Brighton gegn Chelsea
- 3 days ago
- 5 min read
Keppni: Úrvalsdeildin, 34. umferð
Tími, dagsetning: Þriðjudagur 21. apríl kl: 19:00
Leikvangur: Stamford Bridge, Lundúnir
Dómari: Craig Pawson
Hvar sýndur: Sýn Sport
Upphitun eftir: Þráinn Brjánsson

Vorið virðist vera komið og grundirnar fara að gróa, en það er ekki laust við að veturinn sé enn með tangarhald á okkar mönnum, en fjórði tapleikurinn í röð varð staðreynd um liðna helgi og stemmningin í kring um liðið afskaplega súr.þ Leikurinn síðastliðinn laugardag var leikinn í skugga rúmlega 500 stuðningsmanna Chelsea og Strasbourg sem mótmæltu stjórnarháttum eigenda beggja liðanna og sungu “We want Blueco out” hástöfum og skyldi engan undra. Hvað leikinn varðar þá vorum við miklu betri aðilinn og réðum reyndar lögum og lofum gegn slöppu liði Manchester United, en eins og svo oft áður voru við ráðandi aðilinn meira og minna allan tímann, en náðum ekki að nýta okkur muninn og misstum dýrmæt þrjú stig þegar Cunha sló okkur algerlega út af laginu með flottu marki. Það sem við fengum út úr þessum leik var það helst að við misstum Estevao í meiðsli sem gæti orðið vendipunktur. Það vantaði alls ekki færin hjá okkar mönnum, en tréverkið var að flækjast einum of oft fyrir boltanum sem oftar. Innáskiptingar hjá Rosenior virkuðu ekki sem fyrr og Garnacho átti að ég held sinn versta leik í bláu treyjunni og þá sérstaklega í aðdraganda marksins þar sem varnarleikurinn hans gegn Bruno Fernandes var ekki til eftirbreytni. Strákgreyjið gerði fátt annað en að tapa boltanum og tel víst að þetta séu lokametrarnir hjá honum hjá klúbbnum. Þetta voru dýrmæt stig sem þarna fóru til Manchesterborgar. Vissulega vantaði okkur Joao Pedro í fremstu víglínu en Delap leysti hann af og heillaði að ég held engan. En það þýðir víst ekki að velta sér upp úr síðasta leik og skoða heldur þann næsta en 34. umferð ensku úrvalsdeildarinnar hefst í vikunni og förum við á suðurströndina og mætum spræku Brighton liði sem er eitt af þeim liðum sem eru farin að narta óþægilega í hælana á okkur. Chelsea situr þessa stundina í 6. sæti með 48 stig en Brighton er í því 9. með einu stigi minna svo enn meiri ástæða er til að ná stigum og lyfta sér aðeins upp töfluna og breikka bilið örlítið á næstu lið. Það hefur löngum verið kært á milli þessara klúbba og Chelsea hefur verslað mikið á suðurströndinni, bæði leikmenn og þjálfara einnig en nú verður vonandi skrúfað fyrir einhverja viðskiptavild og ekkert kemur annað til greina en sigur.
Chelsea
Það er óhætt að segja að stemmarinn fyrir síðasta leik hafi verið súr og spennustigið hátt. Rúmlega 500 stuðningsmenn Chelsea mótmæltu harðlega stjórnarháttum hjá klúbbnum og einnig mættu margir stuðningsmenn Strasbourg og tóku þátt í mótmælunum en sömu eigendur er að þessum klúbbum eða BlueCo og það er ekki hægt að segja að aðdáendur séu hressir með eigendurna og vilja þá burt. Þeir létu svo heyra vel í sér á meðan á leiknum stóð og bauluðu hressilega á Rosenior að leik loknum og það segir okkur að aðdáendur Chelsea hafa fengið nóg. Ég óttast það bara að það verði engin sátt á milli eigenda og stuðningsmanna nema að til komi miklar breytingar. Það verður að breyta þessari stefnu eigenda að kaupa kornunga leikmenn, gera við þá glórulausa samninga og reyna svo að selja þá með miklum hagnaði eftir fáein ár. Það vantar tilfinnanlega leiðtoga í liðið. Það vantar leikmenn sem geta tekið af skarið og skorað mörk. Rosenior er bara ekki maðurinn til að leiða þetta lið til nokkurra hluta en fullyrðir engu að síður eftir hvern leik að hann njóti fulls stuðnings stjórnar?! Þarna fer einfaldlega ekki saman hljóð og mynd. Íþróttaspekingar í Ameríku sem telja sig hafa vit á knattspyrnu tala um að þjálfari þurfi 10 ár til að byggja upp alvöru lið, en það mætti kannski benda þeim á að 10 ár í starfi sem þjálfari hjá klúbb á sama kaliberi og Chelsea er bara ekki möguleiki allavega ekki ef starfið á að vera árangurstengt. En það er víst búið að lofa reynsluboltum í sumar og verður spennandi að sjá hvort loforð verða efnd. Það þurfa að verða breytingar því annars grær aldrei um heilt á milli eigenda og stuðningsmanna.

En að leiknum og Rosenior hefur gefið það út að Joao Pedro sé ansi tæpur fyrir leikinn en er þó ekki búinn að útiloka hann. Estevao er meiddur og verður ekki með en Enzo mun vera fyr og flamme. Góðar fréttir eru þær að Lewi Colwill er að braggast vel og spilaði 60 mínútur með undir 21 árs liðinu á dögunum og leit vel út og taldi Rosenior ekki ólíklegt að hann fái einhverjar mínútur áður en tímabilinu lýkur. Leyfi mér að efast um að Reece James komi við sögu að þessu sinni.
Brighton
Strandlífið virðist fara vel með Mávana frá Brighton en þeir hafa siglt lygnan sjó þetta tímabil og hafa spýtt í lófana undanfarið og náð að tína inn stig og eru aðeins einu stigi neðar en Chelsea. Þeir hafa átt fremur auðvelda leiki undanfarið og náðu sér í stig gegn Tottenham og Burnley og sigruðu jú Liverpool þannig að holningin á þeim er örugglega góð, en upplagt að hræra aðeins í kerfinu hjá þeim. Fabian Hurzeler, Þjóðverjinn knái hefur náð eftirtektarverðum árangri, en hann er aðeins 33 ára gamall og er sá yngsti sem hefur starfað sem þjálfari í ensku úrvalsdeildinni, er hann var 31 árs. Þetta er skemmtilegt lið að mörgu leyti og margir fínir leikmenn innanborðs og hafa oft reynst okkur erfiðir en nú er nýr leikur og nú ríður á að setja markið hátt og innheimta stigin. Brighton hefur á að skipa bæði miklum reynsluboltum og yngri leikmönnum og má nefna Lewis Dunk, James Milner og Danny Welbeck af eldri kynslóðinni og af þeim yngri þá Yankuba Minteh og Jack Hinshelwood.
Liðsuppstilling og spá:
Jæja þá er að spá og spekúlera en eitt er þó ljóst að mikið er í húfi. Ég á því miður ekki von á að Rosenior hafi fundið einhverjar töfralausnir en trúi á kraftaverkin. Ég hef fulla trú á að Sanchez verði í markinu og fyrir framan hann verða þeir Cucurella, Chaloba, Fofana og Malo Gusto. Dúettinn á miðjunni verða þeir Enzo og Caicedo og tríóið þar framan við verður Pedro Neto og Cole Palmer lúrir í holunni og því miður held ég að hann neyðist til að nota Garnacho vinstra megin, þar sem Estevao er frá, en verðum við bara ekki að vona að hann eigi þá bara sinn besta leik því þeir verða sennilega ekki margir sem hann á eftir að spila fyrir klúbbinn. Við skulum halda í bjartsýnina og ég spái okkur sigri 1-3.
Góða skemmtun og áfram Chelsea !



Comments