top of page
  • Twitter Social Icon
  • Facebook Social Icon
Search

Arsenal gegn Chelsea

  • Feb 28
  • 4 min read

Keppni: Premier League

Tími, dagsetning:  Sunnudagur 1. mars kl: 16,30

Leikvangur: Emirates Stadium

Dómari: Darren England

Hvar sýndur: Sýn sport

Upphitun eftir: Þráinn Brjánsson



Þá er komið að því að heimsækja Emirates og takast á við efsta lið deildarinnar og líklega það besta þennan veturinn. Ég er ansi hræddur um að Rosenior þurfi nú að setja í fluggírinn og sýna okkur eitthvað annað en til dæmis það sem okkur var boðið upp á í síðasta leik okkar manna gegn Burnley. Ekki það að ég kvíði þessum leik neitt sérstaklega því liðið hefur oft sýnt sínar bestu hliðar gegn erfiðustu andstæðingunum en gjörsamlega gert upp á bak gegn minni spámönnum og ekki var frammistaðan upp á marga fiska gegn Burnley í síðasta leik og enn og aftur klúðruðum við leiknum á síðustu sekúndunum. Leikurinn gegn Burnley byrjaði jú ágætlega og Joao Pedro skoraði mark á fjórðu mínútu sem fær engin fegurðarverðlaun, en mark engu að síður og allt gott um það að segja, en eftir markið duttum við niður í meðalmennskuna. Það var eins og viljinn væri lítill til að bæta í og einkenndist spilið af miðjudútli og sendingum á Sanchez sem aldrei hefur gefið góða raun og allra síst á móti “minni” liðum og sannaðist enn og aftur að við dettum allt of oft niður á sama plan og andstæðingurinn spilar. Við reynum ekki að keyra á andstæðinginn og reyna að bæta við og hefur það allt of oft komið okkur í koll. Hvað veldur er ekki gott að segja en mitt álit er agaleysi og það vantar leiðtoga í liðið sem rífur menn áfram og keyrir upp móralinn. Ef við höldum áfram að ræða leikinn gegn Burnley þá hélt þæfingurinn áfram og Wesley Fofana fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt á 80. mínútu eftir glórulausa tæklingu og steininn tók úr á þriðju mínútu uppbótartíma þegar Flemming jafnaði leikinn eftir hornspyrnu og eitt stig varð árangurinn. Fáar skiptingar hafa skapað meiri umræðu á meðal fylgismanna en þær sem Rosenior gerði undir lok leiksins en það að taka Joao Pedro útaf og setja Liam Delap inná er með öllu óskiljanleg ákvörðun og veltir upp spurningum um einkennilegt mat á aðstæðum. En nóg um þennan leik og nú er að takast á við næsta verkefni sem er ærið. Arteta og hans menn eru líklegir kandídatar til að vinna deildina í ár en þeir þurfa jú nauðsynlega að fá öll stigin á sunnudaginn og nú er lag að breyta þeim áætlunum og magna upp spennuna á toppnum því það verður að segjast að Arsenal hafa átt það til að missa móðinn þegar verulega á reynir og þá virðist allt fara í skrúfuna.


Chelsea

Það virðist eins og eitthvað örlítið bakslag hafi komið í leikmenn eftir nokkra fína leiki og mér fannst góð holning á leikmönnum fyrir Burnley leikinn en fannst ég sjá örla á pirringi og áhugaleysi í þeim leik og ég var að vona að Rosenior væri búinn að komast aðeins undir húðina á þeim, en vona að þetta hafi verið einstakt tilvik því nú ríður á að klára þetta með stæl. Ég er alls ekki sannfærður um að Rosenior sé rétti maðurinn í starfið, en er alveg til í að gefa honum séns og allt hefur sinn tíma. Nú eins og svo oft áður erum við í dauðafæri á að gera spennandi hluti og góð úrslit fyrir okkur gætu einnig haft mikil áhrif á endanlega stöðu í vor. Meiðslalistinn virðist vera í meðallagi góður og helstu tíðindin eru þau að Lavia virðist vera orðinn eins heill og hann getur orðið og gæti komið eitthvað við sögu, en maður verður að vera varkár í væntingum til hans þar sem hann er meiðslapétur. Ef hann hangir heill er alltaf hægt að búast við einhverju frá honum en maður er alltaf með hnút í maganum. Verst er að tveir af okkar lykilmönnum eru frá og ekki væntanlegir fyrr en um miðjan mars, en þeir Estevao og Cucurella verða fjarri góðu gamni þessa helgina. Nú er orðið ljóst að við fáum PSG í 16 liða úrslitum meistaradeildarinnar og verður það spennandi viðureignir, en við vitum það að Chelsea getur sannarlega kennt þeim ýmislegt og allt getur gerst þegar þessi lið mætast.



Arsenal

Það er alltaf skrítin ára í kring um þetta lið en þeir hafa sýnt í vetur að þeir eru ógnarsterkir og kannski líklegasta liðið til stórafreka. En samt er þanþolið ekki mikið hjá þeim og einhver meistaraheppni hefur fylgt þeim í vetur. Óhagstæð úrslit gegn “minni” spámönnum hafa pirrað aðdáendur og stundum finnst manni þeir gera óraunhæfar kröfur til liðsins og menn óánægðir á stundum og menn gagnrýna mikið, en gleyma að liðið er jú í efsta sæti deildarinnar. Það er alveg ljóst að með sigri á Arsenal getum við styrkt stöðu okkar til muna og einnig haft töluverð áhrif á stöðuna á toppnum þar sem Arsenal á eftir nokkra erfiða leiki.


Liðsuppstilling og spá

Ef ég þyrfti að hafa lífsviðurværi mitt af því að spá fyrir um Chelsea leiki þá væri ég líklega á framfæri ríkisins, en þetta er jú fyrst og fremst til gamans gert og meira prívat pælingar. En ég vona innilega að Rosenior hafi átt góða viku og sé vel mótiveraður fyrir helginni, en við skulum vinda okkur í þetta og ætli hann haldi sig ekki við 4-2-3-1 og Sanchez verður í rammanum og fyrir framan hann verða Gusto, Chalobah, Tosin og Reece James. Tvíeykið á miðjunni verður Santos og Caicedo og á köntunum verða þeir Palmer og Pedro Neto og Enzo verður í holunni og Joao Pedro verður fremstur. Þetta verður klárlega brekka en alls ekki óyfirstíganleg og ef vættirnar verða með okkur þá er allt hægt. Jafntefli er líklegt en ég ætla samt að spá okkur sigri 1-2 og sigurmarkið kemur á ögurstundu.


Góða skemmtun og áfram Chelsea !

 
 
 

Comments


  • Grey Google+ Icon
  • Grey Twitter Icon
  • Grey LinkedIn Icon
  • Grey Facebook Icon

© 2023 by Talking Business.  Proudly created with Wix.com

bottom of page