Arsenal gegn Chelsea, seinni leikur
- Jóhann Már Helgason

- 13 minutes ago
- 5 min read
Keppni: Enski deildarbikarinn, undanúrslit
Tími, dagsetning: Þriðjudagur 3. febrúar kl: 20.00
Leikvangur: Emirates Stadium
Dómari: Peter Bankes
Hvar sýndur: Sýn sport (líklega)
Upphitun eftir: Þráinn Brjánsson

Framundan eru undanúrslit enska deildarbikarsins og nú liggur leiðin á Emirates þar sem við mætum toppliði ensku úrvalsdeildarinnar. Ljóst er að þetta er verkefni sem kemur til með að taka á. Arsenal menn örlítið laskaðir og menn að detta í meiðsli, en það er nú reyndar að hrjá okkur líka þannig að ekki þýðir að fást um það, auk þess Gunners hafa sæmilegasta mannskap á bekknum. Það verður bara að segjast að Arsenal er langlíklegasta liðið til að vinna deildina eins og er og gætu hæglega landað fleiri titlum. Þeir standa til að mynda býsna vel í Meistaradeildinni og það verður fróðlegt að sjá hvort Arteta sé hungraður í alla þá titla sem eru í boði. Arsenal hefur ekki þurft að stækka bikaraskápinn á Emirates afar lengi, en ekki skal taka það af þeim að þeir eru klárlega meistarar í að vera í öðru sæti. Við skulum þó ekki gleyma því að þeir eru á bullandi siglingu og til alls líklegir og sigruðu Leeds afar sannfærandi 0 - 4 í deildarleiknum síðustu helgi.
Talandi um síðustu umferð í ensku deildinni þá spiluðum við gegn West Ham og skemmst er frá því að segja að ég er viss um að ég hafi aldrei séð okkar menn spila verr en fyrri hálfleikinn þennan laugardaginn. Hvað Rosenior gekk til með þessu byrjunarliði er mér á huldu. Það er klárt mál að einhver var hressilega að spila sig út úr liðinu þennan hálfleikinn og það vonandi til frambúðar. Badiashile byrjar og sýndi það endanlega að hann er fjarri því nógu góður til að spila á þessu stigi og hefur oft átt slæma leiki, en þarna keyrði um þverbak. Garnacho var hræðilegur og allar sóknir Hamranna komu í gegnum hann og hann átti klárlega sinn versta dag til þessa. Það fór einfaldlega allt í skrúfuna og fengum við á okkur mark á 7. mínútu en Jarrod Bowen kom Hömrunum í 1-0 og súrnaði staðan heldur betur. Ekki skánaði fýlan þegar Crysencio Summerville kom West Ham í 2-0 og rétt rúmur hálftími búinn. Síðasta korterið fyrir hálfleik var tíðindalítið, en Rosenior hefur vafalaust hækkað örlítið róminn í hálfleik og áttað sig á að þetta hefði kannski ekki verið besta uppstillingin hjá honum. Hann gerði nokkrar skiptingar í hléi og þeir Wesley Fofana, Marc Cucurella og Joao Pedro komu inn í leikinn kostnað Badiashile, Jorrel Hato og Garnacho og hraðinn í leiknum jókst og allt í einu fóru að sjást færi. Varamennirnir voru ekki lengi að þakka fyrir sig og Wesley Fofana sendi einn vænan kross úr efri hillunum sem rataði beint á kollinn á Joao Pedro og þremur mínútum síðar jafnaði Cucurella leikinn með flugskalla takk fyrir! Og allt í einu var þetta orðinn leikur aftur. West Ham gerði svo þrefalda skiptingu eftir mark Cucurella. Callum Wilson, Oliver Scarles og Adama Traore komu inná og Rosenior henti í eina og setti Reece James inn í staðinn fyrir Malo Gusto. Til að fullkomna laugardaginn þá var það svo Enzo sem skoraði sigurmarkið á 92. mínútu og það var meira en Hamrarnir réðu við. Eftir að Enzo gulltryggði þetta, þá voru þeir félagarnir í spænska landsliðinu þeir Cucurella og Traore eitthvað að hnoðast. Traore hreinlega fleytti kerlingar með Cucurella, en Joao Pedro brást reiður við og sneri sér við og hrinti Traore. Broti úr sekúndu seinna þá las maður það út úr svip Pedro að hann hefur hugsað “ hmm þetta var kannski ekki mjög sniðugt” enda Traore tröll að vexti, vel smurður og fnæsti eins og naut! Sem betur fer var annar West Ham maður fyrri til að ná Pedro og tók hann aukinheldur hálstaki sem ekki er vel séð í þessu sporti og uppskar Jean Clair Todibo rautt spjald á síðustu sekúndum leiksins sem endaði 2-3 og einhver dýrmætustu þrjú stig vetursins staðreynd.
Chelsea
Já það verður fróðlegt að sjá hvernig Rosenior setur þetta upp, en hvernig hann metur stöðuna er ekki gott að segja, er hann að prufa leikmenn í þessum bikarleikjum? Er hann sáttur við að nota þetta sem einhverja tilraunastarfsemi og hvílir sína bestu menn fyrir deildina eða ætlar hann að fara alla leið og keyra þetta almennilega í gang? Það er allavega klárt að byrjunarliðið verður að líta einhvernveginn öðruvísi út en gegn West Ham. Það hefur verið talsvert um tilfæringar á leikmönnum í þessum nýliðna janúarglugga og nánast var frágengið að við fengjum varnarmanninn Jeremy Jacquet frá Rennes en Liverpool heillaði meira sveininn þann.

Axel Disasi er kominn til West Ham enda var hann ekki í plönum Rosenior frekar en hjá Maresca. Anselmino var kallaður úr láni frá Dortmund,en stoppaði stutt og fer til Strasbourg og Mamadou Sarr kemur úr láni frá Strasbourg í staðinn enda hæg heimatökin þar sem BlueCo eiga bæði liðin. Kendry Paez er á leiðinni til Argentínu á láni frá...já þið gátuð rétt! Strasbourg og mun leika með River Plate. Tyrique George er kominn til Everton á láni, en þó með kaupklásúlu.

Allt er þetta auðvitað gert til að þessir ungu leikmenn fá fái meiri spilatíma. Þannig að þetta var ekki merkilegur félagaskiptagluggi að neinu leyti. En þá að bikarleiknum og enn og aftur segi ég að ég vona bara að Rosenior fari að átta sig á að nokkrir leikmenn sem hann hefur notað eru bara ekki nógu góðir. Ég vil helst ekki eiga fleiri orð um Badiashile og Liam Delap er flopp! Ég segi það og skrifa! Það þarf að treysta á að menn stígi almennilega upp og sýni hvers vegna þeir eiga að vera í liðinu. Sérstaklega þar sem Estevao okkar besti maður verður ekki með þar sem hann er í Brasilíu vegna persónulegra ástæðna og sagði Rosenior að hann ætlaði að gefa honum þann tíma sem hann þarf til að takast á við þær aðstæður.
Arsenal
Það þarf ekkert að fjölyrða um þetta lið hans Arteta. Þetta lið er það besta í Evrópu um þessar mundir og það kæmi mér ekki á óvart þó þeir myndu vinna bæði Úrvalsdeildina og Meistaradeildina. Þeir eru þó ögn vængbrotnir og til að mynda á Saka við meiðsli að stríða og er tæpur fyrir leikinn. Mikel Merino er líklega með brotið bein í fæti og verður víst talsvert lengi frá. En ljóst er að við verðum að sýna sparihliðarnar á þriðjudaginn og eiga okkar besta leik. Hér dugir ekkert hálfkák. Við erum í einu marki í mínus, en rétt eins og með West Ham leikinn er þetta ekki búið fyrr en dómarinn flautar í leikslok.
Liðsuppstilling og spá:
Þetta verður spennandi en Rosenior mun halda sig við 4-2-3-1 og Sanchez verður í rammanum en hann virðist vera að eflast með hverjum leik. Fyrir framan hann verða þeir Reece James með alla sína reynslu og getu, Cucurella með sinn hraða og ákefð, Chalobah sem hefur verið virkilega góður undanfarið og Gusto. Tvíeykið þar fyrir framan verður Enzo og Caicedo og á köntunum verða þeir Neto og Gittens þó hann sé tæpur. Palmer lúrir í holunni og Joao Pedro verður fremstur. Ég get ekki sagt að ég sé yfirmáta bjartsýnn en þetta verður vonandi góð skemmtun og vonandi verða úrslitin ánægjuleg. Ég spái markaleik og við merjum þetta 3-4 og ég læt það vera að spá hverjir skora.
Góða skemmtun og áfram Chelsea!





Comments