top of page
  • Twitter Social Icon
  • Facebook Social Icon
Search

Chelsea gegn Burnley

  • 5 minutes ago
  • 3 min read

Keppni: Enska Úrvalsdeildin - 27. umferð

Tími, dagsetning: Laugardagur 21. febrúar 2026 kl. 15:00

Leikvangur: Stamford Bridge

Dómari: Lewis Smith

Hvar Sýndur: Sýn Sport 2

Upphitun eftir: Hafstein Árnason



Ég skal vera hreinskilinn: þegar ég sá að við áttum að spila á MKM Stadium gegn Hull City í fjórðu umferð FA Cup, þá hugsaði ég með mér „jæja, þetta gæti orðið svolítið leiðinlegt“. Og það varð það – bara ekki alveg eins og ég bjóst við. Þetta var leiðinlegt fyrir Hull. Það var eitthvað við þennan leik í Hull City sem minnti mann á gömlu tímana. Kuldi í lofti, grámygla yfir vellinum og andstæðingur sem hafði nákvæmlega engu að tapa – nema kannski stoltinu. Og svo mætti Chelsea FC í heimsókn, bláklæddur risinn með væntingar á herðum sér eins. Chelsea byrjaði leikinn af yfirvegun, næstum því of mikilli. Boltinn gekk manna á milli eins og bænir í messu – fallegar, rétt fluttar, en án þess að hreyfa við neinum. Hull lá djúpt, beið og vonaði að eitthvað kraftaverk myndi gerast. Og eins og við vitum: stundum þarf ekki nema eitt augnablik kæruleysis til að vekja upp drauga fortíðar. En að þessu sinni hélt vörnin sér vakandi. Það var ákveðin festa í liðinu, minna panik, meira þolgæði. Miðjan vann sína vinnu af skyldurækni og kantmennirnir reyndu ítrekað að rjúfa varnarlínuna með hraða og áræðni, en þeir tígrisgulu vörðust fimlega. Það vakti eftirtekt að Mamadou Sarr var kominn í byrjunarliðið. Hann spilaði vel allan leikinn og slóg engar feilnótur. Sóknarleikurinn var þungur framan af, en þegar Pedro Neto náði að skora rétt fyrir leikhlé var eins og þungu fargi væri létt af liðinu. Ég var mjög óánægður með framlag Liam Delap í fyrri hálfleik, þrátt fyrir eina stoðsendingu. Seinni hálfleikurinn var mun betri hjá öllum leikmönnum liðsins. Pedro Neto skoraði beint úr horni sem var afar klaufalegt mark. Skömmu síðar bætti Estevao við þá var leikurinn alveg búinn. Hull ógnuðu nákvæmlega ekki neitt að marki. Neto kláraði svo leikinn með þrennu og Liam Delap, sem ég hafði fundið allt til foráttu, átti þrennu í stoðsendingum. Það er erfitt að segja til um hvort það sé vegna þess hversu lágt getustigið þeirra er eða hvort getustigið hafi verið off hátt hjá Chelsea. Ég gef Liam Rosenior full kredit fyrir að safna öllum sigrunum á þessum skamma tíma. Liðið hefur verið að bæta sig smám saman og leikmenn eru farnir að koma aftur til baka úr meiðslum. Reyndar gerðist það sem ég hef óttast síðan síðasta sumar. Marc Cucurella með 5000 leikmínútur á síðasta tímabili er meiddur aftan í læri og verður frá næstu vikurnar. Það er helvíti óheppilegt, en satt best að segja, þá bjóst maður við þessu.



Það var því mjög kærkomið að fá frí í vikunni frá Meistaradeildinni og annað eins verður í þeirri næstu. Þetta gefur leikmönnum meiri hvíld frá hamaganginum sem hefur átt sér stað undanfarna þrjá mánuði. Það verður að segjast, að álagsstýringin á Reece James hefur verið til fyrirmyndar og í raun framar öllum vonum að meiðslin hans hafa ekki tekið sig upp. Maður hefur ákveðnar væntingar í framhaldinu að við sjáum betur hvað Chelsea getur gert, sérstaklega í ljósi þess að nú fær Rosenior aðeins meira andrými til að drilla liðið. Framundan er leikur í Úrvalsdeildinni gegn Burnley, sem á að vera skyldusigur. Við mættum þeim á útivelli fyrr á tímabilinu og sá leikur vannst 2-0. Það er nokkuð víst að Burnley munu falla niður í Championship deildina í vor ásamt Wolves, og einmitt á þessum tíma slekkur gjarnan á slíkum liðum. Ég hef ekki margt jákvætt að segja um þennan klúbb. Hann er á sama stalli og Norwich og West Brom. Dæmigerð jójó lið sem ná sjaldan að komast upp á efra plan.


Hvernig verður byrjunarliðið? Sanchez verður í markinu. Hato í vinstri bakverði, Sarr og Chalobah í miðvörðum. Reece James í hægri bakverði. Miðjan verður Andrey Santos og Enzo. Cole Palmer verður í holunni, Estevao hægri kantur og Pedro Neto á þeim vinstri. Joao Pedro verður strikerinn. Hvernig fer leikurinn? Þetta verður 3-0 leikur með mörkum frá Cole Palmer, Estevao og Joao Pedro.

 
 
 

Comments


  • Grey Google+ Icon
  • Grey Twitter Icon
  • Grey LinkedIn Icon
  • Grey Facebook Icon

© 2023 by Talking Business.  Proudly created with Wix.com

bottom of page