Chelsea gegn Benfica í CWC
- Jóhann Már Helgason
- 5 hours ago
- 4 min read
Keppni: FIFA Club World Cup
Tími, dagsetning: Laugardagur 28. júní kl:20:00
Leikvangur: Bank of America Stadium, North Carolina
Dómari: Slavko Vincic (Slóvenía)
Hvar sýndur: DAZN
Upphitun eftir: Bjarna Reynisson

Vegferðin heldur áfram í Ameríku og svo virðist að þegar á þarf að halda þá skilar Enzo Maresca niðurstöðum. Hann sparaði ekki stóru orðin, Filipe Luís, stjóri Flamengo fyrir leikinn okkar gegn þeim þegar hann sagði að hann hafi átt fjórar svefnlausar nætur hugsandi um það taktíska skrímsli sem að Chelsea er. Hins vegar þegar leikurinn var spilaður þá skeindu þeir okkur með 1 - 3 sigri. Þegar rýnt er nánar í úrslitin þá má rekja tvö markanna beint til einstaklings mistaka. Þar verður maður að setja spurningarmerki við Malo Gusto og varnarframlagið hans í kerfinu hans Maresca, eins mikið og ég kann að meta það sem hann hefur gert fyrir okkur, sérstaklega þegar hann kom inn í liðið í fjarveru Reece James undir Pochettino, þá á hann það til að vera veikur hlekkur í vörninni. Mér er spurn hvar hann passar best inn í liðið því að þó að hann getur vel leyst bæði hægri og vinstri bakvarðarstöðuna þá er hann langt frá því að vera jafnoki Cucurella og í kerfinu hans Maresca þá leysir hann hægri bakvörðinn ekki eins vel og Reece James og þá myndi ég einnig frekar vilja sjá Acheampong í hægri bakverðinum fram yfir Gusto.
“Þegar ég fæ boltan, þá hleypur þú” á Enzo Fernandez að hafa sagt við nýjustu viðbótina í framlínu okkar, Liam Delap. Þeir hafa nú þegar gefið stoðsendingu á hvorn annan og virðast vera að tengja vel frá degi eitt. Delap virðist aðlagast hópnum vel og er snöggur að mynda sambönd við sína nýju samherja. Vitaskuld hjálpar það til að hann þekkir nokkra þeirra frá tíma sínum í akademíunni hjá Man City, Cole Palmer, Romeo Lavia, Tosin og auðvitað stjórann sjálfan. Nú leggjumst við öll á eitt og finnum upp á fagni fyrir Liam Delap, það er dagsljóst að hann þarf að finna sér eitt jafn einkennandi og Cole Palmer því að hann er að fara að raða inn mörkum fyrir okkur. Ekki bara á þessu móti heldur á komandi tímabili og tímabilum. Mér fannst Nicolas Jackson oft sækja sér ódýr gul spjöl þegar hann var nýkominn í liðið og hann er farinn að sækja sér óþörf rauð spjöld núna sem að eru að reynast kostnaðarsöm. Í ljósi þess að hann fékk tveggja leikja bann frá FIFA fyrir rauða spjaldið á móti Flamengo og staðreyndin að hann verður í banni í fyrsta leiks næstkomandi tímabils, gegn Crystal Palace, í ensku úrvalsdeildinni þá hefur Delap kjörið tækifæri til þess að sanna sig og eigna sér fast sæti í byrjunarliðinu. Delap er þó enginn engill sjálfur en hann nældi sér í 12 gul spjöld á síðasta tímabili í ensku úrvalsdeildinni, fimm fleiri heldur en Jackson.
Er framherjateymi skipað af Delap, Jackson og Guiu að fara að gera okkur samkeppnishæfa um titla eða þarf að bæta við? Fyrir minn pening þá tel ég þörf á einum framherja til og ég verð að viðurkenna að ég er ágætlega spenntur fyrir Nick Woltemade, þrátt fyrir að hann sé búinn að samþykkja persónulega skilmála við Bayern þá held ég að við ættum að sækja hann. Hávaxinn en hæfileikaríkur í fótunum, vinnur um 40% af einvígjunum sínum og skorar úr einu af hverju þremur skotum. Hann, ásamt Geovany Quenda, sem gengur til liðs við okkur 2026, hafa verið að skína skært á Heimsmeistaramóti U21 leikmanna. Fáum hann inn og gleymum þessari pælingu að fá nýjan vinstri kantmann. Nota Estevao, Tyrique George og leyfa Jackson að spreyta sig þar. Nýjustu fréttir herma að þessi sumargluggi hjá Chelsea verði líklega rólegri en undanfarnir gluggar en þó að fæstir byrjunarliðsmenn séu taldir ósnertanlegir þá verða þeir ekki seldir nema að verðið sé rétt. Ein staða sem að alltaf er milli tannana á stuðningsmönnum okkar er markvarðar staðan, en víst er að Mike Penders verði ekki lánaður út fyrir komandi tímabil. Þá er manni spurn hver verður látinn fara til að skapa pláss fyrir hann, og hvort verður það á láni eða hreinni sölu. Þegar Sanchez gloprar sendingum og skapar óþarfa hættu þá er mín þolinmæðin persónulega oftast lítil. En aftur á móti er hann líklega okkar reynslumesti markvörður og á glæsilegar frammistöður inn á milli, er það nóg? Samkeppnin á miðsvæðinu er einnig gífurleg og virðist stundum vera offramboð af leikmönnum sem vilja spila þar. Einn leikmaður sem að við þurfum að halda í er Andrey Santos en það gladdi mig virkilega á dögunum að hann fékk úthlutað treyju númer 17 og verður því partur af aðalliðinu á komandi leiktíð. Gaman að sjá þegar að BlueCo tekur réttar ákvarðanir.
Benfica spilar sinn deildar fótbolta í Liga Portugal en þeir enduðu nýliðið tímabil með 80 stig í öðru sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir Sporting. Þeir eru félag með langa sögu en félagið var stofnað árið 1904, þeir eru ólseigir og hafa aldrei fallið úr efstu deild á Portúgal. Í gegnum tíðina hefur Chelsea verslað nokkra leikmenn frá Benfica en þar má nefna Enzo Fernandez, Ramires og þá ólst Ricardo Carvalho upp í akademíu Benfica áður en að hann steig upp á stjörnuhimininn undir Jose Mourinho, fyrst hjá Porto og síðar hjá Chelsea. Nemanja Matić notaður sem partur af samningnum til að landa David Luiz frá Benfica en Chelsea keypti Matić svo til baka árið 2014. Þeir eru kallaðir “Ernirnir” vegna arnarins sem situr á skjaldarmerki þeirra einnig “Þeir rauðu” vegna litsins á treyjunni. Þeirra markahæsti maður á tímabilinu er grikkinn Vangelis Pavlidis sem hefur skorað 30 mörk í öllum keppnum í 56 leikjum. Þar á eftir kemur gamli jálkurinn Angel Di Maria með 18 mörk í 43 leikjum.
Ég spái að Maresca setji alvöru þungavigtarmenn í byrjunarliðið samhliða því að andstæðingarnir verða meira krefjandi: Jörgensen heldur sínu sæti í markinu eftir hreint lak í síðasta leik, Cucurella í vinstri bakverðinum, Reece James hægra megin. Miðvarðapar skipað af Colwill og Tosin með Caicedo og Enzo þar fyrir framan. Cole Palmer, Pedro Neto á hægri vængnum, Madueke á vinstri væng og Liam Delap sem fremsta mann. Ernirnir munu ekki svífa né þrífast í Ameríkunni enda er þetta ekki skallaörn sem trónir á skjaldarmerki þeirra, ég spái okkar mönnum 2 - 1 sigri með mörkum frá Delap og Tyrique “evil Saka” George sem að skorar annan leikinn í röð eftir að koma inn af bekknum.
Að lokum vil ég minni fólk á að skráning í Chelsea klúbbinn er hafin fyrir komandi tímabil og ef að þú komst á botninn á pistilinn að þá er það dagljóst að þú ættir að skrá þig!
Áfram Chelsea!!
コメント