top of page
  • Twitter Social Icon
  • Facebook Social Icon
Search

Chelsea gegn Leeds

  • Writer: Jóhann Már Helgason
    Jóhann Már Helgason
  • 14 minutes ago
  • 3 min read

Keppni: Enska Úrvalsdeildin

Tími, dagsetning: Þriðjudagur 10 febrúar 2026 kl. 19:30

Leikvangur: Stamford Bridge

Dómari: Robert Jones

Hvar Sýndur: Sýn sport 2

Upphitun eftir: Þráinn Brjánsson



Það er óhætt að segja að okkar mönnum er sannarlega haldið við efnið þessa dagana og áttum við leik á laugardag og á þriðjudegi er aftur blásið til leiks í 26. umferð. Nú eru það Daniel Farke sem mætir með drengina sína á okkar ástkæra heimavöll en það verður að segjast að sá þýski hefur átt í bölvuðu brasi með þá “hvítu” sem af er tímabils og sitja þeir nú í 16. sæti deildarinnar með 29 stig á meðan okkar menn eru í því 5. með 43 stig og og eitt af fjórum efstu sætunum allavega dugar okkur í Meistaradeildina. Það er í dauðafæri fyrir okkur. Nú við mættum Úlfunum síðastliðinn laugardag og Cole okkar Palmer var í miklu stuði og náði forystunni á 13. mínútu þegar Joao Pedro var felldur innan teigs og vítaspyrna dæmd og skoraði hann af öryggi. Á 33. mínútu var svo Joao Pedro aftur hrint innan teigs Úlfanna og aftur fór Palmer á punktinn og staðan orðin 0 - 2 og Palmer fagnaði sínu 50. marki fyrir Chelsea. Palmer var hreint ekki hættur, en á 38. mínútu fullkomnaði hann sína þriðju "hálfleiks" þrennu fyrir Chelsea þegar hann skoraði fínt mark eftir stoðsendingu frá Cucurella.

Staðan orðin þægileg og við fórum inn í hálfleikinn með 0 - 3 forystu. Í seinni hálfleik klóruðu Wolves aðeins í bakkann þegar Tolu Arokodare náði inn einu marki. Eftir markið fór Rosenior að rótera aðeins og tók nokkra lykilmenn útaf og setti meðal annars Liam Delap og Garnacho inn á fyrir Palmer og Joao Pedro en þeir settu ekki mark sitt á leikinn þó þeir hafi leikið ágætlega, en ég sannfærðist ekki um ágæti Liam Delap sem leikmanns þessar mínútur sem hann spilaði og ég sé ekki að við höfum einhver not fyrir hann því miður. Okkar bestu menn í leiknum voru klárlega Palmer, Caicedo og Cucurella og má alveg segja að aðrir stóðu sig bara bærilega og liðið spilaði vel og datt ekki niður á plan “lélegra” liðsins eins og við höfum svo oft átt til að gera, en klárlega ekki í þetta sinn og þrjú stig söfnuðust í sarpinn.


Chelsea

Holningin er fín á liðinu finnst mér og það er einhver yfirvegun komin í mannskapinn. Þeir eru farnir að spila skynsamlega aftur eftir einhverja fýlu og taugaveiklun undanfarið og tengist það vafalaust nýjum þjálfara. Það er jú alltaf þegar nýir menn koma í brúna þá breytast áherslur, en það er gott að sjá að Enzo er ekki lengur með fingurinn nánast uppi í nefinu á dómurunum í hverjum leik og menn virðast vera farnir að hafa gaman að þessu aftur og eru farnir að brosa. Rosenior tjáði fréttamönnum á mánudaginn að Reece James væri klár þó einhver lumbra hefði verið í honum á mánudags æfingunni og Tosin væri sömuleiðis klár og kom einnig með þær fréttir að Lavia væri farinn að æfa á grasinu. Það væri gott mál en ekki hefur verið mikið á hann að treysta þetta tímabilið. Þeir kumpánar Palmer og Santos munu vera klárir fyrir Leeds sömuleiðis. Gittens mun vera frá og Dario Essugo er fjarri góðu gamni. Það verður spennandi að sjá hvort Mamadou Sarr fá að spreyta sig en hann var kallaður úr láni frá Strasbourg en Rosenior mun vera afskaplega hrifinn af Sarr eftir að hafa þjálfað hann hjá Strasbourg.


Leeds

Gestirnir frá Jórvíkurskíri hafa verið í basli sem af er tímabils og reglulega hafa borist fréttir af því að sæti Daniel Farke sem þjálfara sé meira og minna glóandi heitt undanfarið, en hann hefur þó haldið velli og reynir að gera sitt besta með liðið. En spurning er hvort bandarískir eigendur liðsins 49ers Enterprises séu eins glaðir er ekki gott að segja, en þeir eiga þó Glasgow Rangers í Skotlandi líka svo umsvifin eru talsverð. Leeds sigraði þó Nottingham Forest í sínum síðasta leik og koma þá ylvolgir til London og aldrei skal vanmeta þá. Þeirra helstu menn eru meðal annara Pascal Struijk, Sean Langstaff, Dominic Calvert-Levin og Gabríel Gudmundsson sem er þó að öllu leyti sænskur þó hann beri þetta kunnuglega nafn. Það er ljóst að þeir tefla fram sínum besta mannskap og þurfa okkar menn að vera með allt á hreinu ef ekki á að fara illa. 



Liðsuppstilling og spá:

Ég held að þetta ætti að geta verið skemmtilegur leikur og full ástæða til bjartsýni. Rosenior mun spila 4-2-3-1 kerfið að vanda og Sanchez verður í markinu og fyrir framan hann verða Reece James, Fofana, Chalobah og Cucurella. Eitt besta miðjupar heims verður þar fyrir framan eða Enzo og Caicedo ég veðja á að á köntunum verði þeir Estevao og Garnacho, Palmer lúrir í holunni og fremstur verður Joao Pedro. Ég ætla að vera mjög bjartsýnn og held að við tökum þetta 4 - 0 og Palmer og Estevao skipta með sér mörkunum. 



Góða skemmtun og áfram Chelsea!

 
 
 

Comments


  • Grey Google+ Icon
  • Grey Twitter Icon
  • Grey LinkedIn Icon
  • Grey Facebook Icon

© 2023 by Talking Business.  Proudly created with Wix.com

bottom of page