Chelsea gegn Leeds í FA bikar
- 23 hours ago
- 10 min read
Keppni: Enska bikarkeppnin - undanúrslit
Tími, dagsetning: Sunnudagur 26. apríl kl: 14.00
Leikvangur: Wembley, Lundúnir
Dómari: Jarred Gillet
Hvar sýndur: Viaplay
Upphitun eftir: Hafstein Árnason

Við sem aðdáendur Chelsea höfum séð það ansi svart í gegnum tíðina, en aldrei eins ljótt og lélegt og frammistaðan var gegn Brighton í vikunni. Þessi leikur reyndist svanasöngur Liam Rosenior sem stjóra Chelsea. Leikurinn fór 3-0 og strax í upphafi var ekki að spurja að leikslokum. Heimamenn komust yfir eftir þriggja mínútna leik. Chelsea leikmennirnir voru í þessu verkefni af hálfum hug. Brighton áttu í engum vandræðum með spila sig í gegnum miðjuna eða skora úr föstum leikatriðum, sem er endurtekið stef hjá Chelsea á þessu tímabili. Markið hjá Danny Welbeck var langur bolti frá markmanni yfir á kantmann sem sendi auðvelda sendingu á Welbeck sem kláraði sitt af yfirvegun. Þessi leikur var ein mesta hneisa í sögu Chelsea. Fimmti tapleikurinn í röð í deild og án þess að skora. Eitthvað met sem var slegið frá 1912 þegar þessi ágæta íþrótt var á sínu frumstæðasta skeiði. Það var augljóst að leikmennirnir voru hættir að spila fyrir stjórann. Moises Caicedo var í öðrum gír allan leikinn. Pedro Neto slapp nánast einn fyrir vörnina á kantinum í skyndisókn en ákvað að hægja á sér og spila boltanum til baka. Robert Sanchez átti ömurlega sendingu í upphafi leiks sem kostaði nánast mark. Dæmin eru of mörg til að telja upp. Við höfum áður séð þegar leikmenn taka sér valdið í hendur og hætta að spila fyrir stjóra. Það gerðist með Luis Felipe Scolari, Andre Villas-Boas og Rafael Benítez. Það var þó aldrei eins slæmt og ástandið er núna og í þetta skiptið var Behdad Eghbali viðstaddur.

Strax eftir leikinn henti Liam Rosenior leikmönnum fyrir rútuna, og það má segja að hann hafi eitthvað til síns máls, þar sem þeir voru sannarlega hræðilegir í öllum sínum aðgerðum. En moldin fýkur ekki í logni. Moises Caicedo var fyrirliði liðsins, þrátt fyrir að Enzo var kominn til baka úr banninu sem Liam og stjórn Chelsea settu hann í, fyrir að daðra við þá hugmynd að það væri gott að búa í Madríd. Eiður Smári Guðjohnsen nefndi það í Dr. Football hlaðvarpinu að leikmenn Chelsea væri almennt meinað að tala um þessi mál á meðan þeir væru í landsliðsverkefnum. Marc Cucurella fékk áminningu frá stjórn fyrir svipað atriði. Það er því nokkuð ljóst að Liam Rosenior hefur misst klefann og það hefur haft lengri aðdraganda. Við vitum ekki alla söguna hvað gekk á baksviðs, en þetta blasir við.
Greinarhöfundur var alveg seldur á þá hugmynd að láta Liam Rosenior taka við Chelsea, þrátt fyrir að CV'ið hans væri ekki upp á marga fiska. Hann hafði komið Strasbourg í Evrópukeppni með eitt yngsta lið Evrópu með spennandi leikskipulagi. Það væri nóg til að sannfæra stjórnendur Chelsea að þetta væri þjálfari sem gæti þróað leikmenn komið verkefninu áfram. Það er þó mikil áskorun að taka við eins stórum klúbbi og Chelsea. Framan af ráðningu Rosenior var enginn tími til að drilla nýjar hugmyndir eða leikplön, þar sem liðið var að spila tvisvar sinnum í viku í heilan mánuð. Smátt og smátt fór Rosenior að prófa sig áfram með hugmyndir í leikjum sem í heildina mætti segja að það virkaði ekki. Leikstjórnun hjá honum, sem við þekkjum betur sem "in game management" var ekki sérstaklega góð, og í stóru leikjunum var það mest áberandi. Ekki bætti úr skák með framkomu Rosenior í viðtölum þar sem hann lét furðuleg ummæli falla, bæði um sig, liðið og leikmenn ítrekað. Sumt varð að aðlátursefni, sérstaklega hvað hann þótti grobbinn. En með hverjum óhagstæðum úrslitum snérist andrúmsloftið gegn Rosenior. Umræðan í kringum klúbbinn var orðinn of neikvæð og því fór sem fór. Maður vorkennir Rosenior í ákveðnum skilningi, að hafa komið inn á miðju tímabili og ekki alveg náð að setja sitt handbragð á liðið, líkt og ef hann hefði fengið undirbúningstímabil og nokkra leikmenn fyrir sinn leikstíl, en hann mun hafa það ágætt með starfslokasamning upp á ca. 4 milljónir punda, ef við gefum okkur það að hann hafi fengið árslaun í starfslok.
Eftir stendur þó hið raunverulega vandamál. Það eru stjórnarhættir BlueCo og yfirmanna knattspyrnumála. Paul Winstanley, Joe Shields og Laurence Stewart sérstaklega. Einhver af þeim staðhæfðu við Enzo Maresca að hópurinn væri nógu góður þátt fyrir meiðsli Levi Colwill í upphafi undirbúningstímabilsins. Einhver af þeim, með eða án Eghbali or Boehly lentu upp á kant við Maresca sem leiddi til þess að sá ítalski sagði upp starfinu sínu í lok síðasta árs, eftir einhverskonar átök sem Maresca nefndi á blaðamannafundi. Þeir eru líka ábyrgir fyrir því að leikmannakaup hafa verið mislukkuð. Joe Shields sem beina tengingin við akademíu Manchester City ber höfuðábyrgð á því að Liam Delap hafi verið keyptur til liðsins. Delap hefur tvö mörk í 36 leikjum öllum keppnum. Árangurinn á vellinum er síst skárri hjá Jamie Gittens með 1 mark og 5 stoðsendingar í 27 leikjum. Alejandro Garnacho er með 8 mörk og 4 stoðsendingar í 40 leikjum, þar sem þorri markanna voru gegn neðri deildar liðum í deildarbikarnum. Einu ljósu punktarnir eru Joao Pedro með 19 mörk og 9 stoðsendingar í öllum keppnum, í 45 leikjum og Estevao er með 8 mörk og 4 stoðsendingar í 36 leikjum. Vissulega svipaðar tölur og hjá Garnacho, en í 400 færri spiluðum mínútum, en hann náði vissulega að töfra gegn Barcelona. Félagið hefur keypt 55 leikmenn frá 2022 með mismunandi áherslum og væntingum. Þorri leikmanna hafa komið í gegnum tengslanet yfirmanna knattspyrnumála. Ef við ættum að telja leikmannakaup sem farsæl kaup, þá væru þau sennilega færri en 10 leikmenn. Okkur var talin trú um að rannsóknarvinna og gagnaöflun væri drifkrafturinn á bakvið kaupin í dag. Leikmenn keyptir ungir, og tiltölulega ódýrt. Hugsunin var að kaupa ódýrt í dag, frekar en dýrt seinna. Besta dæmið er klárlega Estevao. En eins og skáldið sagði, í draumi sérhvers manns er fall hans falið. Þessi harða stefnumótun að kaupa unga og óreynda leikmenn, en samt ná árangri á vellinum er mjög erfið til samhæfingar. Hún er ómöguleg þegar stjórnin rekur þjálfara eða gerir þeim ókleift að starfa áfram með reglubundnum hætti. Það tók Pochettino sirka 8 mánuði til að koma Chelsea í frábært stand og Maresca skilaði tveimur titlum í lok síðasta tímabils. Í báðum tilvikum voru ósætti með leikmannamál það sem steytti skútunni á skerinu. Þessi stjórn hefur eytt fjármagni upp á sirka 2 milljarða punda og í 55 leikmenn og uppskeran er lið sem er án heimsklassa markvarðar, miðvarðar og framherja. Í framhaldinu af þessu er frammistaða Chelsea í efnahagsþáttum eins og með auglýsingasamninga framan á treyjum í fullkominni óreiðu. Liðið er engu nær með nýjan völl til að drýgja tekjur og það sem verra er, að það hefur víst ekki verið uppselt á Stamford Bridge allt þetta tímabil. Viðvörunarljósin blikka allstaðar og það virðist ekki vera einhugur innan stjórnar, þar sem Todd Boehly er í minnihluta gegn Egbhali og Feliciano hjá Clearlake capital um hvernig málum sé háttað í stjórnarherberginu. Ef við Chelsea aðdaéndur förum ekki að sjá snöggar breytingar, bæði í frammistöðu á velli og stjórnarherbergi, má alveg eins búast við því að mótmælin gegn stjórn verði enn háværari. Það er stutt eftir af tímabilinu og liðið er enn í séns um einn bikar, þann elsta og virtasta. Í fjarveru Rosenior mun Callum McFarlane stýra liðinu. McFarlane er ekki einu sinni með UEFA Pro gráðu. Ekki þótti tiltækt að ráða tímabundinn interim-stjóra út tímabilið, en af gefinni reynslu, hefði ég verið í stjórn, þá hefði ég tekið samtalið við Guus Hiddink, Claudio Ranieri eða einhvern annan álíka stjóra sem er við lok starfsævi til að sigla skipinu í höfn. Ég hef enga trú á hæfileikum McFarlane. Þetta er í raun undir leikmönnum komið hvernig þeir ætla að klára tímabilið. Það er eins gott að þeir rífi sig í gang og klári þetta með sæmd. Sumir leikmannanna telja sig eiga erindi í stærstu klúbbana í heiminum í dag. Það er því þeirra að sýna fram á að þeir séu tilbúnir í áskorunina að vinna Englandsbikarinn og koma liðinu í Evrópukeppni. Ef þeim mistekst það, þá sýnir það svart á hvítu, hversu alvarlega "out of touch" þeir eru. Í framhaldi af brottrekstri Liam Rosenior hefur Gróa á Leiti farið á flakk með að orða allskonar stjóra við félagið. Af biturri reynslu, verða stjórnarmenn að endurskoða hliðarskilyrðin sem þeir setja. Gengur það upp til lengdar að fá einungis "já menn" í starfið? Það stórefast greinarhöfundur upp. Menningarmunur Bandaríkjanna og Englands er jafnvel of mikill í þessu tilviki. En veðbankar hafa tekið saman líklega arftaka.
1. Andoni Iraola (Líkur: 7/4)
Kostir: Hann er taktískur nútímaþjálfari úr Marcelo Bielsa skólanum sem dýrkar aggressífa hápressu. Hjá Bournemouth sýndi hann að hann getur skipulagt varnarleik án þess að fórna sóknarþunga. Hann er þegar með reynslu úr ensku úrvalsdeildinni og væri ódýrasti kosturinn þar sem hann er að losna undan samningi.
Gallar: Hann hefur aldrei stýrt „risaklúbbi“ með tilheyrandi væntingum og fjölmiðlafári. Spurningamerki er hvort leikmannahópur Chelsea, sem virkar andlaus, hafi úthaldið í þann mikla hlaupakraft sem hans fótbolti krefst. Hvað má það kosta í meiðslum? Við munum Pochettino tímann.
2. Marco Silva (Líkur: 5/1)
Kostir: Silva er „tilbúinn“ stjóri sem þekkir Lundúnaborg og deildina út og inn. Hann er þekktur fyrir að vera mjög skipulagður og kröfuharður, sem gæti verið nákvæmlega það sem leikmannahópur Chelsea þarf á að halda til að fá agann á rétt ról.
Gallar: Hann er samningsbundinn hjá Fulham og Chelsea þyrfti að greiða hátt lausnargjald. Einnig hafa sumir áhyggjur af því að hann sé „öruggt“ val frekar en „spennandi“ val sem skilar liðinu aftur í titilbaráttu.
3. Cesc Fabregas (Líkur 6/1)
Kostir: Hann er goðsögn hjá félaginu og fengi strax 100% stuðning úr stúkunni. Hann spilar mjög fallegan og sóknarsinnaðan bolta. Hann myndi aldrei fara í "haramball" líkt og Arteta hjá Arsenal. Þessi leikstíll Fabregas myndi henta tæknilegum miðjumönnum eins og Enzo Fernández og Cole Palmer.
Gallar: Reynsla hans sem aðalþjálfari er nánast engin á þessu stigi. Að kasta honum inn í eldið á Stamford Bridge núna gæti endað eins og með Frank Lampard — ástæðulaus áhætta á að skemma ímynd klúbbhetju á erfiðum tíma. Forseti Como hefur látið það í ljós í fjölmiðlum að Fabregas sé frjálst að fara, en spurður um þessi ummæli, sagði Cesc að það væri fráleitt að pæla í þeim á þessari stundu. Fókusinn hjá honum er að koma Como í Meistaradeildina, eða að minnsta kosti í Evrópukeppni. Það hefur aldrei gerst í sögu Como, en sá klúbbur er á mikilli vegferð úr því að vera lítill klúbbur á Ítalíu í að vera stórveldi í Evrópu sem er markmið indónesísku tóbaksbarónanna sem eiga félagið. Fabregas hefur mikið að segja um leikmannamál félagsins, sem er alls óvíst hvort hann myndi fá undir stjórn þriggja yfirmanna knattspyrnumála hjá Chelsea. Greinarhöfundur telur það mjög ólíklegt að Fabregas yfirgefi Como í sumar, þrátt fyrir mikla eftirspurn annarra liða.
4. Filipe Luís (Líkur. 8/1)
Kostir: Hann er með góðan fótboltaskilning og hefur náð skjótum árangri í Brasilíu með Flamengo (þar sem honum var sagt upp í framhaldi viðræðna við BlueCo síðasta sumar) . Hann er fyrrum leikmaður Chelsea, talar mörg tungumál og er mjög nálægt nútímafótbolta í nálgun sinni. Hann er sagður vera mjög góður í að tengja við yngri leikmenn.
Gallar: Óreyndur í evrópskum deildarfótbolta sem þjálfari. Það væri mikið stökk úr brasilísku deildinni beint í pressuna í ensku úrvalsdeildinni, og stjórn Chelsea gæti verið treg til að taka aðra „tilraunakennda“ áhættu.
5. Oliver Glasner (Líkur: 10/1)
Kostir: Hann er fagmaður fram í fingurgóma sem hefur sannað sig með því að vinna Evrópudeildina með Frankfurt og FA bikarinn með Crystal Palace. Hann er mjög agaður taktíker sem lætur lið sín vinna hart fyrir hlutunum. Hann myndi líklega ná að „stoppa í götin“ á vörninni hjá Chelsea á mjög skömmum tíma.
Gallar: Hann getur verið stífur í samskiptum við yfirmenn knattspyrnumála, sem gæti valdið núningi við Winstanley og Stewart. Hann er kannski ekki sá „stjörnustjóri“ sem eigendurnir vilja til að markaðssetja vörumerkið Chelsea á heimsvísu.
Önnur nöfn sem hafa fengið einhverja umfjöllun eru Xabi Alonso, en nýjustu fréttir herma að hann sé að fara taka við RB Leipzig. Nafn José Mourinho hefur einnig verið fleygt fram, þá aðallega að Kaveh Solehkol fréttamanni SKY Sports. Þriðja endurkoman - the last dance, hljómar mjög sexý á blaði, en að losa hann frá Benfica myndi kosta eitthvað og það er ekki víst að Mourinho myndi eiga skap við stjórnarmenn Chelsea. Þar að auki er hann einnig orðaður við endurkomu í Real Madrid sem samkvæmt helstu blaðamönnum myndi heilla hann mjög mikið. Það er þó einn þáttur í þessu að gott samband er á milli Jorge Mendes umboðsmanns Mourinho - þannig að við getum ekki útilokað neitt að svo stöddu.
En nóg af getgátum og spekúleringum. Framundan er "úrslitaleikur" við Leeds United á Wembley í undanúrslitum FA bikarsins. Á milli Chelsea og Leeds er fjandskapur sem má rekja til úrslitaleiksins í FA Bikarnum frá árinu 1970. Úrslitaleikurinn var endurtekinn þar sem leikurinn á Wembley endaði með jafntefli. Leikurinn á Old Trafford var lýst sem ofbeldisfyllsta leik sögunnar þar sem rauð spjöld hefðu verið dæmd ítrekað eftir reglunum í dag. Síðan þá hefur verið fjandsamlegt á milli stuðningsmanna liðanna. Leikmenn Chelsea hafa ekki sýnt neitt sem mætti telja sem baráttuþrek í undanförnum leikjum. Við erum ekki að biðja um hörku og rauð spjöld, heldur að leikmenn liðsins fórni sér virkilega eftir hverjum bolta og spili fyrir heiður félagsins. Flestir halda að þetta sé 50/50 leikur, í ljósi þess hversu ömurlegir Chelsea hafa verið á undanförnum vikum. Leeds spila leikinn af lífi og sál, og við getum bara búist við því að það verði eins upp á teningnum á morgun hjá leikmönnum Daniel Farke. Chelsea mætir til leiks með bakið upp við vegg og þarf á Cole Palmer að halda í sínu besta formi til að rífa liðið upp úr lægðinni. Leeds mætir hins vegar af miklum krafti, staðráðið í að nýta sér óreiðuna hjá Lundúnarliðinu. Búist við hörku, ástríðu og leik sem mun skilja eftir sig sár. Wembley mun titra – hver nær að skrifa nýjan kafla í þessa blóðugu sögu?

Chelsea leikur án Reece James, Levi Colwill, Jamie Gittens og Estevao. Sá brasilíski tognaði aftan í læri gegn Manchester United. Meiðslin eru reiðarslag og þátttaka hans í HM í sumar er í verulegri hættu. Hann mun því ekki leika neitt meira með Chelsea á tímabilinu. Hinsvegar eru góðar fréttir þess efnis að bæði Joao Pedro og Cole Palmer eru til taks. Þeir æfðu með Chelsea en það mun ekki koma í ljós fyrr en á leikdag hvort þeir verða með gegn Leeds, en við bindum vonir við það. Endurhæfing Levi Colwill gengur ágætlega en áætlað er að hann leiki með U21 liðinu í æfinga leik í dag (laugardaginn 25. apríl) til að komast í leikform. Við getum hugsað að hann verði mögulega í hóp gegn Liverpool 9. maí. Callum McFarlane hefur því ákveðinn höfuðverk að stilla upp liði Chelsea á morgun. Við veðjum á hann breyti ekki miklu og liðstillingin verður 4-2-3-1. Robert Sanchez verður í markinu. Malo Gusto verður í hægri bakverði, Marc Cucurella í vinstri. Wesley Fofana og Trevoh Chalobah verða miðverðir. Moises Caicedo og Andrey Santos verða á miðjunni og Enzo fer í holuna. Cole Palmer verður hægra megin og Pedro Neto vinstra megin. Joao Pedro verður að leiða línuna. Ef Cole Palmer og Joao Pedro eru ekki til taks í byrjunarliði, þá verður Pedro Neto hægra megin, Alejandro Garnacho vinstra megin og Liam Delap upp á topp. Þessi leikur er ögurstund fyrir þennan leikmannahóp. Þetta er tækifæri fyrir leikmenn til þess að sanna sig virkilega í augum stuðningsmanna Chelsea. Ef þeir skila inn skíta frammistöðu eru dagar margra þeirra taldir í klúbbnum. Heiðurinn er algjörlega að veði, bæði fyrir klúbbinn og einstaka leikmenn. Við sem stuðningsmenn eigum skilið að þeir skilji allt eftir á vellinum og berjist um hvern einasta bolta. Ef það mistekst verður þess minnst um áraraðir sem mestu hneisu. Chelsea á að vera miklu betra lið en Leeds, en ef vinnuframlagið er ekki til staðar, er útleið úr bikarnum vís. Maður ber von í brjósti að þessar prímadonnur horfi í eigin barm og skili viðunandi frammistöðu og sigri úr þessu einvígi. Leeds verða nánast með fullskipaðan hóp. Aðeins Anton Stach, Illia Gruev og Sebastian Bournaouw eru meiddir. Undirritaður þorir að vona að þetta verði 1-0 sigur. Markið kemur frá Enzo.
Áfram Chelsea!


Comments