Ansi er ég hræddur um að Rosenior verði fyrsta fórnalambið í „endurskipulagningunni“. Því miður er ég hræddur um að sumir okkar reyndari leikmanna hugsi sér til hreyfings þrátt fyrir langa samninga. Nú hefur komið í ljós að þrátt fyrir mettap á síðast tímabili og sennilega mettap nokkurs félags undir stjórn einnar samsteypu hefur BlueCo ákveðið að hækka laun millistjórnenda, yfirstjórnenda og stjórnarmanna um 60-80% á milli ára. Geri aðrir betur.


Maresca eða Rosenior

Undir stjórn Maresca var leikinn frekar varkár bolti og áhersla lögð á að halda boltanum og nokkuð skipulagða vörn þótt meiðsli hamlaði því að Chelsea gæti stillt upp sínu sterkasta varnarliði eða sóknarlið. Þrátt fyrir ákall Maresca um að styrkja vörnina (miðvörð og markmann) þá hunsaði yfirstjórnin beiðnina og keypti tvo gagnslitla og dýra unglinga á vinstri vænginn svona eins og maður gerir yfirleitt í krísustjórnun. Þrátt fyrir þetta náði Maresca að berja saman vörnina og ekki síður að blása örlitlu hugrekki í litla hjartað sem berst í markmanninum okkar (þá á ég ekki við þann handalausa). Með vaxandi skipulagi í sókn og vörn náði Maresca að gera Chelsea að fjórða besta sóknarliði deildarinnar og fimmta besta varnarliði samkvæmt tölfræði. Og það mikilvægasta var að þrátt fyrir endalaust púsl með öftustu varnarlínuna þá var Chelsea í öðru sæti er laut að því að halda markinu „hreinu“.  Maresca vissi alveg hvað hann var að gera og kom meira að segja sér reyndari þjálfurum á óvart með taktískum barbabrellum. En í grunninn var leikinn varkár bolti þar sem áherslan var lögð á að halda boltanum innan liðsins. 


Rosenior lét Strasbourg leika blússandi sóknarleik þar sem hann hvatti miðverðina til að taka þátt í sókninni og lét markmanninu leika framalega og  að „svípa“ í vörninni. Og uppskar þannig mörk en í staðinn var Strasbourg „útsett“ fyrir skyndigagnsóknum og ódýrum mörkum. Rosenior yfirfærði strax það sem hann kunni og gerði hjá Strasbourg og árangurinn lét ekki á sér standa. Honum tókst að rústa sjálfstrausti Sanchez í fyrsta leik og þar með varnarinnar og markaræpan byrjaði eiginlega strax. Undir stjórn Rosenior hefur Chelsea leikið 21 leik en í tæplega helming (10) þeirra hefur Chelsea fengið á sig 2 mörk eða fleiri. Mikið af þessum mörkum eru ódýr klaufamörk sem dreifast eiginlega á alla varnarmennina vegna einstaklingsbundinna mistaka í þeirri  varnaringulreið sem liðið leikur.



 


Með þessu leikskipulagi hefur Chelsea dottið úr fimmta sæti sem traustasta varnarliðið í deildinni í það sextánda þrátt fyrir að reyndir menn eins og James og Fofana hafi haldist nokkuð heilir framan af undir stjórn Rosenior. Aftur á móti er Chelsea ennþá talið vera fjórða besta sókarliðið í deildinni hvernig sem á því stendur. Þessi aukni sóknarleikur Rosenior hefur ekki fært Chelsea fleiri mörk, þrátt fyrir að xG liðsins hafi aukist þá gengur illa að skora svo munar 10 eða fleiri mörkum í þeirri tölfræði (xG v. mörk).


Annað sem hefur verið áberandi undir stjórn Rosenior er hvað liðið hleypur minna en t.d. hjá fyrri þjálfara. Oft sem nemur næstum „heilum leikmanni“.  Margir vilja meina að „betri“ lið sem stjórni leiknum hlaupi ekki eins mikið því „lélegri“ liðin verði að hlaupa til að halda lífi. Það er satt að vissu leyti en þau lið sem hlaupa mest í deildinni og skara fram úr er Manchester City en fast á hælana kemur Arsenal þannig að þessi kenning stenst ekki. Til skamms tíma hlupu leikmenn Liverpool manna mest en aðeins hefur dregið úr því og einnig úr árangrinum.


Chelsea-Manchester City

Undir stjórn Rosenior hefur liðinu smám saman farið aftur í getu frá því hann tók við því. Á meðan hafa flest lið bætt sig. Þar á meðal það liðið sem við lékum við síðasta sunnudag Manchester City. Þeir voru í vandræðum fram eftir vetri, sérstaklega varnarlega. En alvöru félög rýna í vandann og leysa hann á raunsæjan og skynsamlega máta. Markmaður, sem stóð Chelsea til boða, var keyptur. Miðvörður og fyrrum Cobhamdrengur (hjá Chelsea 2007-2021) var einnig keyptur. Sá stóð Chelsea einnig til boða. Ásamt öðrum kaupum (sem virka eins og Cherki og snilli Guardiola að „þróa“ leikmenn eins og O´ Reilly) þá hefur ManCity risið úr öskustónni síðustu mánuðina í mögulega atlögu að Englandsmeistaratitlinum). 


Chelsea stóð alveg í ManCity í fyrri hálfleik og átti þokkaleg tækifæri. Í seinni hálfleik var eins og Chelsea hefði skipt út öllu sínu liði fyrir einhverja bumbuboltagaura og Citymenn ýttu bumbunum hreinlega af boltanum og hlupu yfir okkar leikmenn (ManCity 114.3 km Chelsea 105.8) svo illilega að tveir öftustu leikmenn City skoruðu sitt hvort markið. Ekki úr föstum leikatriðum heldur eins og framherjar í sóknum. Þriðja markið var svo dæmigert Chelsea-varnarklúður sem maður er eiginlega orðinn vanur og býst við í hverjum leik. Eftir fyrsta markið gáfust okkar leikmenn upp eins og svo oft áður eftir áramótin. Þjálfarinn vissi auðvitað ekkert hvað gera ætti frekar en fyrri daginn. Ég fékk hálfgert þunglyndiskast því Chelsea á eftir að leika við Manchester United, Forest og Spurs á Brúnni en Brighton, Liverpool og Sunderland úti. Ég reiknaði með tapi fyrir Man Utd, Brighton og Liverpool en jafntefli og/eða mögulega sigur í hinum þremur. Eða 3 til 9 stig og mundum þá enda í 51-57 stigum sem gerði 9-12 sæti tímabilið 2024-25.


Ég var ekki greinilega ekki sá eini sem lagðist í þunglyndi í seinni hálfleik gegn Man City. Þögnin á Stamford Bridge sýndi að það voru fleiri sem voru agndofa yfir algeru getuleysi okkar manna. Og áhorfendastæðin tæmdust mjög hratt er líða tók á leikinn. Merki um það að áhangendum er nóg boðið enda er boðað til mótmæla gegn BlueCo á Brúnni í næsta leik gegn Man Utd nk. laugardag. Almenningstengslaöfl félagsins hafa lekið því sem mótvægi að stjórnendur Cheslea séu að hugleiða að fá til sín REYNDAN miðvörð í næsta „glugga“. Og tvo frekar en einn. Flestir mundu segja að þetta væri nokkuð seint í rassinn gripið. Maresca benti á það í byrjun leiktíðar (þegar Colwill meiddist) að nauðsynlegt væri að fá miðvörð sem hefði SANNAÐ sig frekar en að vera efnilegur og mögulega lofað góðu. Maresca ítrekaði þessa ósk/kröfu sína í janúarglugganum en okkar vanhæfu millistjórnendur og yfirstjórnendur hunsuðu þá beiðni þannig að Maresca var nóg boðið og sagði bless við félag þar sem heimskan ríður ekki við einteyming í stjórnun.


Chelsea-Manchester United

Í síðustu viðureignum Chelsea og Man Utd (frá 2021) hefur Chelsea aðeins unnið einn sigur, 4-3 á Brúnni þegar Palmer galdraði fram nokkur mörk á lokamínútum. Það var í þá gömlu góðu daga. Ég var eiginlega búinn að bóka tap gegn Man Utd í væntanlegri rimmu okkar næsta laugardag. Þangað til ég sá leik þeirra við Leeds á mánudagskvöld. Það verður að segja Leeds það til hróss að þeir hlupu úr sér lifur og lungu eða 117.2 km á móti 110.2 km Man Utd í leikum og unnu sanngjarnt. Til gamans má geta þess að meðaltalshlaup okkar manna í Chelsea er um 107-108 km þannig að við þurfum að gefa í gegn Leeds í bikarnum.


En það sem vakti eiginlega furðu mína var vörn Man Utd. Hafi ég séð vanhæfni og flumbrugang í Chelseavörninni þá kastaði tólfunum hjá þeim félögum Lammens, Yoro og Martinez í klaufaskap og slælegri varnarvinnu. Á endanum var Martinez rekinn út af fyrir ögrandi kúkurella (hártog) sem þýðir að Man Utd verður án reyndra miðvarða (de Ligt er meiddur og McGuire kjaftaði sig í rautt spjald á hliðarlínunni) á móti okkur þannig að leikurinn jafnast töluvert. Að vísu gerist Mazraoui (bakvörður) hatrammur í hvert skipti sem hann leikur gegn okkur og Shaw (bakvörður) er sá leikmaður Man Utd sem á flestar sendingar ásamt Fernandes þannig að vængmennirnir okkar verða að halda aftur af þeim.

Enzo kemur aftur inn í liðið en ég held að James og Chalobah séu ekki klárir í slaginn þannig að ég set Sanchez í markið og Gusto og Cucurella sem bakverði. Fofana hægra megin og Hato vinstri miðvörð. Caicedo og Santos/Lavia á miðjunni. Síðan Neto, Palmer og Enzo og Pedro fremst.


Ég tel að það lið sem heldur haus í vörninni og gerir færri mistök muni vinna leikinn. Hafi ég verið bjartsýnn fyrir hönd okkar manna  gegn Man Utd þá er það núna. Nema að Rosenior sé búinn að breyta okkar leikmönnum endanlega í froðu.


Björgvin Óskar


Eftirskrif:


Mótmæli á Stamford Bridge – kröfuganga og samstöðufundur. 

Ég vil vekja athygli á því að  mótmælendahópurinn NotAProjectCFC stendur fyrir mótmælum gegn BlueCo, eigendum Chelsea FC. Ultra Boys 90, Kop Ciel et Blanc, Federation des Supporters du RCS and Pariser sem eru stuðningsmannahópar Strasbourg munu taka þátt í kröfugöngunni og mótmælastöðunni fyrir utan Stamford Bridge með NotAProjectCFC. Mótmælin lúta auðvitað að eignarhaldi BlueCo og VERKEFNINU eins og þeir kalla það.   



Stund og staður: "We will walk towards Stamford Bridge from the Wolfpack Inn and finish at The Butcher’s Hook, the birthplace of our beautiful football club.“


"If you cannot make the starting point, you can join along the route. Once we arrive, the protest will continue," the protest group NotAProjectCFC stated.


 
 
 

Comments


  • Grey Google+ Icon
  • Grey Twitter Icon
  • Grey LinkedIn Icon
  • Grey Facebook Icon

© 2023 by Talking Business.  Proudly created with Wix.com

bottom of page