Chelsea gegn Man City
- Apr 11
- 5 min read
Keppni: Úrvalsdeildin, 32. umferð
Tími, dagsetning: Sunnudagur 12. apríl kl:15:30
Leikvangur: Stamford Bridge, Lundúnir
Dómari: Chris Kavanagh
Hvar sýndur: Sýn Sport
Upphitun eftir: Bjarna Reynisson

Okkar menn áttu í engum erfiðleikum með þriðjudeildar liðið Port Vale í átta liða úrslitum FA bikarsins um síðustu helgi. Í fullri hreinskilni er fimm núll sigur örugglega lágmarkið gegn slíkum andstæðing sem að situr á botni þriðju deildarinnar en við gerðum betur en það og skelltum þeim 7 - 0. Allir Brassarnir okkar, Pedro, Santos og Estevao, komust á blað og gleðin var svo mikil að jafnvel Tosin frændi krækti í eitt. Hato og Garnacho skoruðu sitthvort markið og Port Vale varnarmaðurinn Gabriel setti eitt í vitlaust mark. Tökum þessum sigri fagnandi enda hafa úrslitin upp á síðkastið alls ekki verið nægilega góð. Ef við rýnum í undanfarna 10 leiki í öllum keppnum þá hafa fjórir af þeim unnist, einn leikur endað í jafntefli og fimm leikir tapast. Ekki frábært form en gæti klárlega verið verra. En það sorglega í þessu er að aðeins einn af sigurleikjunum er gegn Úrvalsdeildarliði, þrír af sigrunum eru gegn liðum úr Championship deildinni, jafnteflið var gegn Burnley sem eru í fallsæti og töpin komu gegn Newcastle, Everton, Arsenal og PSG í tvígang. Engin furða að margir stuðningsmenn klúbbsins snúi sér að samfélagsmiðlum Enzo Maresca og lýsa yfir hversu mikið þeir sakna hans. Það eru búin að vera tækifæri í nokkrum af síðustu umferðum til að nýta það að okkar helstu keppinautar um Meistaradeildarsæti á næsta tímabili hafa verið að misstíga sig gegn minni spámönnum. Okkar menn hafa hins vegar ekki nýtt sér þessi tækifæri og sitjum við því í sjötta sæti deildarinnar þegar þessi umferð rúllar af stað. Það ýtti aðeins undir möguleikann á Meistaradeildarsæti þegar staðfestingin kom á dögunum að enska deildin fengi úthlutuð fimm sæti í Meistaradeildinni þökk sé góðu gengi í keppninni í ár. Ég hef því miður ekki mikla trú að að Rosenior náði að stýra liðinu að topp fimm
Slúðrið stoppar aldrei og nú er verið að orða Nottingham Forest miðvörðinn Murillo við Chelsea ásamt Van Hecke leikmanni Brighton. Það virðist vera stefna yfirmanna íþróttamála klúbbsins að versla leikmenn og stjóra með tengingu við Mávana því að við erum einnig sterklega orðaðir við miðjumann Strasbourg, Valentín Barco, en hann spilaði áður með Brighton. Mér finnst það gífurlega kaldhæðnislegt að stjórnin sé tilbúin að eyða peningum í þessum sumarglugga í miðvörð þar sem hún var ekki tilbúin að eyða í þá stöðu fyrir núverandi tímabil að beiðni Enzo Maresca. Ætla Eghbali og co ekki að fara að læra af mistökum sínum og styðja við og styrkja liðið með þeim hætti sem að hefur alltaf skilað árangri í ensku úrvalsdeildinni. Þú kaupir topp leikmenn og treystir ekki eingöngu á unglinga, jafnvel þó að þeir séu þeir efnilegustu í heimi. Þú hlustar á stjórann sem að þú hefur ráðið og bakkar hann upp þegar hann biður um styrkingu í ákveðna stöðu á vellinum. Ef að þú ert ekki tilbúinn að bakka hann upp, þá hefðir þú ekki átt að ráða hann til að byrja með.
Einn maður sem ég get ímyndað mér að sé orðinn þreyttur á sirkúsnum sem Chelsea hefur verið frá yfirtöku BlueCo á klúbbnum er Enzo Fernandez. Hann hefur spilað sig upp í að vera vara fyrirliði klúbbsins með góðum frammistöðum á vellinum og berst fyrir klúbbinn með kjafti og klóm. Undanfarið hefur umræðan um hann þó ekki snúist um frammistöðuna á vellinum heldur aðallega um síendurtekin tengsl hans við Real Madrid. Í nokkur skipti hefur hann sjálfur gefið í skyn að hann hafi mikla aðdáun á félaginu og borginni Madríd. Bæði í viðtölum og á samfélagsmiðlum. Það hefur eðlilega vakið spurningar og reiði meðal stuðningsmanna um framtíð hans hjá félaginu.
Klúbbsgoðsögnin John Terry hefur tjáð sig um þetta en hann hvatti Enzo til að einbeita sér að því sem gerist á vellinum og láta fótboltann tala. Hann benti á að leikmenn þurfi að sýna félaginu virðingu og hollustu, sérstaklega þegar liðið er í erfiðri stöðu, og að stöðugur orðrómur um framtíð leikmanna hjálpi hvorki liðinu né leikmanninum sjálfum. Enzo sjálfur hefur ekki gengið svo langt að lýsa yfir neinni raunverulegri óánægju eða vilja til að fara, en þegar að hlutirnir eru ekki að ganga vel á vellinum fyrir liðið þitt þá getur þú sem vara fyrirliði ekki verið að daðra opinberlega við aðra klúbba þegar að þú átt að halda hausnum niðri og berjast fyrir liðið sem að þú ert samningsbundinn. Þrátt fyrir að þetta mál sé nánast komið í baksýnisspegilinn og Enzo hafi beðið samherja sína, stuðningsmennina og alla viðeigandi afsökunnar þá var það ákvörðun klúbbsins að hann skyldi sæta tveggja leikja banni fyrir hegðun sína og ummæli. Skiljanleg ákvörðun að vissu leyti, að sýna að það séu afleiðingar en þetta bitnar samt sem áður mest á liðinu sjálfu þar sem að Enzo er búinn að vera þrusu flottur á þessu tímabili.
Framundan er erfiður leikur við Manchester City, eina liðið sem eyðir peningunum sínum jafn kæruleysislega og við. Það er eitthvað rotið í fjármálunum hjá þeim og bíða þeir úrskurðar í 115 kæruliðum fyrir brot á fjárhagsreglum Úrvalsdeildarinnar. Stuðningsmenn Spurs hljóta að vera einna spenntastir fyrir því að þeir fái um það bil 60 stiga refsingu, en það gæti verið það eina sem bjargar þeim frá falli. Við höfum sótt marga leikmenn sem komu úr akademíunni hjá City en þar má helst nefna, Cole Palmer, Romeo Lavia, Delap, Tosin, og Jamie Gittens. En þar af tel ég að aðeins tveir muni vera í byrjunarliðinu á sunnudaginn kemur. City eru nú þegar búnir að tryggja sér einn bikar á tímabilinu þegar þeir lögðu Arsenal í úrslitum Carabao bikarsins og þá eru þeir ekki alveg dottnir út úr titil baráttunni í Úrvalsdeildinni. Gengið gegn City hefur ekki verið gott í dágóðan tíma en þess má geta að við unnum þá síðast á Brúnni í júní árið 2020. Norska markamaskínan Erling Haaland var þá búinn að hafa hægt um sig frá áramótunum en hann skoraði 19 mörk fyrir áramót en hefur bara skorað þrjú mörk í þeim 12 deildarleikjum sem hafa verið spilaðir síðan þá. Því miður fyrir okkar menn virðist hann þó vera að hrökkva í gang aftur en hann setti þrennu gegn Liverpool í undanúrslitum FA bikarsins um síðustu helgi.
Rosenior hefur úr flottum hóp að velja fyrir þennan leik enda meiðslalistinn temmilega stuttur. Við erum helst þunnir fyrir í vörninni en Reece James er enn meiddur ásamt Colwill og Chalobah. Eins og áður sagði þá er Enzo áfram í banni þrátt fyrir afsökunarbeiðni sína. Á vinstri vængnum er einnig smá skortur vegna meiðsla Jamie Gittens og banni Mudryk. Ég myndi stilla liðinu upp með Sanchez í markinu, Gusto og Cucurella í sitthvorri bakvarðar stöðunni með Fofana og Hato í hjarta varnarinnar. Caicedo og Lavia þar fyrir framan ásamt Andrey Santos. Neto á vinstri vængnum með Cole Palmer hægra megin og Joao Pedro upp á topp.
Ég er langt um bjartsýnn fyrir þennan leik og spái að við lútum lægra haldi með einu marki gegn tveimur.



Comments