top of page
  • Twitter Social Icon
  • Facebook Social Icon
Search

Aston Villa gegn Chelsea

  • 3 minutes ago
  • 5 min read

Keppni: Úrvalsdeildin, 25. umferð

Tími, dagsetning: Miðvikudagur 4. mars  kl:19:30

Leikvangur: Villa Park, Birmingham

Dómari: Jarred Gillett

Hvar sýndur: Sýn Sport

Upphitun eftir: Bjarna Reynisson



Rautt enn eina ferðina og byrjunarlið afbrotamannanna er næstum fullskipað. Vantar bara vinstri vængmann og vinstri miðjumann. Það kæmi mér lítið á óvart ef að við náum að fylla í þær stöður sem vantar enda eru Cole Palmer og Enzo Fernandez báðir með sirka eitt gult spjald á fjögurra leikja fresti. Pedro Neto til varnar þá trúði hann, að ég tel, heilshugar að hann væri ekki á spjaldi þegar hann straujaði Martinelli glæfralega við hliðarlínuna og uppskar sitt annað gula spjald í leiknum um helgina. Auk þess voru þetta hans fyrstu gulu spjöld í deildinni á þessu tímabili. Óheppilegt vægast sagt og enn og aftur í mikilvægum leik erum við okkar eigin verstu óvinir. Hvernig hann hagaði sér í kjölfarið var hins vegar verra og undirstrikar agavandamál klúbbsins. Hélt áfram að elta dómarann, tuðandi, þrátt fyrir að fyrirliði klúbbsins, Reece James, var að reyna að draga hann í burtu. Ætla að skrifa þetta á hita leiksins, en þetta er ólíðandi hegðun samt sem áður.


Eftir að lúta lægri haldi fyrir Arsenal um helgina þá sitjum við í sjötta sæti deildarinnar, 19 stigum á eftir Skyttunum, sem er kaldhæðnislegt því að við höfum tapað 19 stigum úr sigurstöðu á tímabilinu . Það er einbeitingar og agaleysi sem er hreinlega að ógna því að við tryggjum þátttöku okkar í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili. Sanchez leið aldrei vel í leiknum, þrátt fyrir eina fína vörslu frá Eze. Palmer er heill, á blaði, en hann er ekki kominn til baka eins og við þekktum hann fyrir meiðslin. Joao Pedro endaði í grasinu í hverri einustu viðureign við bakverði Arsenal en hefði klárlega átt að vinna fleiri aukaspyrnur fyrir þær viðureignir, og tvær vítaspyrnur að auki. Reece James, Caicedo og Chalobah voru allir flottir í leiknum að mínu mati. Sarr átti fínar rispur en leit illa út í fyrsta marki Arsenal. Lavia þótti mér góður af bekknum en annars voru flestar skiptingarnar niðurskurður á gæðum í staðinn fyrir uppfærslur.


Rosenior kallaði á blaðamannafundi eftir að hópurinn í heild þyrfti að axla meiri ábyrgð þegar kemur að þessum rauðu spjöldum og ódýru mörkum. Hann nefndi einnig að hann væri leiðtogi þessa hóps og hans viðbrögð eru nú þegar sýnileg en hann og ónefndur aðstoðarþjálfari ætla að taka við varnar hliðinni á föstu leikatriðunum. Það gerir mig gífurlega ánægðan því að liðið hefur verið að fá á sig of mörg mörk úr föstum leikatriðum nýlega. Sérfræðingurinn okkar í föstum leikatriðum, Bernardo Cueva, mun þó enn sjá um sóknar hliðina enda hefur það verið að reynast vel. 


Það er margt sem mönnum dettur í hug að gera þegar þeir geta ekki spilað fótbolta. Romeo Lavia tók á það ráð að vera í VR heiminum að æfa ákvörðunartökuna sína og þá herma fréttir að Mykhailo Mudryk sé að halda sér við á æfingasvæði Uxbridge FC. Ekki veit ég hvað Estevao, Essugo, Gittens, Colwill og Cucurella eru að nýta sín meiðsli í en þeir þurfa ekki að nota hugmyndaflugið mikið lengur enda allir væntanlegir til baka á mismunandi tímum í mars mánuði. Pedro Neto tekur út eins leiks bann og verður klár á móti Wrexham. Við hlökkum eflaust öll til að sjá hann stinga fingrunum í eyrun aftur til að blokka út hávaðann.


Garnacho sagði í viðtali fyrir Arsenal leikinn “fyrst að United gat unnið þá, þá eigum við að geta það líka”. Ef að hann mætir í viðtal fyrir þennan leik þá gæti hann sagt “fyrst að Wolves vann þá 2 - 0 í síðustu umferð, þá eru engar afsakanir til að jafna ekki þann árangur eða jafnvel gera betur”. Villa menn hafa átt heldur betur sveiflukennt tímabil. Fyrstu vikurnar var þeim hreinlega fyrirmunað að koma boltanum yfir marklínuna, eitt mark í fyrstu fimm leikjunum í ensku deildinni. Eftir það tók við góðæri sem að sá þá vinna 12 af næstu 13 leikjum sínum í Úrvalsdeildinni. Þökk sé þeim kafla voru þeir með annan fótinn í titil baráttunni en nú er þeim farið að skrika fótur og eins og ég hef skrifað áður þá ættu okkar menn að ná að enda fyrir ofan þá þetta tímabilið. Ég man vel þegar Aston Villa reis upp úr Championship deildinni tímabilið 18/19. Þeir voru með skemmtilega leikmenn á borð við Jack Grealish og John McGinn en þeirra helsti markaskorari það tímabilið var lánsmaðurinn Tammy Abraham. Eins og glöggir menn muna þá kom hann upp í gegnum Cobham og var hann því samningsbundinn Chelsea á þessum tíma. Góðu fréttirnar fyrir Abraham í kjölfar þessa láns var að Chelsea var gert að taka út félagsskiptabann næstu tvo félagsskiptaglugga. Abraham nýtti tækifærið sitt prýðis vel og var markahæsti leikmaður Chelsea tímabilið sem fylgdi með 15 mörk. Hann náði þó ekki sömu hæðum 20/21 tímabilið og skoraði aðeins sex mörk og var í kjölfarið seldur til Roma. Aston Villa sótti hann í janúar eftir skrautlega atburðarás. Besiktas keypti hann nefnilega af Roma og seldi hann svo beint til Aston Villa innan við sólarhring síðar. Ég velti oft fyrir mér af hverju við veðjum stórum fjárhæðum á akademíu leikmenn annara liða (oftast Man City) í staðinn fyrir að gefa okkar eigin akademíu leikmönnum betri séns. Persónulega hefði ég verið til í að halda Abraham áfram hjá Chelsea enda þrátt fyrir töluverða eyðslu í framherja þá held ég að Abraham sé jafnoki þeirra allra, að Joao Pedro undanskyldum.


Eins manns dauði er annars manns brauð og því tel ég Rosenior eiga fátt um val annað en að byrja Garnacho á vinstri vængnum gegn Aston Villa. Hægra megin er líka ákveðin krísa því að Estevao er einnig fjarri góðu gamni með meiðsl aftan í læri. Ég vona einnig að Rosenior hafi látið af tilraunum sínum að spila Liam Delap sem hægri vængmanni eftir síðustu frammistöðu hans þar. Að því sögðu tel ég að Palmer byrji hægra megin, þrátt fyrir að hann hafi kveinkað sér aðeins um helgina. Fremstur þarf að vera Joao Pedro, enda er hann besti valkostur okkar í þeirri stöðu og ætti að byrja alla leiki mín vegna. Caicedo, Santos og Fernandez á miðsvæðinu, hefði samt ekkert á móti því að sjá Romeo Lavia fá tækifærið en það er líklega of snemmt fyrir hann að byrja leiki á þessum tímapunkti. Í fjarveru Cucurella þá vil ég ekki sjá neinn annan en Hato leysa vinstri bakvarðar stöðuna. Það er mín einlæga trú að Fofana og Chalobah eru ennþá sterkasta miðvarðaparið sem að við höfum upp á að bjóða og því verða þeir á sínum stað. Reece James verður hvíldur og í hans stað byrjar Malo Gusto. Á milli stanganna verður svo enginn annar en Robert Sanchez. Þetta er góður tími til að mæta Villa og ég heng minn hatt á 3 - 1 sigur Chelsea í þessum leik. Tvö mörk frá Palmer og eitt frá Joao Pedro.


Takk fyrir lesturinn, áfram Chelsea!







 
 
 

Comments


  • Grey Google+ Icon
  • Grey Twitter Icon
  • Grey LinkedIn Icon
  • Grey Facebook Icon

© 2023 by Talking Business.  Proudly created with Wix.com

bottom of page